Harmonikublaðið - 01.12.2012, Síða 7

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Síða 7
að fleiri voru þarna fótafimiren þau. Gleð- skapur þessi stóð fram yfir miðnætti en þá héldu menn til sinna náttbóla. Sváfu menn vel af nóttina og fram á dag, laugardaginn 1. september. Ekki var uppörvandi út að líta um morguninn. Það gekk á með rigningar- suddahryðjum. En á öllum gististöðunum var borinn fram ágætur morgunverður og gerði fólk honum góð skil í ró og næði. Var Áð í Flókalundi. Mynd: Kristján Gunnarsson á Þingeyri. notalegt að sitja inni í hlýjunni og sjá regnið streyma niður rúðurnar. En ekki dugði að doska lengi því ákveðið hafði verið að fara í rútuferð þennan dag að hinu fornfræga prestssetri í Sauðlauksdal þar sem mörg frægðarmenni hafa setið, s.s. Björn Hall- dórsson sem sumir nefna fyrsta kartöflu- bónda á íslandi. Upp úr hádeginu safnaðist mannskapurinn í rútuna. Hafði þá bæst í hópinn Magnús Ólafs Hansson, áður Bolvíkingur, nú alltmú- ligmann á Patreksfirði. Var hann fenginn til að vera fararstjóri í þessari ferð. Hann byrj- aði á að segja að hann gæti ekkert frætt okkur um Patreksfjörð eða Patreksfirðinga, hann væri svo nýflutturá svæðið. En annað kom í Ijós. Magnús Hansson lokaði ekki munni allan daginn, sagði til skiptis grín- sögur af íbúum þarna eða fór með fróðleik um lífsbaráttu þeirra fyrr og nú. Þó veður væri ekki ákjósanlegt nutu menn ferðarinnar hið besta og átti Magnús drjúgan þátt í því. Höfð var viðdvöl í flugskýli á Sauðlauksdals- flugvelli, með leyfi húsráðanda og þartöfruð fram kaffiveisla upp úr nestisboxum kvenna. Eftir kaffið var haldið heim að Sauðlauksdal. Þar má segja að Snorrabúð sé stekkur. Seinasti prestur sem sat staðinn var séra Grímur Grímsson. Hann flutti á brott árið 1963. Seinasti ábúandi sem hér bjó flutti brott 1975. Fólk gekk frá rútunni niður í kirkjugarðinn, hugaði að legsteinum og kíkti inn um kirkjugluggana, því kirkjan var læst. Síðan var snúið aftur til Patreksfjarðar og hlýtt á boðskap Magnúsar Hanssonar á leiðinni. Sesf oð snædingi á Patró. Mynd: Kristján Gunnarsson á Þingeyri. Reynir og Hólmgeir Baldursson. Hina hljóm- sveitina skipuðu Harmonikukarlarnir og Lóa undir stjórn Guðmundar Ingvarssonar, Þingeyri, sem kom akandi á sínum einkabfl yfir fjöll ogfirnindi. Léku sveitirnar til skiptis, klukkustund í senn, til kl. 2. fór hópur fólks úr rútunni. Var því komið fast að leiðarlokum f þessari bráðskemmtilegu ferð sem heppnaðist prýðilega að flestu leyti, en veðrið hefði mátt vera betra. Valdimar H. Gíslason, Mýrum, Dýrafirdi 7Ö> Allt gekk þetta eftir. Á mínútunni kl. 22 riðu Dýrfirðingarnir á vaðið með söngkonuna í broddi fylkingar og Ingibjörg og Hólmgeir tóku fyrstu danssporin. Dyraverðir voru skipaðir og fólk sett í miðasölu. Ánauð var ekki mikit á þessu fólki, því kl. 23 var bara einn búinn að borga sig inn. Annar rak inn höfuðið og var að hugsa sig um. Kl. 24 höfðu þrír greitt aðgangseyri. Svo fór að lokum að 21 af Patreksfjarðarsvæðinu borgaði sig inn. Þrátt fyrir þetta var ballið fjörugt og skemmti- legt og mikið dansað því margir fylgifiskar harmonikuspilaranna eru mikið dansfólk. Ballinu lauk á tilsettum tfma og menn gengu ánægðirtil náða. En sennilega mun líða drjúgur tími þangað til vestfirskir harmon- ikuleikarar staldra aftur við á Patreksfirði. Er litið var út um glugga sunnudaginn 2. september kom í Ijós að veður var hið feg- ursta, glampandi sól og logn. Patreksfjörður skartaði sfnu fegursta. Fólk naut morgun- verðarins og útsýnis yfir lognkyrran fjörðinn. Gert var upp við gestgjafana og kl. 13 voru allir komnir í rútuna og stefnan tekin heim á leið. Ekið var yfir Kleifaheiði oginn Barða- strönd í sólarblfðu með útsýni til allra átta. í Flókalundi var gerður stuttur stans, menn réttu úr sér og sumir fengu sér bita. Margir voru með myndavélar á lofti. Enn var haldið af staðyfir Dynjandisheiði ogekið að foss- inum sem heiðin dregurnafn sittaf. Þarvar staldrað við góða stund, fossarnir myndaðir og ferðahópurinn allur með Dynjanda í baksýn. Síðan var ekið rakleitt til Þingeyrar. Eins og á vesturleiðinni fóru margir í hljóð- nemann oggerðu að gamni sfnu með flutn- ingi grínsagna. Það gefur þessum sögum gildi að þær eru upprunnar á heimaslóðum ogsannleikskorn íþeim flestum.Á Þingeyri Þegar f náttstað kom tóku menn að snurfusa sig fyrir kvöldið, því nú stóð fyrir dyrum kvöldverðarveisla og ball í samkomuhúss- anddyrinu. Þarvoru allirmættirísínufínasta pússi um sjöleytið og snæddu Ijúffengan veislumatsem Harpa ogVíkingurframreiddu með mikilli prýði. Að lokinni máltíð hófst dagskrá sem Magnús Reynir Guðmundsson stjórnaði. Sjálfur flutti hann snjalla ræðu og fór með gamanmál, en í þvf er hann öðrum fremri. Með ýtni tókst honum að koma minni spámönnum á þessu sviði í pontu. Varð úr þessu góður gleðskapur fram eftir kvöldi. Á mínútunni kl. 22 átti að hefjast fjáröflunar- dansleikur tónlistarfólksins. Var skipað í tvær hljómsveitir. í annarri voru ísfirðing- arnir landskunnu Villi Valli, B.G., Magnús

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.