Reykjavík - 09.03.2013, Síða 12
9. mars 2013
Einelti
Bókin EKKI MEIR kom út í ágúst sl. hjá Skólavefnum og er leiðar-vísir í aðgerðum gegn einelti fyrir
starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðs-
félög, foreldra og börn. Bókin á í raun
erindi til allra. Einelti meðal fullorðinna,
þar á meðal eldri borgara fyrirfinnst al-
veg eins og meðal barna og unglinga.
EKKI MEIR er myndskreytt og hafa börn
allt niður í þriggja ára haft gagn af mynd-
unum. Veggspjöldum með þeim hefur
verið dreift af Æskulýðsvettvanginum
sem fóstrað hefur verkefnið fyrir sína
félagsmenn: UMFÍ, Skátana, Landsbjörg
og KFUM og KFUK.
EKKI MEIR hefur verið fylgt eftir með
fræðsluerindi sem haldin hafa verið m.a. á
vegum Menntasviðs Reykjavíkurborgar, í
skólum, leikskólum, íþrótta- og æskulýðs-
félögum um land allt, foreldrafélögum
og einstaka ráðstefnum og þingum. Það
sem vekur hvað mest athygli er hversu
áhuginn hefur vaxið um að taka þessi mál
fastari tökum, ekki einvörðungu stríðni og
einelti heldur einnig vitundarvakning um
hvernig við erum að koma fram hvert við
annað almennt séð. Vakninguna má m.a.
mæla í þeirri miklu eftirspurn sem verið
hefur eftir fræðslu, umræðu og umfjöllun
um EKKI MEIR.
Þegar kemur að einelti sem og öðrum
málum er varða vellíðan og velferð fólks
má aldrei sofna á verðinum. Hér er ekki
um verkefni að ræða sem einhvern tí-
mann lýkur. Hugtakið einelti er flestum
þekkt. Leikskólabörn skilja vel merkingu
þess. Mikilvægt er þess vegna að halda
því á lofti en á sama tíma að gæta þess að
gengisfella það ekki. Kjarnin í hugtakinu
einelti felur í sér endurtekningu á nei-
kvæðri hegðun í garð aðila af hálfu sama
eða sömu einstaklinga. Um getur verið
að ræða endurtekningar á neikvæðum,
meiðandi aðfinnslum/athugasemdum
um persónu eða háttu viðkomandi, skít-
kasti eða dónalega, hrokafulla framkomu
í hans garð. Þegar gert er grín eða hæðst
að viðkomandi, hann niðurlægður, bak-
talaður, hunsaður, útilokaður eða beittur
andlegu eða líkamlegu ofbeldi af ein-
hverjum toga.
Ótal mörg atriði eru áhrifavaldar
í þessum málaflokki og er þeim gerð
skil í EKKI MEIR. Fyrst er að nefna
staðarmenninguna eða móralinn eins
og stundum er vísað til. Skólar, íþrótta-
og æskulýðsfélög eru líka vinnustaðir og
starfsfólkið eru fyrirmyndir nemenda
og iðkenda. Gera má því skóna að ef
menning staðarins er neikvæð aukist
líkur á að erfið mál eins og eineltismál
komi upp og fái jafnvel að þrífast, festi
rætur. Í EKKI MEIR er forvörnum af
ýmsu tagi gerð skil. Hægt er að setja upp
öflugt og skilvirkt forvarnarkerfi án mik-
ils tilkostnaðar. Í forvarnarkerfi felst að
umræðu um framkomu og hegðun sé
fléttað eða tvinnað inn í starfið og að
öllum sé ljóst hvaða samskiptareglur
gilda. Ef um er að ræða stofnun þar
sem börn stunda nám, iðka íþróttir
eða koma saman til að leika sér, liggur
ábyrgðin bæði hjá skóla/stofnun og for-
eldrum. Það er skylda beggja að mynda
samskiptabrú, kynnast og tengjast til að
vera vel í stakk búin til að taka á málum
sem upp koma og varða börnin.
Í sporum þolanda vill enginn vera og
er okkur flestum vel kunnugt um hvaða
áhrif og afleiðingar langvarandi eða sí-
endurtekið einelti getur haft. Gerandi
eineltis fer heldur ekki varhluta af af-
leiðingum hegðunar sinnar. Ganga má
út frá því að geranda eineltis líður ekki
vel. Vanlíðan hans er hvati af meiðandi
framkomu hans við aðra krakka. Minn-
ingin um að hafa verið gerandi eineltis
á bernskuárunum getur lifað lengi með
gerandanum, jafnvel alla ævi.
Markviss og kerfisbundin vinnubrögð
við úrvinnslu eineltismála skila oftast
árangri.
Upplýsi einstaklingur að verið sé að
brjóta á honum skal undantekningalaust
hlusta á hann. Taka skal því allar kvart-
anir til skoðunar og haga aðgerðaráætlun
í samræmi við alvarleika kvörtunarinnar.
Engin tvö mál eru eins og er viðbragðs-
áætlun því aðeins vegvísir.
Viðbragðsáætlun og tilkynningar-
eyðublað sem er aðgengilegt á heimasíðu
skapar ekki einungis öryggi heldur er
forvörn í sjálfu sér. Mikilvægur liður í
þessari forvörn er að sýna foreldrum og
börnum í bókstaflegri merkingu hvar á
heimasíðu megi finna þessi gögn. Einnig
þarf að fara með þeim yfir samskipta-
reglur þ.á.m. hvaða hegðun sé ekki liðin
á staðnum. Minna þarf á að ekkert grátt
svæði er til. Allir þurfa að vita að án tillits
til hvernig maður kann við einhverja
manneskju eða finnst um hana, beri
að koma fram við hana af virðingu og
kurteisi.
Tilkynningareyðublað veitir jafnframt
ákveðið aðhald. Með því að bjóða upp á
slíkt eyðublað er skóli eða stofnun að gefa
til kynna að neikvæð framkoma sé ekki
liðin á staðnum. Sá sem viðhefur meið-
andi hegðun í garð annars aðila getur átt
það á hættu að vera tilkynntur með form-
legum hætti, láti hann ekki af atferlinu.
Skrifleg tilkynning er auk þess líkleg til
að skila markvissari vinnubrögðum en
munnleg tilkynning.
Í EKKI MEIR er lögð áhersla á að lýsa
verklagi. Undirbúningur s.s. að afla ná-
kvæmra upplýsinga strax í byrjun eykur
öryggi starfsmanna í samskiptum sínum
við alla aðila málsins í úrvinnsluferlinu.
1. Þeir sem annast vinnslu koma saman,
meta kvörtun, gera aðgerðarplan í
samvinnu við tilkynnanda (ef barn,
þá foreldra). Aðilar skipta með sér
verkum og tilgreina umsjónarmann
málsins
2. Hefja upplýsingaöflun (ræða við vitni,
fylgismenn)
3. Kanna hvort tryggja þurfi öryggi til-
kynnanda á staðnum
4. Boða forráðaaðila meints geranda til
fundar, fá leyfi til að ræða við hann
(með eða án foreldra)
5. Fara yfir málið að nýju, upplýsa aðila
um heildarmyndina
6. Úrvinnsla: Viðtöl, unnið með líðan/
vanlíðan, sjálfsstyrking, fundir með
foreldrum
7. Eftirfylgni til að m.a. ganga úr skugga
um að eineltið hafi stöðvast. Fylgst er
með líðan og samspili aðila á staðnum
8. Fundir og viðtöl eins oft og þurfa þykir
(skrifa fundargerð)
9. Ákvörðun um málalok liggur hjá
báðum aðilum, tilkynnanda og skóla/
stofnun
Sjálfskönnun
Umræðan um forvarnir og úrvinnslu
eineltismála hlýtur að beina sjónum að
framkomu, þ.e. hvernig við, hvert og eitt
okkar, komum fram við hvert annað?
Fullorðnir eru fyrirmynd. Hver og einn
getur spurt sig:
} Er ég að taka ábyrgð á minni framkomu/
hegðun?
} Líður einhverjum illa í minni návist?
} Get ég veitt einhverjum stuðning eða
rétt hjálparhönd á þessum stað?
} Geri ég viðvart ef ég verð vitni að ein-
elti?
Helstu mistök í
eineltismálum
Hægt er að gera mörg mistök við úr-
vinnslu mála af þessu tagi. Hér eru þau
helstu tilgreind:
• Hunsa að ræða um samskiptahætti/
reglur
• Ræða ekki við geranda (foreldra) um
efni kvörtunarinnar
• Segjast taka einelti alvarlega en gera
það ekki
• Gæta ekki að öryggi þolanda á
staðnum
• Draga ótímabærar ályktanir
• Vera meðvirkur, leyfa reiði geranda
(foreldra hans) að villa sýn
• Draga úrvinnslu á langinn í þeirri von
um að vandinn ,,hverfi”
• Rannsaka málið lauslega, undirbúa
illa eða alls ekkert
Til að stemma stigu við einelti og of-
beldi í hvaða mynd sem er og við ólíkar
aðstæður þarf vilja og markviss vinnu-
brögð. Halda þarf áfram og gera enn
betur, ná enn lengra.
www.kolbrunbaldurs.is
Miðapantanir
sími 565-5900 midi.is
midasala@gaaraleikhusid.is
Drephlægilegasta sýningin í bænum
Sýningar
Sunnudagur 10, mars, kl 18.00 og kl 20.00
Sunnudagur 17, mars, kl 18.00 og kl 20.00
“Óvenjuleg og heillandi leikhúsupplifun
bráðfyndin með hlýjum undirtónum”
Fréttablaðið Arndís Þórarinsdóttir
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Allar gerðir myndbanda færðar yfir á
DVD diska eða harða diska, svokallaða
flakkara.
Gamlar kvikmyndafilmur yfirfærðar á
DVD diska.
8mm Regular og Super eru algengastar
en við yfirfærum einnig 9,5mm, 16mm
og 35mm.
Skyggnur (Slides) skannaðar yfir á
diska sem hægt er síðan að skoða í
tölvum og sjónvörpum og prenta út á
pappír.
Hljómplötur og allar gerði tónbanda,
t.d. kassettur og ¼” segulbandspólur
færðar yfir á geisladiska.
Gerum nokkurn veginn allt sem þér
dettur í hug varðandi hljóð- og mynd-
vinnslu.
MYNDBANDAVINNSLAN&HLJÓÐRITI
Hátúni 6b. Sími 562 1026. www.mbv.is
12
Höfundur er
kolbrún Baldursdóttir
klínískur sálfræðingur
og formaður Barnaheilla-
save the children á Íslandi