Reykjavík


Reykjavík - 10.08.2013, Side 2

Reykjavík - 10.08.2013, Side 2
2 10. ágúst 2013 Reykjavík vikublað 28. Tbl. 4. áRganguR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: baejarblod@gmail.com, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: sigurdur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Veffang: fotspor.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 47.500 eintök. dreifing: Fríblaðinu er dreiFt í 47.500 e intökum í allar íbúðir í reykjavík Spurning vikunnar er: Hvenær var Leikfélag Reykjavíkur stofnað? Hvað veistu um borgina þína? Svarið er að finna á síðu 14. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is Ágústmánuður er mánuður mannfagnaða og götuhátíða í Reykjavík. Aðra helgina í ágúst fagna menn fjölbreytileikanum í Gleðigöngu hinsegin daga og í kringum afmælisdag Reykjavíkur,þann 18. ágúst næra menn sál og líkama á Menningarnótt. Báðir þessir viðburðir eru afar vel sóttir, enda án endurgjalds og fara fram að mestu undir berum himni. Það er óravegur frá fyrstu hátíðahöldum hinsegin daga fyrir rúmum áratug og þeirrar skemmtunar sem boðið er upp á í dag. Fyrsta Gay-pride hátíðin var haldin árið 1970 í Bandaríkjunum og er í dag haldin víða um heim í hinum ýmsu borgum. Það er þó ekki allsstaðar sem hátíðin fer fram með gleði og glimmer. Í sumum löndum heims eru þær bannaðar. Sumstaðar snúast gleðigöngur uppí andhverfu sína með átökum og uppþotum eins og raunin varð í Belgrad þegar samkynhneigðum var misþyrmt af ungum hægrisinnuðum öfgamönnum árið 2001. Víða í Austur – Evrópu liggur blátt bann við hinsegin hátíðum og göngum og andstaða borgaryfirvalda í Moskvu við gönguna er vel þekkt. Af þessu mætti ráða að stjórnvöld telji samkomu sem þessa hættulega á einhvern hátt, í það minnsta er hún ógnandi við ríkjandi viðhorf. Hver er svo glæpurinn? Hann er sá að elska einstakling af sama kyni. Það eru nú öll ósköpin. Fögnum fjölbreytileikanum og því að við erum ekki öll steypt í sama mót. Þá væri nú tilveran litlausari og alls engin ástæða lengur til að halda Gleðigöngu! Lifið heil, Hólmfríður Þórisdóttir Leiðari Glæpurinn mikli Borgarbókasafn á Menningarnótt: Opinn hljóðnemi fyrir alla á aldrinum 2ja - 100+ ára Fólk á aldrinum tveggja til hund-rað ára og eldra getur nú látið ljós sitt skína á Menningarnótt. Þá getur fólk komið í aðalsafn Borg- arbókasafns á Menningarnótt og lesið inn skemmtilegar sögur. Eru einstak- lingar hvattir til að láta ljós sitt skína en opið verður fyrir hljóðnemann fyrir skemmtilegar sögur. Til að allir kom- ist að verða skemmtisögurnar að vera hnitmiðaðar og stuttar. Segja má brandara eða skemmtilega sögu, einhverju fyndnu sem fólk hefur lent í eða annað sem getur kveikt bros eða hlátur. María Pálsdóttir leikkona stýrir þessum atburði og hægt er að skrá sig hjá henni með því að senda upplýsingar á netfangið majapals@hotmail. com. Svo er líka hægt að láta kylfu ráða kasti og mæta án þess að skrá sig. Er fólk hvatt til að láta brosið ganga síðdegis á Menningarnótt 24. ágúst næstkomandi. Hápunktur Hinsegin daga í dag: Gleðiganga, ungmennapartí og regnbogadagur í Viðey meðal viðburða -mikil leynd hvílir yfir aðkomu borgarstjóra að hátíðinni Hápunktur Hinsegin daga er í dag. Hátíðin hefur staðið síðan á þriðjudag en í dag verður hin vinsæla Gleðiganga sem hefur reynst einn fjölmennasti við- burður ár hvert í borginni og þó víðar væri leitað. Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í fimmtánda sinn. Í upphafi var þetta lítil eins dags hátíð sem fimmtán hundruð gestir sóttu en hátíðinni hefur svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg og er núna litrík sex daga hátíð sem allt að 100 þúsund manns sækja. Eva María Þórarinsdóttir, formaður stjórnar Hinsegin daga hefur sagt að tilgangur göngunnar sé að fagna því sem áunnist hefur í réttindabaráttu samkyn- hneigðra og til að þakka Íslendingum fyrir stuðninginn í mannréttindabarátt- unni. Jón Gnarr borgarstjóri mun taka þátt í göngunni líkt og oft áður en mikil leynd hvílir yfir því með hvaða hætti Jón birtist að þessu sinni. Eins og fyrri ár verður göngufólki stillt upp við Vatnsmýrarveg, austan BSÍ, kl. 12:00 en lagt er af stað stundvíslega kl. 14:00 í voldugriGleðigöngu eftir Sól- eyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og fram hjá Arnarhóli eins og kortið sýnir. Í lok Gleðigöngunnar er að venju boðið upp á útitónleika við Arnarhól. Á stóra sviðinu undir hólnum troða upp íslenskir skemmtikraftar, hljómsveitir og söngvarar á einni fjölsóttustu úti- skemmtun í Reykjavík. Um kvöldið verður svo í fyrsta sinn á Hinsegin dögum boðið upp á skemmtun fyrir ungmenni undir 20 ára. Regnbogasalurinn breytist þá í skemmtistað án áfengis með flottu hljóð- og ljósakerfi. Plötusnúður spilar frá kl. 21:00 til miðnættis. Ball, messa og fjölskylduhátíð Pride dansleikur verður síðan haldinn á Rúbín í Öskjuhlíðinni Á sunnudag hefst guðþjónusta í Guð- ríðarkirkju kl. 11 í tilefni Hinsegin daga þar sem séra Sigríður Guðmars- dóttir predikar og þjónar fyrir altari. Þá verður ennfremur regnbogahátíð fjölskyldunnar í Viðey en siglt er frá Skarfabakka og hefjast ferðir kl. 11:15. Borgarstjóri samþykkir ósk rekstr- araðila og íbúa við Skólavörðustíg Verður sumargata fram yfir Menningarnótt Borgarstjóri hefur samþykkt að Skólavörðustígur verði sumargata til 26. ágúst næst- komandi en rekstraraðilar og íbúar við götuna sendu honum bréf með þeirri beiðni. Opna átti götuna fyrir bifreiðum 6. ágúst en hagsmunaaðilar óskuðu eindregið eftir að fresta þeirri tímasetningu. Sumargöturnar í borginni voru opnaðar þann 1. júní sl. og til stóð að þeir kaflar Skólavörðustígs og Laugavegar sem hafa verið sumar- götur yrðu lokaðir fyrir umferð vél- knúinna ökutækja til mánudagsins 5. ágúst m. a. vegna gatnaframkvæmda í miðborginni. Rekstraraðilar við Skólavörðustíg telja þær framkvæmdir ekki hafa áhrif á umferð um götuna þar sem gangandi umferð er það mikil fyrir. Gatan verður því áfram sumar- gata með gangandi umferð fram yfir Menningarnótt sem verður þann 24. ágúst. Litríkar breytingar á Hofsvallagötu Senn sér fyrir endann á vinnu við breytingar á hluta Hofsvallagötu neðan Hringbrautar til að bæta ásýnd götunnar og umferð fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur. Komið verður fyrir hjólastígum sitt hvorum megin við götu, aðgengi að strætisvögnum verður bætt og líf- legum blómakerjum, bekkjum og lit- ríkum fánum komið fyrir víðs vegar við götuna. Þá verða hjólastígarnir málaðir með hjólamerkingum í líf- legum litum. Þá verður komið fyrir upphækkuðum palli við strætis- vagnastöðvar sem auðveldar aðgengi hreyfihamlaðra og barnafólks. Þá mun lífleg litaflóra prýða umhverfið, lit- rík blómaker, bekkir og fuglahús og málað malbik mun síðan glæða götuna enn meira lífi og lit. Jafnframt þessu verður breyting á bifreiðastæðum við götuna en þar hafa ekki áður verið skilgreind bílastæði. Í stað þess að lagt sé aeggjs megin götu verður nú aðeins hægt að leggja vestanmegin götunnar. Áætlað er að verkinu ljúki eftir viku eða 15. ágúst.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.