Harmonikublaðið - 01.12.2012, Qupperneq 17

Harmonikublaðið - 01.12.2012, Qupperneq 17
íferð okkar Friðjóns og eiginkvenna okkar 2010 til Noregs og Svfþjóðar fengum við boð frá Ottari Johansen harmonikusnillingi, sem bjó í nágrenni við IvarThoresen útgef- anda norska harmonikublaðsins Nygam- malt er var bjargvætturinn í þessari ferð. Hann vildi fá okkur í spjall og bjóða okkur uppá kaffitár í tilefni af því að hann hafði verið í boði okkar á íslandi fyrir tveimur Ottar á enn fyrstu harmoniku sína sem er um yo ára gömul og enn spilahæf. árum og var ekki búinn að gleyma þeim móttökum sem hann fékk f Árnesi og inn á íslenskum heimilum. Ottar er enginn venjulegur maður. Fyrir utan það að vera nánast blindur kennir hann á harmoniku, er með oftast um 20 nemendur í námi og kennir á allar gerðir harmonika og fólki á öllum aldri. Sjálfur fékk hann píanóharmoniku 5 ára gamall og byrjaði þá að æfa sig á fullu, það gekk vel og 10 ára eignaðist hann tvöfalda nikku sem varð hans annað hljóðfæri og viðheldur hann þekkingu sinni á henni enn þann dagídag, ásamt krómatískri hnappaharmoniku sem er aðalhljóðfærið. Okkur til undrunar dró Ottar fram harmon- ikukassa, sem hann opnaði ogtókþarupp sína fyrstu harmoniku sem hann hafði eignast fyrir 60 árum, hún var þá gömul og nú íþað minnsta 70 ára. Hann hefur samið fjölda laga gegnum tíðina og fyrsta lagið Oslandsvalsen samdi hann á gömlu nikk- una. Alls hafa 10 lög þegar komið út á plötum, en hann hefur samið mun fleiri. Hann lékfyrir okkur nýjasta lagsittá aðal- hljóðfærið, Hilsen til Osebru er hann samdi af ákveðnu tilefni árið 2009. Égspurði Ottar hvort hann æfði sig daglega? Að öllu jöfnu 2-3tíma daghvern varsvarið. Hvernigverða lögin þfn til spurði ég? Flest fyrir að ég byrja að fikta við hljóðfærið fram og til baka, svo kemur skyndilega eitthvað sem næst að sauma saman í heildarlag. Annars eru ýmsar hliðar uppi f slíkum tilfellum. Við undruðumst hinar fjölbreyttu veitingar, tertur og allt sem tjáir að nefna er tilheyrir stórveislum nema áfengi sem þessi höfð- ingi býður ekki uppá þvf sjálfur er hann Ottar með sitt aðalhljóðfæri, kveður gesti sína frá tröppum húss síns á afmælisdegi sínum með laginu Svörtu augun. Hann ersnillingursem ann harmonik- unni hjartahreinn og Ijúfur. Ljósmyndari Hilmar Hj. stakur reglumaður. Þegar menn fóru að hæla veitingunum var uppljóstrað að þennan dag sem við vorum þarna átti Ottar 65 ára afmæli eða þann 19. júlí 2010. Sannarlega nutum við hverrar mínútu þarna með þessum undramanni sem lærði nótur með því að systir hans stækkaði hverja nótu fyrir hann upp í risa stærð svo hann gæti séð. Þessi maður hefur unnið krafta- verk út frá fötlun sinni og sýnt framá að allt er hægt með viljann að vopni. Þessari skemmtitegu dagstund lauk með að Ottar lék fyrir okkur hið þekkta lag Svörtu augun sem var einkar viðeigandi við þetta óvænta tækifæri. Hilmar Hjartarson KÖNNUN A AHUGA FYRIR ÍTALÍUFERÐ Ágætu harmonikuunnendur Ásfðasta stjórnarfundi sambandsinsvarákveðið að gera könnun á því hvort áhugi sé fyrir hópferð harmoniku- unnenda til Ítalíu næsta haust. Hugmynd þessi vaknaði síðastliðið sumar á meðal stjórnarmanna S.Í.H.U. og var síðan ákveðið að láta reyna á hvort grundvötlur væri fyrir ferð sem þessari. Hugmyndin er að fara tit Castelfidardo, sem er Mekka harmonikunnarogskoða þarsem flestarverksmiðjurer framleiða harmonikur. Einnigyrði ferðin notuð til að skoða t.d. Róm og fallega baðstaði við Adríahafið svo eitthvað sé nefnt. Við gerum ráð fyrir að ferð sem þessi yrði farln f byrjun september 2013 og í ferðina fari 10 -12 dagar. Til að af þessu geti orðið þarf að kanna áhuga ykkar, en við teljum að það sé lágmark að 15 - 20 mannsskrái sigíferð sem þessa, til að ná hagkvæmu verði á flugfargjöldum og hótelum. Kostnað- aráætlun liggur ekki fyrir, enda fer hún töluvert eftir því hvað margir skrá sig í svona ferð. Það ervon stjórnarað þið látið hugykkarf tjósvarðandi þessa hugmynd og hafið samband við Sigurð Eymunds- son í síma 4711333 / 893 3639 netfang: koltrod2i@ simnet.is eða Gunnar Kvaran ísíma 568 3670 / 824 7610 netfang: atf7@mi.is Stjórn S.Í.H.U.

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.