Reykjavík


Reykjavík - 09.03.2013, Qupperneq 9

Reykjavík - 09.03.2013, Qupperneq 9
99. mars 2013 Hærri stofnkostnaður vegna öryggisráðstafana, en einnig meiri rekstrarábati Fyrir rúmu ári, rétt áður en réttargeð- deildin var flutt á Klepp, sagði Páll við Reykjavík-vikublað að hann gerði ráð fyrir því að stofnkostnaður við rétt- argeðdeildina myndi borga sig upp á innan við tveimur árum. „Við gerðum ráð fyrir að stofnkostn- aður við réttargeðdeildina yrði 70 til 80 milljónir króna, en ítarlegar kröfur byggingareftirlits leiddu til þess að setja varð upp öflugri brunavarnir en gert var ráð fyrir sem juku kostnaðinn. En það er bara jákvætt að hafa öflugar og góðar brunavarnir og úðakerfi eins og alls staðar er komið þarna núna, enda ekki eðlilegt að slá af kröfum til brunavarna á spítala . En fyrir vikið varð þetta dýrara. Á móti kemur hins vegar að rekstrarábatinn er meiri en við gerðum ráð fyrir. Við reiknuðum með að hann yrði nálægt 40 milljónum króna á ári, en hann reynist í kringum 50 milljónir. Ofan á allt fengum við svo fé fyrir bygginguna á Sogni, sem er nú nýtt sem fangelsi.“ Vaxandi áhyggjur af lengri biðtíma á göngudeildum vegna niðurskurðar Það er kunnara en frá þurfi að segja að Landspítalinn hefur lengi búið við niðurskurð á fjárframlögum og segir Páll að það hafi einnig bitnað á geðsviðinu. Það hafi búið við 23% niðurskurð á fjórum árum. Því hafi þurft að sýna mikla hugkvæmni og ráðdeildarsemi og hafa skýra sýn á hlutverk þjónustunnar og hverju yrði að sinna svo allt gengi upp. Páll telur að það hafi tekist án þess að hafa alvarleg áhrif á þjónustu. „Það hefur helst haft áhrif á þjón- ustuna hjá þeim hópi sem er minnst veikur og væri í öðrum löndum sinnt af heilsugæslunni, en er ekki gert hér. Það eru lengri biðlistar á göngudeildum og þar fram eftir götunum. Maður hefur hins vegar áhyggjur af því, vegna þess að mál sem er einfalt og auðleyst í dag er orðið flóknara eftir viku ef þú sinnir því ekki og við erum farin að finna það. En við tókum þá ákvörðun að setja veikustu einstaklingana í for- gang. Það er fólk sem er oft svo veikt að það kvartar ekki. Við höfum hins vegar vaxandi áhyggjur af því hvað biðtími á göngudeildum er orðinn langur og að það muni til lengri tíma hafa slæmar afleiðingar.“ Páll segir geðsviðið hafa sloppið við uppsagnir hjúkrunarfræðinga, eins og voru á spítalanum almennt fyrir stuttu en hafa reyndar að mestu gengið til baka. Húsnæði á geðdeildum oft og tíðum til skammar Páll lýsti því í blaðinu í fyrra að mæla mætti siðferðisstyrk samfélags á því hvernig það hugsaði um sína minnstu bræður og vísaði þar til þeirra sem vistaðir eru á réttargeðdeild. Hann segir að nú kæmi samfélagið vel út hvað þennan hóp varðar. Hvað geðsjúka varðar almennt segir hann hins vegar að húsnæði sem þeim stendur til boða á deildum sé oft og tíðum hreinlega til skammar. „Ég var að sýna gestum deildir á Hringbraut og þeir sögðu að það mætti ekki opna pítustað í slíku húsnæði, þannig að þeim var brugðið og það er oft með gestsaugum sem maður sér hlutina best. Aðbúnaður og aðstæður mjög víða, eins og að þurfa að bjóða upp á tvímenningsherbergi, er ekki nógu gott, auk þess sem öryggisatriðum mót- tökugeðdeildanna okkar er ábótavant.“ Þá segir hann húsnæðið oft lekt og hrörlegt og að sá maður sem sinnti húsi sínu jafn illa og Landspítalinn hefur neyðst til að gera vegna fjárskorts, byggi ekki í haginn fyrir sig. Geðgjörgæsludeild sett á laggirnar við Hringbraut „Hins vegar er ætlunin að breyta einni móttökugeðdeildanna á Hringbraut í geðgjörgæsludeild í sumar.Þá búum við til öfluga deild, örugga, með einbýlum og aðskildum svefnálmum kynjanna, fyrir bráðveika sjúklinga. Það mun bæta þjónustu jafnt við þá meira veiku en ekki síður þá sem minna veikir eru og fá þá betra næði. Við verðum reyndar að mestu leyti að fjármagna úrbæturnar með því að skera niður annars staðar,en við getum ekki beðið með þessar framkvæmdir, og vonandi fáum við liðsinni og stuðning úr sam- félaginu.“ Geðsjúkum mismunað í samfélaginu Fordómar hafa gjarnan fylgt um- ræðunni um geðsjúkdóma. Þeir hafa trúlega farið minnkandi með aukinni umræðu, þekkingu og upplýsingum, en Páll segir erfitt að leggja mat á for- dóma. Hann vitnar í vin sinn, breskan prófessor í geðlækningum Graham Thornicroft að nafni sem hefur mikið skoðað fordóma, en sá segir erfitt að mæla fordómana því þeir fari undan í flæmingi, hverfi á einum stað og skjóti svo upp kollinum á þeim næsta eins og sést þegar breytt er um nafn á einhverju í viðleitni til að draga úr fordómum, þá myndist fljótt fordómar gegn nýja heitinu í staðinn. „Ég er sammála Thornicroft í því að það sé miklu betra og árangursríkara að berjast ekki gegn óskilgreindum fordómum heldur gegn mismunun, því að fordómar birtast í mismunun og mismunun er mælanleg. Ég tel að enn vanti töluvert upp á að geðsjúkum sé ekki mismunað.“ Sem dæmi um þetta nefnir Páll að talið sé að um 20% af þeim kostnaði sem hlýst af sjúkdómum í samfé- laginu sé vegna geðsjúkdóma, en 8% af útgjöldum til heilbrigðismála fari til lækninga á geðsjúkdómum. Þetta er mismunun segir Páll. Geðsjúkdómar eru á Vesturlöndum orðnir þeir sjúk- dómar sem valda flestum töpuðum vinnuárum og er þunglyndi þar al- gengasti skaðvaldurinn. “Annað dæmi um mismunun er það þegar fyrrum fíknisjúklingar lenda í vandræðum með að fá líftryggingar”. Þá nefnir hann forvarnir gegn umferðarslysum annars vegar og forvarnir gegn sjálfs- vígum hins vegar. Fyrir um áratug dóu álíka margir í umferðarslysum og fyrir eigin hendi hérlendisá ári, eða rúmlega þrjátíu manns. „Síðan fara 200 milljónir króna í forvarnir vegna umferðarslysa og við erum, guði sé lof, komin niður fyrir tíu sem deyja í umferðarslysum árlega, en það fara ennþá sjö milljónir króna á ári í sjálfsvígsforvarnir enda erum við ennþá að missa 35 Íslendinga í sjálfs- vígum á ári. Það hefur ekkert breyst. Ég er ekki að segja að það séu jafn konkret lausnir til við forvarnir gegn sjálfsvígum eins og við forvörnum gegn umferð- arslysum, en það eru ákveðnir hlutir sem við vitum að gera gagn og hægt væri að vinna með fyrir meira fé,“ segir Páll Matthíasson geðlæknir og fram- kvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. Páll matthíasson segir að geðsjúkum sé mismunað. Guðmundur sævar sævarsson deildarstjóri og Páll matthíasson framkvæmdastjóri geðsviðs segja mikla bót vera af réttargeðdeildinni.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.