Harmonikublaðið - 01.12.2012, Page 10

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Page 10
FELAG HARMONIKU- UNNENDA Á SUÐURNESJUM Félag harmonikuunnnenda á Suðurnesjum F.H.U.S. hlaut menningaruerölaun Reykjanesbæjar, Súluna, á síðasta ári Súlan er afhent árlega verðlaunahöfum til eignar, eftir ákvörðun Menningarráðs Reykjanesbæjar þvífélagi, hópum eða ein- staklingum, sem þykja hafa skarað fram úr með starfi sínu að menningarmálum fyrir bæjarfélagið og bæjarbúa það árið sem verðiaunin eru veitt. Menningarverðlaunin eru stytta af hinum glæsiiega fugli súlunni, sem gerð er úr silfri, hönnuð og gerð af listakonunni Elísabetu Ásberg, sem ættuð er úr Keflavík, Reykjanesbæ. Súian er einnig tákn Reykjanesbæjar í skjaldarmerki og fána bæjarfélagsins. Menningarverðlaun Reykjanesbæjar eru ailtaf veitt við hátíðlega athöfn í Listasal Reykjanesbæjar í DUUS húsum að við- stöddum fuiltrúum úr bæjarstjórn, menn- ingarráði, menningarfulltrúa Reykjanes- bæjaroggestum. Menningarverðlaunahafar flytja verk sín eða sýna eftir atvikum við athöfnina. Við verðlaunaafhendinguna flutti F.H.U.S. frumsamin lög eftir tvo með- limi félagsins, Kreppuvalsinn, vals eftir Víking Sveinsson og Bikardagurinn swing jive eftir Þórólf Þorsteinsson. Starf F.H.U.S. hefur verið mjög líflegt og æfingar reglulega einu sinni íviku. Félagið Myndin var tekin á Landsmótinu á Neskaupstað 2005. ífremri röð: SigurdurÁmundason, Katrín Sigurdardóttir, Fjóla Oddgeirsdóttir, Þórólfur Þorsteinsson, Gestur Fridjónsson, Baldvin Ari Elísson, Fridrik fvarsson. Aftari röd: Víkingur Sveinsson, Konrád Fjeldsteð, AndreasÁrni Baldursson og EinarGunnarsson. kemur fram við ýmsar athafnir, svo sem stærstu hátíð Suðurnesjamanna Ljósanótt, Sólseturshátíð í Garði, Sandgerðisdögum í Sandgerði. Félagið hefur flutt tónlist á dansleikjum, leikið á stofnunum, hjá ýmsum félögum, fyrirtækjum, í afmælum, brúðkaupum, útförum og harmoniku- messum í Keflavíkurkirkju, Útskálakirkju og Hvalsneskirkju. Afhending Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar, þykir mikill heiður þeim er hana hlýtur og er harmonikutónlistinni til mikils sóma og umfjöllun um hana ífjöl- miðlum eykur áhugann á hljóðfærinu. Með bestu kveðju, Baldvin Elís Arason ístjórn F.H.U.S. SAMSTARF LEIKFELAGS AKUREYRAR OG FÉLAGS HARMONIKUUNNENDA VIÐ EYJAFJÖRÐ Samstarf Leikfélags Akureyrar og Félags harmonikuunnenda við Eyja- fjörð varð til nú á haustdögum þegar undirbúningur að sýningunni Leigu- morðinginn hófst. Leikstjórinn, Egill Heiðar Anton Pálsson, vildi kalla til tuttugu harmonikuleikara sem tækju virkan þátt í sýningunni. Undirritaðri var strax Ijóst að það yrði ef til vill erfiðasta verkefni haustsins að finna þennan mannskap og þó voru verkin ærin. Kallaðurvarsaman fundurundir stjórn Filippíu Sigurjónsdóttur og verkefnið kynnt félögum. Úr varð að til liðsvið okkur komu sex manns sem spiluðu á við tuttugu. Sorglegtvarað í byrjun ferlisins veiktist Ingimar Harðarson og eins og kunnugt er féll hann frá í síðasta mánuði. Við sendum fjölskyldu hans og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Eftir stóðu Davíð Jónsson, Eva Margrét Árna- dóttir, Guðmundur Sigurpálsson, Linda Björk Guðmundsdóttir og Val- berg Kristjánsson, Númi Adólfsson kom inn á seinni stigum. Við kunnum harmonikufélaginu og þessum frá- bæru listamönnum okkar bestu þakkir fyrir samstarfið sem var ákaflega skemmtilegt, hvetjandi og gefandi. Við vonum svo sannarlega að aftur gefist tækifæri til samvinnu og óskum félaginu alls hins besta í framtíðinni. Fh. Leikfélags Akureyrar og lista- manna Leigumordingjans Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri. Frá vinstri: Eva MargrétÁrnadóttir, Davíðjónsson, GuðmundurSigur- pálsson, Númi Adólfsson, Vatberg Kristjánsson og Linda BjörkGuð- mundsdóttir. 10

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.