Reykjavík


Reykjavík - 08.09.2012, Blaðsíða 9

Reykjavík - 08.09.2012, Blaðsíða 9
98. september 2012 Strætó ekur ekki út á land Framkvæmdastjóri Strætó bs. segir misskilnings gæta varðandi strætóferðir um landið. Hann segir að á höfuðborgarsvæðinu þurfi að leita nýrra leiða varðandi almenningssamgöngur og lítur til leigubíla í því sambandi. Farþegar ferðast nú með strætó víða um landið. Fyrir utan Sel-foss og Suðurland ók strætó á milli Akraness og Reykjavíkur. Og um nýliðin mánaðamót hófst akstur um Vesturland, þar með talið Snæfells- nes og í Búðardal, um Borgarfjörð og tengingar við Hvammstanga og Skaga- strönd og alla leið til Akureyrar. Þá er í undirbúningi að bjóða út akstur austur frá Akureyri um norðausturland sem og innan Suðurnesja. Fólk getur notað venjulega strætómiða á þessum leiðum, Strætó bs. heldur utan um þjónustuna, bílarnir eru með merki Strætó bs. á sér og fólk því litið svo á að þarna séu á ferð bílar frá Strætó bs. En svo er ekki, segir Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó. „Landshlutasamtök hafa komið til okkar og spurt hvort að við séum til- búin að annast þetta þannig að þau geti sett sín kerfi inn í okkar miðasölukerfi, að þjónustuverið okkar svari, kúnn- inn geti hringt til okkar og farið inn á okkar heimasíðu því að það geri það einfaldara fyrir íbúana að nota þjón- ustuna. Og um það snýst samkomu- lagið á milli okkar og viðkomandi landshlutasamtaka og við fáum bara þóknun fyrir. Þessi samningur er al- gjörlega óháður aksturssamingi sem er gerður á milli viðkomandi landshluta- samtaka og akstursaðila.“ -Þannig að Strætó keyrir ekki á þessum leiðum? „Nei, við keyrum ekkert. Það eru bara verktakar sem bjóða í og lægst- bjóðandi fær.“ -Umræðan hefur verið þannig að Strætó bs. sinni þessum akstri. „Ég skil bara ekki þá umræðu. Menn vita betur, tel ég, vegna þess að þessir sömu aðilar hafa boðið í, en ekki fengið. Það eina sem við gerum er að annast alla markaðssetningu, þjón- ustuver tekur við öllu og farmiðasölu- kerfi okkar er notað, en allar tekjur af farmiðasölunni renna til viðkomandi landshlutasamtaka. Við gerum upp magntölur og sendum landshlutasam- tökunum tölvupóst sem og rekstrar- aðilanum um hvað reikningurinn eigi að vera hár hverju sinni.“ -Leggur Strætó þá ekki til neina bílstjóra eða bíla? „Nei. Það eru gerðar sérstakar kröfur um svokallaða intercity bíla, sem eru svona strætó í rútulíki. Þar er fyrst og fremst lagt upp með fjölda sæta og öryggisbelti og svo framvegis, en í stað þess að vera með þessar miklu farangurslestar undir eru bílarnir lækk- aðir til að lækka innstigið í þá. Síðan eru kröfur um standandi farþega, sem er kannski enn einn misskilingurinn. Við áttum okkur alveg á því og öll þessi landshlutasamtök, að það þýðir ekkert að bjóða farþegum upp á það að standa frá Höfn til Reykjavíkur. En um leið og bíllinn keyrir inn í Norðlingaholtið er hann orðinn strætó í Reykjavík, þannig samnýtist þetta tæki. Reykvíkingar geta notað bílinn til að ferðast úr Mjódd og upp í Norðlingaholt, Akureyrarbílinn þjónustar líka Mosfellssveit, Kjalarnes, Leirvogstungu og Akranes þegar hann keyrir þar í gegn. Ef Akurnesingar vilja nota hann og standa í ferð sem tekur 30 mínútur þá er það valkostur. Þú stendur frá Hafnarfirði til Reykjavíkur í 50 mínútur. Við leggjum þetta að jöfnu og þess vegna er þessi krafa um stand- andi farþega.“ -Svo það sé alveg á hreinu, þá er með þessum landsbyggðaakstri ekkert tekið frá Strætó? „Við erum milliður eða miðlari, við erum að miðla þjónustunni. Við tökum fyrir það þóknun samkvæmt samningi og hún miðast við 15% af samningsverðmæti milli landshluta- samtakanna og akstursaðilanna. Sem dæmi má nefna þá skapar þessi Vest- urlands- og Akureyrarrúta Strætó tekjugrunn upp á 30 milljónir króna á ári, við höldum úti þjónustuveri, tölvu- kerfum og markaðssetjum alla þjón- ustuna. Í raun er þetta áætlun um að útgjöld vegna þjónustunnar séu greidd af viðkomandi landshlutasamtökum, en ekki Strætó bs.“ -Þannig að aksturþjónusta sem Strætó býður upp á einskorðast við höfuð- borgarsvæðið? „Já.“ -Og er sú þjónusta fullnægjandi? „Menn vilja alltaf meira og það er eðlilegt. Auðvitað eigum við okkur draum um annað, meira og betra. Við erum búin að leggja fram hug- myndir um hvernig megi efla núver- andi strætókerfi til næstu ára, en það eru aðvitað takmörk fyrir því hvað er hægt að bjóða upp á góða þjónustu með gulum strætisvögnum. En við höfum lagt til, sem er þróun sem hefur átt sér stað undanfarna áratugi, en þó aðallega síðustu fimm til tíu ár í Skandinavíu og Vestur-Evrópu, sem er það sem menn kalla „flex services“. Til að útskýra þá eru strætó og lestar skilgreindar sem „fixed route“ þjónustur, það er að segja þau fara ákveðna leið á ákveðnum tímum með ákveðnu millibili. Það kemur til af því að ökutækin eru stór og geta ekki athafnað sig þvert á þessa stóru ferðaleggi. Til dæmis sinnir leið 1 Hafnafirði og Kópavogi og svo eru leiðarnar upp í Breiðholt og Grafar- vog, sem eru nánast eins og lestar á strætóhjólum. En þegar fólk ætlar að ferðast þvert á þessar leiðir eða utan annatíma, þá eru færri möguleikar í boði. Mjög víða eru yfirvöld farin að líta á leigubíla sem hluta af almenn- ingslausninni. Og í tengslum við það má nefna ferðaþjónustu fatlaðra og aldraðra, þar eru tæki á ferðinni sem almenningur getur ekki nýtt sér. Menn hafa því sagt að þessi tæki þurfum við að nota, þau eru lítil, geta tekið nokkra farþega og skutlað þvert á leiðir þessara stóru ferðaleiða. Við erum með þá til- gátu byggða á reynslu annarra þjóða að þetta sé eitthvað sem við getum gert. Þetta er tiltölulega auðvelt, við færum í samvinnu við rekstraraðila á leigubíla- stöðvum og aðila sem aka fyrir ferða- þjónustu fatlaðra. Þriðji ferðamátinn sem við gætum hugsað okkur er það sem úti í heimi er kallað „rapid bus transit“ og ef við tækjum öfgafyllstu myndina af því væri hægt að ímynda sér sérstakar akreinar í miðjunni á Miklubraut þar sem strætó færi fram og til baka, stoppaði á færri stöðum en tíðnin væri mjög mikil, svona nokkurs konar léttlest eða metro á hjólum. Þetta er miklu ódýrara en að byggja lest, en mjög sveigjanlegt.“ -Varðandi hugmyndirnar um að nýta leigubílana, myndu þeir þá fara ákveðna leið á ákveðnum tímum? „Það yrði pöntunarkerfi. Maður yrði ekki eini farþeginn og ekki víst að hann aki með mann stystu leið á milli A og B, heldur tekur hann á sig sveig til að taka upp og setja af aðra farþega. Það hefur verið til í Bandaríkjunum í ára- tugi fyrirbæri sem kallast „shared cab“. Við sjáum fyrir okkur að í leigubílum geti verið búnaður til að skrá þá inn í svona þjónustu í almenningssam- göngum. En svona þjónusta yrði ekki í boði á annatíma á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, þá nota menn strætó. En til að ferðast þvert, utan annatíma, mjög snemma á morgnana eða seint á kvöldin, þá væri hægt að nota svona.“ -Eruð þið byrjaðir að ræða við leigu- bílastöðvarnar? „Nei, þetta er allt ennþá á hug- myndastigi.“ -Stjórnmálamenn tala oft um að efla þurfi almenningssamgöngur, en finnið þið að hugur fylgi máli? „Já, ég verð að svara þessari spurn- ingu játandi. Við sjáum það til dæmis á frekar nýlegum samningi sem er að taka gildi og ríkið gerði við sveitarfé- lög á höfuðborgarsvæðinu um eflingu almenningsamgangna á svæðinu. Sá peningur sem kemur þar gerir okkur kleift að efla þjónustuna á svæðinu. Ef við horfum fram til ársins 2070, sem er fljótt að líða, miðað við mannfjöldaspár og skipulagsmál og við ætlum ekki að dreifa byggðinni frekar og byggja vegi sem væri mjög dýrt fyrir okkur, þá eigum við ekki landrými undir vega- kerfi og ekki fjármuni til að bæta það gamla þannig að við þurfum að finna upp á einhverju öðru og nýju. Og ef við lítum til annarra landa sjáum við að þau fara í þær lausnir sem ég nefndi hér að framan.“

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.