Harmonikublaðið - 01.12.2012, Síða 6

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Síða 6
HAUSTFER0 HARMONIKUFÉLAGS VESTFJARÐA 2012 í ferðanefnd harmonikufélagsins að þessu sinni voru Edda Arnholtz og Elínbjörg Snorra- dóttir (Lóa), báðar á Mýrum í Dýrafirði og Hólmgeir Pálmason, Þingeyri. Lagt var upp í haustferðina með rútu frá ísafirði kl. 16 þann 31. ágúst og farþegar tíndir upp á leiðinni til Þingeyrar þar sem þeirsíðustu bættust íhópinn ogvoru þá alls 40 manns. Bílstjórinn var ungur maður, pólskur að uppruna og reyndist í alta staði eins og best varð á kosið. Veður var frekar leiðinlegt, þokuruddi og dimmtyfir. Leiðin frá Þingeyri liggur fyrstyfir Brekkuháls, svo um Brekkudal og síðan yfir Hrafnseyrarheiði sem mörgum þykir óárennileg. Vegurinn á Brekkudal var afleitur, holur margar og sumar stórar, þriggja hossa holur. Sumir voru dálítið uggandi þegar komið var á Hrafnseyrarheiðina, rútan stór, bílstjórinn ungur, vegur hlykkjóttur, bratturogvíða hátt niður að sjá. En áhyggjur allra hurfu þegar f Ijós kom að bílstjórinn ók bæði varlega og djarflega. Varekið inn með Arnarfirði ogyfir Dynjandisheiði að Flókalundi. Þar var áð stutta stund. Sfðan var ekið rakleitt til Pat- reksfjarðar og nú var slegið undir nára þvf sá vegur er malbikaður. Nær alla leiðina sátu framhleypnir grínarar við hljóðnemann í rútunni og fluttu gamanmál sem þeir töldu vera og hlógu mest að þeim sjálfir. Þegar komið vartil Patreksfjarðarvar haldið til gististaða sem voru þrír, Stekkaból, Hótel Ráðagerði og Eyrar. Menn tóku við her- bergjum, báru inn farangur og snurfusuðu sig. Að því loknu safnaðist mannskapurinn saman f rútunni á ný og hélt til samkomu- húss Patreksfirðinga. Þargeturá að líta einn stærsta samkomusal á íslandi utan Reykja- víkur. Harmonikufélagið fékk afnot af and- dyrinu sem er vfðfeðmara en flest samkomu- húsönnuráVestfjörðum. Þarvarborin fram dýrindis súpa og brauð sem neytt var af bestu lyst. Eftir matinn tóku harmoniku- leikarar og aðrir spilarar upp tólin sín. Magnús Reynir Guðmundsson mundaði gítarinn og Hólmgeir Baldursson tromm- urnar. í hljómsveitinni voru einnig hinir landskunnu tónlistarmenn Vilberg Vilbergs- son (Villi Valli) og Baldur Geirmundsson (B.G.). Ennfremur Dýrfirðingarnir Sigurður Fr. Jónsson, Gunnar Gísli Sigurðsson, Þórður Sigurðsson, Kristján Gunnarsson, Gunnar Bjarnason, Hreinn Þórðarson allir búsettir á Þingeyri, ogÁsvaldurGuðmundsson, Berg- sveinn Gíslason og Elínbjörg Snorradóttir (Lóa) til heimilis í Mýrahreppi hinum forna norðan Dýrafjarðar, öll með harmonikur, og sfðast en ekki síst var hljómborðsleikarinn Líni Hannes Sigurðsson, Þingeyri, með íför. Söngvari með hljómsveit Dýrfirðinga sem nefnir sig „Harmonikukarlarnir og Lóa” var Edda Arnholtz, Mýrum. Aðaldansarar á harmonikuböllum Vestfirðinga eru Ingibjörg Þorláksdóttir og Hólmgeir Pálmason, Þing- eyri, sem nýlega gengu í hjónaband. Af því tilefni báru þau fram ýmsar krásir fyrir mann- skapinn sem þarna var saman kominn. Var það góð ábót ofan á súpuna. Þegar menn höfðu stillt saman hljóðfæri sín brustu á tónleikar miklir þar sem hver og einn spilaði eftir sinni getu. Edda söng og nýgiftu hjónin leiddu dansinn. Kom nú í Ijós Glæsilegur hópur í fögru umhverfi Arnarfjarðar. Mynd: Kristján Gunnarsson á Þingeyri. Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 pg 844 0172. Netfang: 05sigu@internct.is Veffang: www.nedsti.is

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.