Harmonikublaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 11
Svíþjódarferd
Sænski harmonikusnillingurinn, Lars
Karlsson, er íslenskum harmoniku-
unnendum að góðu kunnur. Hann
kom hingað til lands fyrst í tengslum
við landsmótið á ísafirði. í tilefni af
20 ára afmæli Harmonikufélags
Reykjavíkur kom hann hingað síðast-
Þarna var margt að sjá. í harmoniku-
versluninnni voru til sölu u.þ.b. 300
harmonikur af ýmsum stærðum og
gerðum, bæði nýjar og notaðar.
Þarna skoðuðum við og prófuðum
harmonikur og mátti heyra spilað í
hverju horni. Karlssonsmusik selur
▲ " 1 Sn Jf*1" -V 1
y|^ i ^RI
ÉL iLr(' ^ 1 ^1 * JiH^.
lí m .
rjj^^H ||pf^ 1
Hljómsveit Ólafs Kristjánssonar á útitónleikum í Kungsbacka.
liðinnveturásamtnorska harmoniku-
snillingnum 0ivind Farmen sem
margir þekkja. Þeir léku hér saman á
tónleikum í Salnum f Kópavogi og á
Norðfirði.
Heimsókn þessara snillinga varð
kveikjan að hugmynd um að efna til
ferðar til Svíþjóðar, á vegum
Harmonikufélags Reykjavíkur, og
heimsækja Lars Karlsson. Guð-
brandur Jónatansson félagi í HR selur
harmonikur frá Karlssons Musik, sem
er fjölskyldufyrirtæki Lars, og
skipulagði hann ferðina.
Ferðin varfarin 17.-21. mafsl. Lagt
var af stað frá Keflavík um kl. 15:30
og lent í Gautaborg um kl. 20:00 að
staðartíma. Við fengum hótel í
Kungsbacka sem er fyrir sunnan
Gautaborg. Eftir að ferðalangar
höfðu komið sér fyrir á herbergjum
var hist niðri á bar og spilað þar fram
undir miðnætti.
Fimmtudagsmorguninn 18. maí
tókumviðrútuum kl.iotil Áskebacka
í Fjárás sem er nokkuð fyrir sunnan
Kungsbacka. Lars rekur þar ásamt
foreldrum sínum og bróður harmon-
ikuverslun, verkstæði og safn. Vel var
tekið á móti okkur og dvöldum við
hjá fjölskyldunni í fjóra klukkutíma.
m.a. DISE og Bengts harmonikur.
Þær vöktu óskipta athygli okkar,
ferðalanganna, vönduð hljóðfæri
með einstaklega fallegan tón.
Safnið var skoðað og verkstæðið
og fræðst um hitt og þetta sem við
kemur harmonikunni. Fjölskyldan
bauð öllum hópnum upp á pizzur og
á eftir spiluðu þau saman, Lars og
foreldrar hans, Siv og Ingvar.
Heimsóknin til þessarar fjölskyldu
var tvímælalaust það eftirminni-
legasta í ferðinni.
Sama dag voru haldnir tónleikar á
torginu í Kungsbacka þar sem
léttsveit HR lék svo og minni grúppur
félaga í HR. Síðan mætti Lars með
hljómsveitina sína sem lék nokkur
lög. Veður var fremur leiðinlegt,
rigning og svalt og var því fjöldi
áheyrenda ekki mikill.
Eftir tónleikana fór allur hópurinn
saman út að borða í nálægu
veitingahúsi.
Daginn eftirfóru nokkrirúrhópnum
aftur til Karlssons til að skoða enn
betur hin áhugaverðu hljóðfæri.
Kvöldið eftir hittum við félaga úr
harmonikufélagi Gautaborgar og
Karlssonsfjölskylduna á sveitabæ í
Fjárás. Þar er hlaða sem eigendurnir
Hljómsveit heimamanna.
Hlöðuball.
Lars, Siv og Ingvar Karlsson.
hafa innréttað til skemmtanahalds. Þarna var
grillað fyrir mannskapinn og á eftir var stiginn
dans við undirleik ýmissa hljómsveita, íslenskra
og sænskra. Þarna upplifði fólk ekta sænska
sveitastemningu eins og við höfum oft séð hana í
sænskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Sumir höfðu á orði að ekkert vantaði nema Emil í
Kattholti með sín strákapör. Laugardaginn
notaði fólk til verslunarferða og seinnipart ,
dags fóru nokkrir í Liseberg skemmtigarðinn.
Sunnudaginn 21. var haldið heimleiðis eftir
skemmtilega heimsókn til Svíþjóðar.
Þess má í lokin geta að eftir þessa ferð hafa
a.m.k. 6 félagar í HR eignast Dise
harmonikur frá Karlssons Musik.