Reykjavík - 08.09.2012, Side 14
14 8. september 2012
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Helgin í Reykjavík
8.– 9. september 2012
Nýjar slóðir – vestnorræn
menningahelgi í Reykjavík.
Nánari upplýsingar á
www.facebook.com/nyjarslodir
Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi
kl. 13:00 / laugardagur
LornaLAB – vinnustofa.
Borgarbókasafnið í Tryggvagötu
kl. 13:00 / laugardagur
Blómalisthefðin Ikenobo, fyrirlestur og smiðja
Kjarvalsstaðir kl. 16:00 / laugardagur
Opnun sýningarinnar Ljóðheimar
Harpan tónlistarhús / laugardagur
Pétur og úlfurinn í Eldborg kl. 14:00.
How to become Icelandic in 60 minutes í
Kaldalóni kl. 19:00.
Norræna húsið kl. 20:00/ laugardagur
Fiðlutvenna – tónleikar með Øssur Bæk og
Rúri Bæk
Cafe Rosenberg / laugardagur
Tónleikar – Baggabandið
Faktorý bar kl. 23:00 / laugardagur
Tónleikar – Sudden Weather Change
og Ghostigital
Borgarbókasafn í Gerðubergi
kl. 13:00 / sunnudagur
Teiknismiðja með Kęstutis Kasparavičius
Listasafn Íslands
kl. 14:00 / sunnudagur
Sunnudagsleiðsögn í fylgd Dagnýjar
Heiðdal, listfræðings
Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi
kl. 15:00/ sunnudagur
Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur ræðir um
listamanninn Erró
Faktorý bar kl. 21:30 / sunnudagur
Sunnu-jazzinn
ReykjavíkuRgetRaunin – svaR
tákn og MeRki
ReykvíkinguR
Harvard
Já, karlmennskan er ekkert grín
Það er eins og karlar umbreytist þegar þeir koma í búningsklef-ann á líkamræktarstöðvunum.
Reykvíkingur getur að vísu bara fullyrt
svona um karlmenn, því hann er ekki
leyfður í kvennaklefunum. Það má
vel vera að sama umbreytingin verði
þar líka. En karlarnir breytast í það
minnsta, sérstaklega ef þeir eru í fylgd
með einhverjum.
Þegar þeir koma inn í klefann er oft
talað dálítið hátt og litið í kringum sig.
Það er kannski talað um það sem á
að gera, hversu miklu á að lyfta eða
hversu langt á að hlaupa og á hversu
skömmum tíma. Oft fylgja líka áfalla-
sögur, til dæmis að viðkomandi sé
svona og svona meiddur. Kannski er
það afsökun svo ekki þurfi að standa
við stóru orðin. Kannski er það líka
svolítið töff. Allir alvöru íþróttamenn
meiðast af og til og það kemst í frétt-
irnar. Þannig að ef maður er með
íþróttameiðsl, þá er það af því að maður
er íþróttamaður. Og þá er maður líka
töffari.
Þegar karlmenn stundum koma til
baka í búningsklefann að loknum æf-
ingum, fer líka ákveðið ósjálfrátt leikrit
í gang.
Þeir koma löðursveittir og tala auð-
vitað um það sem gekk á í æfingunum.
Stundum dálítið roggnir af því að þeir
gerðu meira en félaginn gerði. Og
þykjast kannski vera óánægðir með
eigin árangur. „Djöfull, ég hefði átt að
geta miklu betur.“ Og vona þá kannski
að félaginn sem var aðeins lakari segi
kannski. „Hvaða vitleysa, þetta var
flott hjá þér.“ Vonandi nógu hátt til
að aðrir í búningsklefanum heyri það.
Eða „Þetta er ekki nógu gott hjá okkur,
við verðum að taka betur á.“ Eða fullir
útskýringa á því af hverju það gekk
ekki alveg nógu vel. „Helvítis liðþóf-
inn, hann eyðileggur þetta allt fyrir
mér.“ Eða kannski. „Ég er ekki alveg
búinn að ná mér eftir krossbandsað-
gerðina.“ En það er eins og fyrr segir
líka dálítið töff að geta ekki allt, af því
að íþróttameiðsl koma í veg fyrir það.
Það er best ef félagarnir eru nokkrir
og á víð og dreif um búningsklefann,
því þá er hægt að tala hátt og kalla og
milli. „Bjössi, djöfuls aumingi ertu að
hlaupa bara 20 kílómetra. Þú ert orðinn
algjör kelling.“ Það er nefnilega flott
að kalla félaga sína kellingu, en það er
hins vegar ekki flott að kalla konuna
sína það. Enda þora þeir því líklega
ekki þegar þeir koma heim, en aðrar
reglur gilda í búningsklefanum þar sem
aðeins innvígðir og innmúraðir fá að
vera, sumsé bara karlmenn.
Þeir sem aðallega koma til að hlaupa,
kannski að æfa fyrir Reykjavíkurmara-
þonið, tala mikið um skó og margs
konar tækni. Ef þeir ætla að hlaupa
3 kílómetra skemmtiskokk hafa þeir
ekki hátt um það, nema að vera vissir
um að geta afsakað sig með meiðslum.
10 kílómetrar henta ágætlega ef maður
er að stíga upp úr meiðslum og aðeins
kominn á ról. Hálfmaraþon er hægt
að tala um sæmilega hátt, en þá fylgir
yfirleitt fullyrðing að heilt maraþon
verði hlaupið að ári. Ef maður hins
vegar hleypur heilt maraþon, þá er
manni óhætt að láta heyra dálítið í sér
í búningsklefanum, því það er alvöru.
Svo sjást þessir kappar hlaupandi um
götur Reykjavíkur í smáum og stórum
hópum, því þetta eru hópsálir, sem
bundust tryggðarböndum í búnings-
klefanum. Klæddir skærum klæðum
eins og dragdrottningar á hraðferð,
skiljanlega því bílar eru á fullri ferð
allt um kring.
Svo er spurt að því hvað sé svona
merkilegt við það að vera karlmaður?
Harvardháskóli í Bandaríkj-unum er einn virtasti háskóli heims, en skólinn var stofn-
aður árið 1636. Meira en 44 fyrrverandi
eða núverandi kennarar skólans hafa
fengið Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir
sínar og störf.
Merki Harvard er vínrauður skjöldur
með þremur opnum bókum á, en þær
eiga að tákna þekkingu. Dreift yfir
bækurnar þrjár er síðan latneska orðið
veritas, eða sannleikur. Sannleikur er
einmitt einkunnarorð skólans og miðað
við stöðu skólans í menntaheiminum
má gera því skóna að sannleikurinn sé
það sem sífellt er leitað að, þar innan
veggja.
Heimild: Signs & symbols
Húsið var byggt árið 1958 af Bæjarsjóði Reykjavíkur og nefnist það Hafnarbúðir.
Einar Sveinsson og Aðalsteinn Richter
arkitektar teiknuðu húsið og var það
tekið i notkun árið 1962. Var því ætlað
það hlutverk að taka við af Verka-
mannaskýlinu sem var byggt á fyrstu
árum þriðja áratugarins.
Verkamannaskýlið stóð sjávarmegin
við Tryggvagötuna á þeim slóðum sem
þá mættust Kalkofnsvegur og Tryggva-
gata. Var það byggt úr timbri og var
í því var aðstaða fyrir verkamenn og
sjómenn. Þar var einnig eins konar
ráðningarskrifstofa því þangað komu
verkamenn sem ekki höfðu fasta vinnu
og biðu eftir því að einhver verkstjór-
inn við höfnina veitti þeim starf fyrir
daginn. Verkamannaskýlið var rifið
fljótlega eftir að húsið Hafnarbúðir
var byggt.
Í Hafnarbúðum við Geirgötu var að-
staða fyrir verkamenn og sjómenn og
einnig voru þar gistiherbergi ætluð að-
komusjómönnum. Í húsinu var einnig
Ráðningarstofa Reykjavíkur. Eftir
eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973
höfðu bæjarstjórn og bæjarfógeti Vest-
mannaeyja aðsetur í húsinu. Í veitinga-
sal hússins höfðu íbúar Vestmannaeyja
líka félagslega aðstöðu.
Árið 1977 var húsið tekið undir deild
fyrir langlegusjúklinga frá Borgarspít-
alanum í Fossvogi og einnig var þar
dagvistun fyrir aldraða. Árið 1986 fór
starfsemin undir stjórn St. Jósefsspít-
ala.
Árið 1998 keypti Kaldidalur ehf.
Hafnarbúðir sem þá voru komnar eigu
ríkisins og var húsið þá gert upp bæði
að utan og innan. Í dag er m.a. Ferða-
málastofa með starfsemi sína í húsinu
og hvalaskoðunarfyrirtækið Sjósigling.
Heimildir: Greinasafn Mbl.
-GLI