Harmonikublaðið - 01.12.2012, Side 8
ANNALL HARMONIKU-
FÉLAGS ÞINGEYINGA 2012
Starfið hjá Harmonikufélagi Þingeyinga á
árinu hefur verið með hefðbundnum
hætti.
Þann 7. janúar héldum við bögglauppboð
hér á Breiðumýri sem tókst Ijómandi vel og
skilaði ágætis hagnaði, þökksé þeim sem
lögðu til böggla og kræsingar. Alltaf eru
kökur, flatbrauð, tertur og annað góðgæti
vinsælast og svo þeim sem af örlæti keyptu
góssið. Gjaldkerinn var að vonum ánægður
með kvöldið.
Félagsfundir voru haldnir fyrsta sunnudag
í mánuði, nema í apríl þar sem ákveðið var
að hafa einn fund fyrir apríl og maí og var
sá fundur 29. apríl. Spilarar glöddu okkur
fyrir fundina eins og venja er og voru fundir
vel sóttir. Danskvöld voru svo vel sótt að
þau komu út í gróða og mun það vera
nýnæmi, hvet égfólktilað mæta ekki síður
velívetur, nú þegardanskvöldin eru komin
aftur af stað, gott tilefni til að liðka sig hitta
fólk og máta dansskóna.
Breiðdalsferðin var farin 14.-15. aprfl, gist
var í Staðarborg að venju. Góð þátttaka var,
rétt um 50 manns. Eins og venjulega voru
félagar úr Kveðanda með og flugu vísur í
rútunni, fólk var að liðka sig fyrir kvöldið.
Góð aðsókn var á ballinu í Staðarborg enda
bíður fólk í nágrenninu spennt ár hvert
þegar fer að líða á veturinn að fá þessa
bráðskemmtilegu og hressu Þingeyinga
austur með spilarana okkar í fararbroddi
og ómissandi Kveðanda þátt. Dansað var
af lífi og sál og einhverjir ekki búnir að fá
8
nóg kl. 02:00 svo framlengja varð ballið
fyrir þá sem áttu enn eftir að taka nokkra
dansa.
Harmonikudagurinn var svo 5. maí, komið
var saman á Breiðumýri að venju. Spilar-
arnir voru á breiðum aldri, frá rúmlega átt-
ræðum og niður í grunnskólanemendur frá
Hafralækjarskóla. Vonandi eigum við eftir
að heyra meira frá þessu unga fólki á kom-
andi árum og jafnvel lifa að dansa við þeirra
harmonikuleik. Að venju buðu félagar upp
á veitingar og voru þær ekki af verri end-
anum, dagurinn tókst í alla staði mjög vel.
Grillkvöld var svo í Ljósvetningabúð 10. júní,
góð mæting var. Grillmeistarar voru til
aðstoðar þeim sem vildu. Þegar allir voru
mettirtóku spilararnirokkarupp hljóðfærin
og spiluðu fyrir okkur. Dansað var um tíma,
þetta var skemmtilegt og gott kvöld.
Þann 27.-29. júlf var Breiðumýrarhátíðin
sem er okkar stærsti viðburður, það var að
sjálfsögðu sól og blíða eins og venjulega.
Gestir fóru að tínast á svæðið á fimmtu-
dagskvöldið og einhverjir prufuðu dans-
pallinn þá strax og líkaði vel. Það vantaði
vístekki undirspil, enda eru margir f þjálfun
í dansi og spilamennsku þar sem harmon-
ikuhátíðir eru orðnar flestar helgar sum-
arsins frá miðjum júní til seinnipartinn í
ágúst og er það gott. Dans kemur íveg fyrir
andlega og líkamlega hrörnun. Hátíðin
byrjaði formlega á föstudagskvöld með
dansleikjum í tjaldinu og í salnum eins og
venja er. Dansað var frá kl. 10:00 til 02:00
og var mikið fjör. Á laugardaginn voru tón-
leikar um miðjan dag, með frábærum spil-
urum, einnig sungu tvær ungar stúlkur með
afa sínum og var það mjög flott. Á tónleik-
unum afhenti formaðurSambands harmon-
ikuunnenda Aðalsteini ísfjörð viðurkenn-
ingu fyrir sín störf og kynningu á
harmonikunni um langt skeið, er Aðalsteinn
vel að þvf kominn. Um kvöldið voru auð-
vitað dansleikir bæði ítjaldinu og inni í sal
og var ekki minna fjör en kvöldið áður,
dansað var frá kl.io:oo til 03:00, en þá voru
sumir að verða mettir af dansi en aðrir
höfðu næga orku og héldu fjörinu áfram á
tjaldstæðinu. Hátíðin tókst-í alla staði vel
og margir höfðu á orði að hún væri með
þeim betri, þá reikna ég með af þingeyskri
hógværð að það sé á landsvísu.
Sumarferðin var farin 18.-19. ágúst og
stefnan sett á Vopnafjörð. Ekki voru mjög
margir sem fóru í þá ferð en það var afskap-
lega góðmenntoggaman. Þær Ffa og
Sigríður voru frekar daufar við yrkingar í
rútunni enda vantaði þá Davíð og Friðrik til
að örva þær. Gist vará HótelTanga og borð-
aður var virkilega góður kvöldmatur og
stefnan sett á stórdansleik í félagsheimilinu
Miklagarði. Það er mjög fínt hús og salurinn
flottur. Ekki var nú biðröð út á götu við
miðasöluna þegarvið komum þangað eftir
að spilarar og aðstoðarmenn höfðu stillt
upp hljóðfærunum. Svo einkennilegt sem
það er hafa Vopnfirðingum ekki borist fréttir
af hversu skemmtilegir Þingeyingar eru.
Þetta er örugglega eini staðurinn þarna
austur frá sem ekki veit af þessu miðað við
hvað vel er sótt í Staðarborg. En þökk sé
þeim tæpa tug sem kom og skemmti sér
með okkur og voru mjög ánægð, ekki síst
þegarformaðurinn okkarstjórnaði marsi á
ballinu. Spilararnir hafa sjatdan verið betri
ogvarfólkduglegtaðdansa, en hefði mátt
vera fleira. Á heimleiðinni var komið við á
Þórshöfn. Súpa og brauð beið okkar á Hótel
Norðurljósum á Raufarhöfn. Keyrt var í sól
og blíðu í Ásbyrgi og stoppað þar. Ásgeir
og Jón Sigurjónsson tóku upp harmonik-
urnar og spiluðu í góða veðrinu sem varð
til þess að formaðurinn fékk fiðring í fæt-
urna og smellti sér í dans með frúna. Þetta
vakti eftirtekt og aðdáun þeirra sem voru í
Ásbyrgi og kom fólktil að hlusta og horfa,
enda góð kynning á félaginu og harmonik-
unni sem er jú markmið okkar allra.