Harmonikublaðið - 01.12.2012, Page 2

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Page 2
Qfnap, Ágætu harmonikuunnendur Það er helst að frétta frá síðustu grein sem égskrifaði íblaðið aðS.Í.H.U. hélt aðalfund sinn að Laugum í Sælingsdal og kom það í hlut Nikkólínu að sjá um undirbúning og annað er varðaði fundinn. Aðstaða öll að Laugum ertil mikillar fyrirmyndar, fundarað- staða mjög góð og eins gistiaðstaðan með þvf besta sem gerist. Ég vil nota tækifærið og færa öllum aðilum innan Nikkólínu, er komu að undirbúningi og framkvæmd fundarins okkar bestu þakkir fyrir hlýjar og góðar móttökur. Aðalfundurinn var mjög góður og málefna- legur. Ákvarðanirteknarervarða starfsemi sambandsins á þessu starfsári. Stjórn sam- bandsins er að mestu óbreytt, þess ber þó að geta að Melkorka Benediktsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnar- setu sem varaformaður og var Elísabet Hall- dóra Einarsdóttir kjörin í hennar stað. Vil ég þakka Melkorku fyrir vel unnin störf í þágu sambandsins og óska henni alls góðs í fram- tíðinni. Melkorka mun þó ekki alveg sleppa hendinni afstarfseminni, þvíhún mun áfram halda utanum fjármál og nafnaskrá áskrif- enda Harmonikublaðsins. Elísabetu óska ég til hamingju með kosninguna og er það tilhlökkunarefni að fá að starfa með henni og stjórnarmönnum öllum á komandi ári. Á fundinum var nokkuð rætt um Harmoniku- blaðið og vefsíðu sambandsins og létu fundarmenn í Ijós ánægju sína með blaðið og hvað það hafi tekið miktum breytingum. Varðandi vefsíðuna urðu nokkrar umræður, allir lýstu ánægju sinni með útlit hennar, en að sama skapi voru fundarmenn óhressir með hvað í raun síðan er lítið notuð. Kynn- ing á harmonikunni var nokkuð til umræðu og voru ýmsar góðar hugmyndir látnar í Ijós og má þar nefna að Guðrún Guðjónsdóttir hefur staðið fyrir heimsóknum í leikskóla höfuðborgarinnarvið góðar undirtektir. Eins hefur undirritaður gert slíkt hið sama. Tillaga kom um að sambandið stæði fyrir að útbúa gögn sem samræmdu hvað gera skuli í heimsóknum í leikskólana, t.d. laga- val, leiki og dans fyrir yngstu börnin. Það er deginum Ijósara að þar á að byrja á að kynna hljóðfærið. Ekki var gengið frá því á aðalfundinum hvar næsti fundurverður haldinn, en þess var farið á leit við Harmonikufélag Rangæinga að þeir taki að sér að halda aðalfundinn haustið 2013. &2 Svar vegna þess mun berast stjórn á næstu vikum. Eins og ákveðið var á aðalfundi 2011, að halda æfingabúðir fyrir ungmennin okkar, var gengið til samstarfs við Harmóníkuaka- demíuna á íslandi og var stefnt að því að æfingabúðirnaryrðu haldnar að Reykjum í Hrútafirði dagana 19. - 21. október 2012. Haft var samband við alla tónlistarskóla og harmonikukennara um að senda sem flesta nemendur til þessara æfingabúða, en því miður verður að segja að ekki var um næga þátttöku að ræða og þess vegna var fallið frá því að halda þessar æfingabúðir. Hafa ber í huga að allur kostnaður við svona mót, akstur og annað hefur hækkað umtalsvert frá því að síðustu æfingabúðir voru haldnar og er það eflaust skýringin á því hvernig fór. Þetta er því miður leitt að svona skyldi fara, því stjórn og aðrir er að þessum málum komu voru mjög á þvf að þessar búðiryrðu vel sóttar og að áhugi væri fyrir hendi um land allt að endurvekja þetta starf fyrir ungmennin okkar. Það verður reynt til þrautar á nýju ári að gera þessar æfingar- búðirað veruleika. í byrjun næsta árs, eða í enda mars eða apríl verður efnt til harmonikukeppni fyrir ung- mennin okkar og verður hún með svipuðu sniði og síðast. Stjórnin mun leggja sig fram um að þessi keppni verði vel kynnt og að öll framkvæmd verði sem best. Bréfverða send öllum formönnum aðildar- félaga S.Í.H.U. varðandi málið og eins verða tónlistarskólar og kennarar upplýstir um þessa uppákomu. Það ervon mín að aðild- arfélögin verði dugleg að senda unga og efnilega harmonikuleikara til keppninnar, en kepptverðuríþremuraldurshópum. Ég geri mér vonir um að hægt verði að fá Frið- jón Hallgrímsson til að stýra þessum við- burði, en hann er sá eini sem hefur reynslu af keppni sem þessari. Landmót S.Í.H.U. verður haldið sumarið 2014 að Laugum í Reykjadal og munu Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð og Harm- onikufélag Þingeyinga standa að þessu móti. Undirbúningur að mótinu er þegar kominn í fullan gang og er það trú mfn að þessi tvö sterku aðildarfélög muni leggja sigfram um að gera næsta landsmót enn betra en fyrri mót. Stjórn sambandsins hefur skipað varaformann og ritara sambandsins sem fulltrúa sína í landsmótsnefndina. Sendi baráttukveðjur til undirbúningsnefndar næsta landsmóts og óska henni velfarnaðar í starfi. Nú hefur það verið ákveðið að Útileguhátíð S.Í.H.U. verði haldin að Árbliki í Dölum dagana 12. - 14. júlí 2013. Það er von stjórnar sambandsins að hátíðin verði okkur til sóma og að sem flestir sjái sér fært að mæta á hátíðina og taki með sér gesti. Þetta er ein af fjáröflunarleiðum sambandsins og er þvf árfðandi að vel takist til. Nú fer hátíð Ijóss og friðar senn að ganga í garð og brátt er árið 2012 liðið í aldanna skaut. Ég vil þakka öllum mínum samstarfs- mönnum ístjórn, formönnum aðildarfélag- anna, svo og öllum harmonikuunnendum fyrir frábært samstarf á árinu 2012. Það er von mín að árið 2013 verði okkur öllum gæfuríkt og gott harmonikuár. Gleðilega jólahátíð, Gunnar Kvaran, formaður í Á Leiðrétting í síðasta tölublaði taldi formaður landssambandsins upp þá er komið höfðu fram á útileguhátíðinni í Árbliki ísumar. Honum láðist að minnast á Vindbelgina, sem léku á báðum dansleikjunum, auk þess að koma fram á tónleikunum á laugardeg- inum. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Leiðrétting í afmælisgrein um Hermóð Alfreðsson var missagt að Hermóður hafi verið dyra- vörður í Brautarholti 4, þar sem Guðjón Matthíasson lékfyrir dansi. Hermóðurvar aðeins einu sinni dyravörður, en kom fram sem söngvari og aðstoðarmaður. V___________________________________________________________________________J

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.