Harmonikublaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 4
Frá formanni S.Í.H.U.
.—....
Ágætu félagar.
Að þessu sinni er undirrituðum efst í
huga hvað mikið hefur verið um að vera
hjá aðildarfélögunum á sumrinu sem nú
er að líða. Margar hátiðir hafa verið
haldnar eins og sjá má á harmoniku-
blaðinu sem nú kemur út og er að þessu
sinni helgað því starfi sumarsins. Það er
gaman að sjá hvað félögin eru dugleg að
standa fyrir mótum og segir okkur að án
þessa óeigingjarna starfs væri mannlífið
á landinu miklu fátækara.
Innan skamms verður haldinn
haustfundur S.Í.H.U. að þessu sinni á
Hótel Örk í Hveragerði í tengslum við
merkisafmæli Harmonikufélags Reykja-
víkur og Harmonikufélags Selfoss. Stjórn
S.Í.H.U. hefursent útfundargögn þarsem
m.a. eru lagðartil lagabreytingar á lögum
sambandsins og aðildarfélögin hafa
væntanlega kynnt sér og hafa skoðun á
er til fundar verður komið. Stjórn sam-
bandsins hefur fundað tvisvar síðan á
síðasta aðalfundi m.a. til þess að ræða
þær breytingar sem þarna eru komnar
fram.
Þetta blað er annað tölublaðið sem
þessi ritnefnd gefur út en stefnt er að því
að gefa út þriðja blaðið fyrir jól, eins
konar jólablað og vil ég nota tækifærið
að þakka Hreini Halldórssyni ritstjóra og
hansfólki fyrirvel unnið starf. Hins vegar
er Ijóst að talsverðar breytingar þurfa að
verða til þess að þessi útgáfa geti haldið
áfram eins og sjá má m.a. á tillögum
þeim sem lagðar verða fram á fundinum
og sendar hafa verið til aðildarfélaganna.
Að lokum óska ég ykkur öllum til ham-
ingju með vel heppnað sumarstarf og
vona að starfið innan félaganna verði
gott á komandi vetri.
Með kveðju,
Jónas Þór
Annáll Harmonikufélags Þingeyinga
Starfsemi félagsins tók mið af því að
þetta árið er landsmót og því meira um
að vera en ella. Árleg samkoma með
kveðskap.bögglauppboði og dansi var
26. febrúar. Svo kaffikvöld í apríl þar sem
boðið var nemendum í harmonikuleik.
Landsmót var haldið á Norðfirði 7.-9. júlí.
Þar mættu fyrir okkar hönd, Sigurður
Hallmarsson og Aðalsteinn ísfjörð og
stóðu sig með prýði. Þangað fór líka
nokkuð stór hópur félaga.
Útileguhátíðin varhaldin að Breiðumýri
22-24 jútí. Þá heimsóttu okkur félagar í
Harmonikufélagi Rangæinga 19-21 ágúst.
Aðalfundur var haldin að venju í
október og árshátíð í nóvember,
ennfremur eru fundir fyrsta sunnudag
hvers mánaðar yfir veturinn.Félagar eru
nú um 75 og heiðursfélagar 17. Stjórn
félagsins skipa: Sigurður Ólafsson
formaður, Þórhildur Sigurðardóttir
gjaldkeri, Kristján Kárason ritari, Jóel
Friðbjarnarson og Sigríður ívarsdóttir
meðstjórnendur. Kristján Kárason ritari.
Pistill frá H.U.H. 25 ára
Starfsemi líðandi árs hefur verið mjög
lífleg og er ekki nokkur vafi á að kaup H U H
á húsnæði fyrir starfsemina gerir gæfu-
muninn. Ef við byrjum á þorrablóti sem við
stóðum fyrir, var vel mætt, allir skemmtu
sér vet og álitu þetta komið til að vera.
Við stóðum fyrir dansæfingum hálfs-
mánaðarlega og félagsvist einnig hálfs-
mánaðarlega. Mætingar voru mjög misjafn-
ar eins og gengur á þessar uppákomur
okkar, en allir voru ánægðir með framtak
okkar í þessum málum.
Bolludagskaffi með tónlist ungra nema
Tónlistarskólans og kennara þeirra er fastur
liður hjá okkur og hefur verið til
margra ára. Hefur þá ágóði runnið
til ýmissa félaga sem hafa með að
gera eflingu tónlistar í héraðinu.
Húnavershátíð var haldin í níunda
sinn um jónsmessuhelgina í sam-
starfi við F.H.S. eins og undanfarin
ár. Veðrið var gott eins og alltaf er í
Húnaveri. Mikill fjöldi fólks sótti hátíðina og
dansað af krafti bæði föstudags og laugar-
dagskvöld.
Tónleikar á laugardeginum voru fjöl-
breyttir eins og undanfarin ár, ungir sem
eldri létu Ijós sitt skína, við góðar undirtektir
gesta. Grillið var á sínum stað og kveikt
upp fyrir kl. 6.
Um miðjan júlí var Húnavaka haldin á
Blönduósi. Mörg hundruð ef ekki þúsund
manns mættu á staðinn og tóku þátt í
skemmtiatriðum sem boðið var upp á. H U
H lét ekki sitt eftir liggja og spilaði í
Félagsheimili Blönduós á föstudagskvöld
eftir skemmtidagskrá Ómars Ragnarssonar.
Vegna fjölda gesta var ákveðið að við
spiluðum í Ósbæ, húsnæðinu okkar á
laugardagskvöld í og með til að létta á
Félagsheimilinu en þar spiluðu Stuðmenn.
Vel tókst til og var dansað frá kl. 22-02.
Góðir gestir komu í heimsókn til okkar
helgina 18-20 ágúst en þar var Harmoniku-
félag Þingeyinga á ferð. Gistu þau á hótelinu
á Húnavöllum, og fóru nokkrir okkar og
spiluðu þar á föstudagskvöldið 18. Á
laugardaginn fóru þau í skoðunarferð um
Þing og Vatnsdal en komu til okkar í Ósbæ
um kvöldið í létta máltíð og þar á eftir dun-
aði dansinn fram eftir nóttu. Mjög gaman
var að taka á móti þessu glaða fólki og
teljum við þetta efla og styrkja félögin að
fara í heimsóknir til annara félaga. Við
vonum að framhald verði á. Þetta fer nú að
verða gott frá H U H. Æfingar og félagsstarf
erhafið hjá okkur því dansleikir eru fram-
undan og þá þíðir ekki annað en reyna að
gera sitt besta.
Við sendum öllum bestu kveðjur með
von um gott framhald á harmonikuleik um
alla framtíð.
HUH