Harmoníkan - 31.05.1989, Blaðsíða 5

Harmoníkan - 31.05.1989, Blaðsíða 5
kvöðull að samskiptum harmoníku- klúbba í Noregi og hérlendis, kom m.a. því til leiðar að Málsev Nye Trekkspilklubb kom hingað 1981, þá var hann fararstjóri í ferð þeirra um landið. Aðalsteinn sagði í sínu þakk- arávarpi: ég held ég hefði ekki viljað missa þessi 10 ar úr mínu lífi. Það er röð ánœgjustunda frá því við stofn- uðum þetta félag. Formenn landsfélaganna Formönnum landsfélaganna var ætlaður tími og kom nú hver af öðr- um og óskaði afmælisbarninu heilla í nútíð sem framtíð og afhentu gjafir og blóm. Sérstakur gestur J akob Yngvasyni var boðið sem sér- stökum gesti, hann lék einleik og réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst- ur. Það fer ekki á milli mála að Jakob er kominn í röð stórsnillinga okkar. Tónleikar H.U.V. Hátíðardagskráin var ekki á enda. Nú var komið að tónlistardagskrá félagsins sem var heilmikil. Innan fél- agsins eru greinilega efnilegir tónlist- armenn og fengum við að heyra í ein- leikara, tríói, dúetta og hljómsveit sem er fjölmenn. Stjórnandi hennar er Hannes Baldursson. Lokaorð Næst var stiginn dans fram eftir nóttu. Menn höfðu á orði þegar þeir máttu mæla milli dansa að vart myndu þeir annað eins fjör og dans- gleði. Ætlunin var að gefa út sérstakt blað til að minnast afmælisins en tíminn reyndist of naumur, ætlunin er samt að láta verða af því. Vonandi getum við birt sögu félagsins í blaðinu Har- moníkan á næsta áskriftarári. Veislu- stjóri var Guðrún Jóhannsdóttir og var öll skipulagning til fyrirmyndar. Að síðustu langar mig að vitna í orð formanns er hann setti hátíðina. Að þið góðir gestir eigið áncegjulega kvöldstund og farið héðan með góðar endurminningar. Þetta eru orð að sönnu og óskum við á blaðinu Har- moníkuunnendum Vesturlands gæfu og gengis í framtíðinni með von um áframhaldandi góða samvinnu. H.H. Guðmundur Samúelsson og Guðrún Jóhannsdóttir. Boðsgestir H. U. V. komu saman daginn eftir 10 ára af- mcelið á heimili þeirra á Akranesi. Molar. .. Uppörfandi framtak ÞaÐ gladdi okkur útgefendur blaðs- ins þegar áhugavert bréf barst frá for- manni H.U.V. Gunnari Gauta Gunn- arssyni snemma í mars. Undanfari þess var símtal við Gunnar þar sem hann velti fyrir sér ýmsum leiðum til að innheimta áskriftargjöld blaðsins. Fyrrnefnt bréf sem kom nokkru síðar fjallaði um að stjórn H.U.V. hefði tal- ið rétt að ganga í ábyrgð á áskriftar- gjöldum fyrir sína félagsmenn næstu tvö áskriftarár. Þetta er mikið öryggi fyrir blaðið og viljum við þakka stjórn H.U.V. fyr- ir fordæmið. Útgefendur. Flest blöð þar með harmoníkublöð breyta sjaldnast um nafn. Ekki er það algild regla því norska harmoníku- blaðið Trekkspilleren hefur skipt um nafn þrisvar á jafnmörgum árum. Ýmsar orsakir má nefna eins og þegar nafninu er breytt yfir í Titano bladet, mikið af efni blaðsins fjallaði um það sem gerðist á Titanohátíðinni var nokkurskonar biblía hennar, manna- skipti í stjórn blaðsins og fl. Svo kem- ur á daginn að leggja verður Titanó hátíðina niður, (eftir tíu ár) aðallega að sagt er vegna rógburðar fjölmiðla. Til að halda áfram útgáfunni án stuðnings Titano fékk blaðið víðari merkingu og var nú gefið nafnið Gammel Dans og litt til. Ábyrgðar- maður er Sigmund Dehli og ritstjóri Leif Husom. 5

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.