Harmoníkan - 31.05.1989, Blaðsíða 14

Harmoníkan - 31.05.1989, Blaðsíða 14
Hljómlistarlíf í Vestmannaeyjum um aldamót Eftir Einar Sigurðsson Fram að síðustu aldamótum var hljómlistarlíf í Vestmannaeyjum fá- brotið. Það helzta í því efni var kirkju- tónlistin. Síðustu forsöngvarar og organleikarar í Landakirkju fyrir aldamót voru þeir bræðurnir Jón og Sigfús Árnasynir, hreppstjóra, Einarssonar á Vilborgarstöðum. Jón var faðir Péturs óperusöngvara og þeirra bræðra og Sigfús Brynjúlfs tónskálds og þeirra systkina. Orgelharmoníum voru þá líklega aðeins þrjú til í Vestmannaeyjum: Landakirkju, Ofanleiti og Löndum. Einfaldar harmonikkur voru algeng hljóðfæri, fiðla ein og ein. Síðast á öldinni voru langspilin svo til alveg horfin. Langspil voru strengjahljóð- færi, strokin með boga, og lá hljóð- færið á hnjám þess, er á það lék. Sá, er einna síðast smíðaði langspil í Eyj- um, var Jón bóndi Vigfússon í Túni, faðir Guðjóns trésmiðs á Oddstöðum og þeirra systkina, dáinn rétt eftir aldamótin. Sigfús Árnason æfði karlakór. Æfingarnar voru haldnar í þinghús- inu (Borg) og konsertar í Góðtempl- arahúsinu. Rétt eftir aldamótin, 1902, fluttist A. J. Johnson, síðar bankafé- hirðir, til Vestmannaeyja og dvaldi þar í fjögur ár. Á þeim árum æfði hann karlakór, sem hélt opinbera sam- söngva. Hann þótti koma með nýja strauma í söngmennt Eyjaskeggja, þar sem hann æfði ný og í Eyjum áður óþekkt lög. íslenzka þjóðin er sönghneigð og söngelsk. Menn koma varla saman til þess að skemmta sér, svo að þeim finnist ekki, að þeir þurfi að taka lagið. Meira að segja ferðast íslend- ingar varla svo í bifreið, engu að síður þó almenningsvagnar séu og farþeg- arnir ókunnir hver öðrum, að ekki sé sungið fullum hálsi. Vekur þetta mjög athygli útlendinga. Fyrir síðustu aldamót voru Vest- mannaeyingar einhver fjölmennasti kaupstaður á landinu. Lætur að lík- um, að mikið hefur verið sungið, þar sem jafnmikið var saman komið af fólki á tiltölulega litlum stað, veizlur 14

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.