Reykjavík - 08.09.2012, Síða 12
8. september 201212
Úrval af gæludýrafóðri
Opið 8:30 – 17:30 virka daga
www.dagfinnur.is
SkólavörðuStíg 35a – Sími 552-3621
Full búð
af nýjum
vörum
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Sími: 544-2222
www.feminin.is
feminin@feminin.is
SPURNING.IS
Öðruvísi vefverslun með vörur fyrir
skólann, vinnuna eða heimilið.
11 þúsund
gestir í Borg-
arleikhúsinu
á einum degi
Talið er að allt að ellefu þús-und manns hafi heimsótt Borgarleikhúsið um síðustu
helgi þegar þar var opið hús, en þetta
er meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr.
Leikhúsfólkið telur það til marks um
aukinn áhuga á leiklist.
Boðið var upp á skemmtiatriði af
ýmsu tagi, leiklist og söng, gestum
gafst kostur á að fylgjast með æf-
ingum og sjá ýmislegt að tjaldabaki.
Leikhússtjórinn og aðrir starfsmenn
bökuðu vöfflur ofan í gesti.
Erró heiðursborgari Reykjavíkur
Myndlistarmaðurinn Erró, Guðmundur Guðmunds-son, hefur verið gerður að
heiðursborgara Reykjavíkur. Borgarráð
samþykkti þetta á fundi sínum 30.
ágúst. Jón Gnarr borgarstjóri tilkynnti
þetta við hátíðlega athöfn við opnum
sýningar á verkum heiðursborgarans
í Listasafni Reykjavíkur um síðustu
helgi.
Með þessu þakkar Reykjavíkurborg
Erró fyrir framlag hans til Reykjavíkur-
borgar og þjóðarinnar allrar á sviði
myndlistar, framlag sem borgaryfir-
völd segja ómetanlegt.
Erró er fjórði einstaklingurinn sem
gerður er að heiðursborgara Reykja-
víkur. Sá fyrsti var árið 1961, en það
var Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur,
Kristján Sveinsson augnlæknir var
gerður að heiðursborgara árið 1975
og Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi
forseti Íslands árið 2010.
Erró ólst upp á Kirkjubæjarklaustri,
en fluttist fjórtán ára til Reykjavíkur og
bjó þá á Frakkastíg 10 hjá ömmu sinni
og Guðmundu Kristinsdóttur móður-
systur sinni. Hann gekk í gagnfræða-
skóla og síðan í málaradeild Hand-
íða- og myndlistaskólans í Reykjavík.
Fyrstu stóru einkasýningu sína hélt
hann síðan í Listamannaskálanum í
Reykjavík árið 1957, eða fyrir 55 árum.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
segir að Erró hafi alltaf verið sannur
vinur Reykjavíkurborgar. Árið 1989
gaf hann borginni um 2.300 verk eftir
sig og hefur hann bætt við þá stóru gjöf
síðan, þnnig að verk hans í eigu borg-
arinnar eru nú tæplega fjögur þúsund
og spanna þau allan feril listamannsins,
allt frá barnæsku. Gjöfin er uppistaðan
í Errósafni Listasafns Reykjavíkur.
En hann hefur ekki bara fært
borginni listaverk eftir sig, heldur
einnig margs konar gögn um sig; einka-
bréf, dagbækur, rissblöð og fleira sem
eru ómetanlegar heimildir um feril Er-
rós og þann alþjóðlega listaheim sem
hann hefur tilheyrt í áratugi. Auk þessa
hefur Erró gefið Reykjavíkurborg verk
eftir ýmsa þekkta erlenda listamenn.
Þegar Erró var sæmdur heiðursnafn-
bótinni sagðist hann ætla að reyna að
vera góður heiðursborgari, borga skatta
sína og fara í kirkju á sunnudögum.
Gengið af krafti í skólann
Átakið Göngum í skólann stendur nú yfir, en markmið þess er að hvetja nemendur
og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla
eða fara á annan virkan hátt til og frá
skóla. Um leið er ætlunin að hvetja til
aukinnar hreyfingar með því að auka
færni barna til að ganga á öruggan hátt
í skólann og fræða þau um ávinning
reglulegrar hreyfingar. Einnig að
kenna reglur um öryggi á göngu sem
og á hjóli, draga úr umferð við skóla
og draga úr umferðarþunga, mengun
og hraðakstri nálægt skólum.
Verkefnið Göngum í skólann er al-
þjóðlegt, en upphaf þess var í Bretlandi
árið 2000. Það er núna haldið í sjöunda
sinn á Íslandi og hefur þátttakan farið
vaxandi með hverju ári. Því lýkur 3.
október.
Fjögur gos á Hellisheiði?
Engu líkara var en að eldgos væri hafið á Hellisheiði og það fjögur frekar en eitt. Hvítir strókar
stóðu upp í loftið. Sem betur fer var þó
ekkert slíkt á ferðinni, eins og lesendur
vita, heldur voru þetta gufubólstrar frá
virkjunum Orkuveitu Reykjavíkur á
Hellisheiði.
Hátt í 15 þúsund manns segjast
vilja bjarga Ingólfstorgi og Nasa
Hátt í fimmtán þúsund manns hafa ritað nafn sitt á undir-skriftalista þar sem því er
mótmælt að hótel rísi við Ingólfstorg,
Fógetagarð og Austurvöll. Fólkið segir
að sex hæða hótelbygging muni varpa
skugga á fyrrnefnd svæði og skerði dýr-
mætustu almenningssvæði borgarbúa.
Þá muni fyrirhugað hótel auka mjög
á bílaumferð og salnum á skemmti-
staðnum Nasa sé fórnað.
Samkvæmt tillögum sem liggja fyrir
er gert ráð fyrir að salurinn haldi sér,
en verði lækkaður.
Unnið úr tillögum um skipulag
og nýtingu Öskjuhlíðar
Reykjavíkurborg óskaði eftir tillögum frá borgurum um hvernig best væri að skipu-
leggja og nýta Öskjuhlíðarsvæðið. Alls
bárust 58 tillögur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg eru tillögurnar afar
fjölbreyttar og nálgun í framsetningu
og hugmyndum er á ýmsan máta.
Hugmyndirnar munu spanna allt frá
tillögum að uppbyggingu húsa til ótal
útivistarhugmynda. Þá eru tillögur um
mismunandi tengingar og stíga, en
margar lúta að heildarmynd svæðisins.
metaðsókn var í borgarleikhúsið
um síðustu helgi þegar þar var
opið hús.
Mynd/Borgarleikhúsið
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta