Reykjavík - 09.03.2013, Qupperneq 4
9. mars 2013
Blindbylur í borginni og
samgöngur úr skorðum
Fyrir nokkrum dögum var vor-hugur í mörgum borgarbú-anum og runnar víða farnir að
laufgast og blóm að gægjast upp úr
moldinni. Á miðvikudag skall hins
vegar á blindbylur og snjókoma. Sam-
göngur í Reykjavík fóru úr skorðum,
strætó gekk ekki og fólk beðið að vera
ekki á ferli. Þrátt fyrir óskir um slíkt
létu ýmsir sér ekki segjast og voru á
ferðinni, sumir hverjir á bílum sem
lítið erindi áttu út á göturnar við þessar
aðstæður. Tafir urðu á margs konar
þjónustu borgarinnar og starfsmenn
Reykjavíkurborgar lögðu nótt við dag
við að ryðja snjó af götum og gang-
stéttum.
Hér má sjá nokkra svipmyndir af
þessum ógnardegi, ef svo ólíklega
vildi til að hann hafi farið framhjá
einhverjum.
Lokað í Laugardalslaug í dag, en
opnað með breyttu sniði á morgun
Laugardalslaug var lokuð í gær og verður það einnig í dag. Á morgun geta sund- og baðglaðir
tekið gleði sína á ný því þá verður
opnað aftur.
Á morgun verður afgreiðslan aftur
komin í nýja hluta laugarinnar, en sem
kunnugt er hefur hún að undanförnu
verið á upphaflegum stað. Kvengestir
fá nýuppgerðan búningsklefa, en að
vísu bara tímabundið og karlarnir
verða sendir í báða útiklefana. Þá verða
rafrænar skápalæsingar í kvennaklef-
unum.
4
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)
Holtagörðum, s. 553-1800
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15
www.facebook.com/fondurlist
Föndur
Föndraðu fyrir
ferminguna
Úrvalið er hjá okkur
Föndur
Föndur úrvalið er hjá okkur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18
Opið laugardaga 10-14
Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað
BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig?
Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór úr leðri með
vönduðu innleggi. Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.-
Fjöldi skemmti-
ferðaskipa kemur
til Reykjavíkur
í sumar
Ekkert lát verður á komum skemmtiferðaskipa til borg-arinnar næsta sumar og við-
búið að þau verði fleiri en nokkru
sinni fyrr.
Nú þegar er búið að tilkynna um
komu 67 skipa og eins og staðan er
núna þá kemur fyrsta skipið 19. maí.
Aðgangur að sundstöðum
með dýrara móti í Reykjavík
Verðlagseftirlit Alþýðusam-bands Íslands kannaði verð-breytingar á gjaldskrám
sundstaða í fimmtán stærstu sveitar-
félögum landsins. Í ljós kom að tólf
þeirra höfðu hækkað gjaldskrána frá
því í fyrra, Reykjavík þeirra á meðal,
en aðeins Fljótsdalshérað, Árborg,
Seltjarnarnes og Kópavogur voru með
óbreytta gjaldskrá.
Aðgangur fyrir fullorðna að sund-
stöðum í Reykjavík hefur hækkað um
10% frá því í fyrra miðað við stakan
miða og kostar nú 550 krónur í sund.
Ef keypt er 10 miða kort í Reykjavík
þarf að borga fyrir það 4.100 krónur,
sem er 9% meira en á síðasta ári. Og
árskortið hækkaði um 2000 krónur og
kostar nú 30 þúsund krónur, en það er
hækkun upp á 7%.
Börn á grunnskólaaldri í Reykjavík
borga 8% hærra verð fyrir stakan miða
núna miðað við verðið í fyrra, en verð
á 10 miða kort og árskorti er óbreytt.