Reykjavík - 09.03.2013, Qupperneq 14
14 9. mars 2013
Fjölbýlishúsaröð þessi stendur við Fálkagötu í Vesturbæ Reykja-víkur og er númer 17 – 21. Voru
húsin hönnuð af Kjartani Sveinssyni
tæknifræðingi og byggð á árunum
1963-64. Inn í þessa fjölbýlishúsaröð
og í götur í næsta nágrenni í Gríms-
staðaholtinu fluttu á þessum árum
fjölmargir leikarar og listamenn. Gekk
Grímsstaðaholtið því undir nöfnunum
Hollywood eða Beverly Hills og fjöl-
býlishúsaröðin við Fálkagötu var oft
kölluð Hollywood-blokkin.
Af leikurum að nefna þá bjuggu þau
Gunnar Eyjólfsson, Jón Sigurbjörns-
son, Þóra Friðriksdóttir, Helgi Skúla-
son og Helga Bachmann á Fálkagötu
19 og Herdís Þorvaldsdóttir, Katrín
Thors, Baldvin Halldórsson og Brynja
Benediktsdóttir ásamt fleiri leikurum
á Dunhaga og Hjarðarhaga. Skáldið
Kristmann Guðmundsson bjó á
Tómasarhaga, listmálarinn Gunnlaugur
Scheving bjó á Fálkagötu 21 og Halldór
Laxnes, nóbelskáld á Fálkagötu 17.
Heimildir: Timarit.is
GLI
Veldishnöttur eða ríkis-epli eins og gripurinn er stundum kallaður er tákn
konungsvalds. Hann hefur tekið
breytingum í aldanna rás.
Hjá Rómverjum til forna tákn-
aði veldishnötturinn alheiminn.
Á miðöldum var krossi bætt ofan
á hnöttinn og
táknaði hann þá
heiminn undir
kristinni stjórn.
Einnig þykir
krossin tákna
kvenhliðina á
móti karlhlið
hnattarins sjálfs.
Heimild:
Signs & symbols
VELDisHnÖttUR
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
ReykvíkinguR
Gerðuberg
kl. 10:30 – 13:30 / laugardagur
Framtíðarbókin
– árleg barna- og unglingabókaráðstefna
Norræna húsið / laugardagur
Opnun ljósmyndasýningarinnar
Langa andartakið - ljósmyndir eftir Sarah
Cooper og Nina Gorfer
Harpa tónlistarhús
kl. 14:00 / laugardagur
Náttfatapartí
– Litli tónsprotinn 2012-2013 í Eldborg
Kex Hostel kl. 19:00 / laugardagur
Reykjavik Folk Festival
Cafe Rosenberg / laugardagur
Eyjakvöld - Blítt og létt
Gamli gaukurinn / laugardagur
Tónleikar - Skálmöld
Þjóðminjasafn Íslands Kl.
10:00 – 16:00 / sunnudagur
Heimilisiðnaðarfélag Íslands 100 ára –
málþing, þjóðbúningasýning o.fl.
Listasafn Reykjavíkur
í Hafnarhúsi
kl. 14:00 – 16:00 / sunnudagur
Umræðurþing með þátttöku íslenskra
myndlistar – og fræðimanna þar
sem tekið verður á áhrifum Robert
Smithson á hugmyndir og aðferðir í
list samtímans.
Listasafn
Íslands
kl. 14:00 / sunnudagur
Sunnudagsleiðsögn um sýningar safnsins í
fylgd Rakelar Pétursdóttur, safnafræðings.
Gerduberg
kl. 14:00 / sunnudagur
Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Ástasaga
úr fjöllunum
Harpa
tónlistarhús
kl. 20:00 / sunnudagur
Perlur íslenskra sönglaga í Kaldalóni
Helgin í Reykjavík
9. – 10. mars 2013
Nýju kokkaföt keisarans
Reykvíkingur elskar mat, en kann ekki að elda. Hann elskar líka góðan bissness, en kann
ekkert í svoleiðis. Einnig óttast hann
sannleikann, en kann ekki að koma
sér undan honum.
Því var það hugljómun fyrir Reyk-
víking þegar í ljós kom á dögunum að
matvælaframleiðandur gerðu rífandi
bissness í því að framleiða mat sem var
ekki maturinn sem hann átti að vera og
komu svo með stórkostlegar skýringar
þegar allt saman kom í ljós. Reykvík-
ingur var frá sér numinn af gleði.
Reykvíkingur er alþjóðlega þenkj-
andi og fylgist því grannt með er-
lendum fréttum og er því vel kunnugt
um fréttirnar af hrossakjötinu í lasagna
réttunum sem áttu að innihalda nauta-
kjöt. En það er ekkert. Það er auðvitað
miklu djarfara að framleiða nautakjöts-
rétt, sem er ekki bara án nautakjöts
heldur án alls kjöts. Það er auðvitað
ekkert annað en snilld og slær algjör-
lega við þessum útlendum viðskipta-
módelum. Og líka auðvitað það að hafa
ekkert nautakjöt í lambahakksbollum
þótt það standi utan á pakkanum.
Síðan var það framleiðandinn sem
framleiddi franska hvítlaukspönnu án
hvítlauks. Reykvíkingur er ekki hissa
eins og verðið er á hvítlauki nú til dags.
Svo er það auðvitað snilld þegar upp
um allt kemst að draga auðvitað rann-
sóknina í efa. Skárra væri það nú! Og
svo má bæta við að það hafi gleymst
að breyta innihaldslýsingunni, það
virkar alltaf.
Reykvíkingur veit reyndar ekki alveg
hvernig hægt er að kalla rétt nauta-
kjötsrétt ef ekkert nautakjöt er í honum,
eða hvítlauksrétt sem inniheldur engan
hvítlauk, en það er væntanlega bara
af því að Reykvíkingur kann ekki að
elda, kann ekki bissness og segir alltaf
satt, þótt hann ætli sér ekki að gera
það. Svona er nú Reykvíkingur mis-
heppnaður.
tákn og MeRki
ReykjavíkuRgetRaunin – svaR
v i k u b l a ð
Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is.