Reykjavík - 10.08.2013, Side 12
10. Ágúst 201312
hefjast 12. og 13 .ágúst
Ný námskeið
N
ý
ná
m
sk
ei
ð
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Kvennaleikfimi
Mán., mið. og föst. kl. 16:30 (3x í viku).
Verð kr. 15.900 fyrir fjórar vikur.
(í áskrift kr. 13.900 á mán., 3ja mán. uppsagnarfrestur)
Þri. og fim. kl. 10:00 (2x í viku).
Verð kr. 13.900 fyrir fjórar vikur (í áskrift kr. 11.900 á mán.,
3ja mán. uppsagnarfrestur).
Morgunþrek
Mán., mið. og föst. kl. 7:45 eða 09:00 (3x í viku).
Verð kr. 15.900,- (13.900 í áskrift, 3ja mánaða binditími).
Zumba og Zumba toning
Þri. og fim. kl. 16:30.
Verð kr. 13.900 eða 11.900 í áskrift (3 mán binditími).
Yoga
Þri. og fim. kl. 12:00.
Verð kr. 13.900,-
Leikfimi
Mán. og mið. kl. 11:00.
Mán. og mið. kl. 15:00.
Verð kr. 9.900
Zumba Gold 60+
Fyrir 60 ára og eldri
sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
Verð kr. 9.900,-
60 ára og eldri:
Heiðar Jónsson snyrtir hefur verið
viðloðandi tískubransann í marga
áratugi. Hann hefur unnið sem
fyrirsæta, flugþjónn og hefur einnig
komið nálægt dagskrárgerð í sjón-
varpi. Heiðar snyrtir er yfirheyrður
að þessu sinni.
Fullt nafn:
Kristbjörn Jóhann Heiðar Jónsson
Aldur:
65 ára í vikunni.
Foreldrar:
Jón Pálsson frá Krossum og Steinunn
Benónýsdóttir/Fósturforeldrar Séra
Þorgrímur V. Sigurðsson og Frú Áslaug
Guðmundsdóttir á Staðarstað.
Hvert liggja ættir þínar?
Snæfellsnesið og lítilega á Eskifjörð.
Grunn- og/eða framhaldsskóli sem
þú sóttir?
Gekk í skóla heima á Staðarstað og var
svo skiptinemi í Tennessee, í eitt ár.
Önnur menntun?
Allskonar snyrti- og fagurfræðinám.
Litgreiningar og ímyndarhönnunar-
kennslupróf. (Er dálítið fyrir löng orð,
langar útskýringar).
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Tískuteiknari.
Fyrri störf?
Fyrirsæta, verslunarmaður, sölumaður,
flugþjónn.
Maki?
Mér var skilað.
Börn?
Júlíus Steinar, flugstjóri og úr-
ahönnuður, Sigríður Lára Mitchell,
enskukennari í Bandaríkjunum og
Áslaug Olga, þjóðfræðingur og nemi.
Hvernig rakspíra notarðu?
Yfirleytt líkar mér betur við ilmi, sem
eru gerðir fyrir konur og blanda oft
mína eigin. Er bara að hugsa um að
búa endanlega til minn eigin ilm á
næstunni.
Hefurðu búið erlendis?
Já! Og í meira en 35 borgum.
Stærsti sigurinn:
Börnin og barnabörnin.
Mesta axarskaftið:
Þau eru allt of mörg til að gera þeim
skil í svona yfirheyrslu.
Helstu áhugamál:
Klassísk tónlist og þá helst óperur,
leiklist, ferðalög innanlands og er-
lendis, lestur, tíska, förðun, fegurðar-
samkeppnir.
Ertu tilfinninganæmur?
Grenjuskjóða.
Ertu rómantískur?
Ekki svo mikið og reyndar bara alls
ekki með aldrinum.
Nefndu góða uppskrift að róman-
tísku kvöldi:
Þorrablót heima í eigin svefnherbergi.
Hvað gerir fólk aðlaðandi?
Útgeislun þess, nærvera og framkoma.
Hver er þinn helsti kostur?
Reyni að vera eins góð manneskja og
mér er unnt.
En galli?
Þrasari.
Kanntu á saumvél?
Nei!
Ertu dýravinur?
Já!
Áttu gæludýr?
Nei.
Hvað er með því skemmtilegasta sem
þú gerir?
Upplifa allt það, sem kallar fram hlátur.
Það er sko miklu fleira en flestir gera
sér grein fyrir, sem gerir það.
Ertu flughræddur?
Nei, og dálítið vanur alls konar uppá-
komum í loftinu.
Ertu með bíladellu?
Nei.
Hvernig bíl áttu?
Smájeppa.
Ferðastu mikið (innalands og/eða
utan)?
Já!
Fallegasti staðurinn á Íslandi?
Undir jökli, vestanmegin.
Fallegasti staðurinn í útlöndum?
Bergen, Edinborg, París, Bologna,
Róm, Flórens, allt héraðið Emiliana
Romagna, Graz, Barcelona, Sitges,
Singapore, Kínamúrinn, Kuala Lumpur
og svo ótalmargir aðrir staðir.
Annar eftirminnilegur staður?
Forli á Ítalíu.
Ertu hjátrúarfullur?
Álít að önnur vídd, sé eðileg og upplifi
hana þannig.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já!
Hefurðu farið til spámiðils og/eða
trúir þú á slíkt?
Vinn sem slíkur.
Ertu góður í að elda?
Nei.
Ferðu oft út að borða?
Já.
Ef þú mættir vera hvað sem er í heim-
inum, hvað myndirðu vilja vera?
Eignalaus róni á fagurri strönd.
Besti/eftirminnilegasti veitingastað-
urinn (innanlands eða utan)?
Veitingastaður í borg, sem heitir Muree
og er á fjallstoppi, rétt hjá Rawalpindi
í Pakistan.
Uppáhaldsmatur?
Of margir, enda er það farið að sjást á
mittismálinu.
Uppáhaldsdrykkur?
Kranavatnið heima.
Áttu þér uppáhalds tónlistarmann
eða tónlist?
Edita Gruberova og Diego de Florez
og svo allir stórkostlegu sígildu óperu-
söngvararnir okkar með Maríu Markan
í fararbroddi.
Besta bókin?
Æskuár mín á Grænlandi (ævisaga
Peter Frauchen,) Ævisaga Maire Curie.
Er með ægilega ævisögudellu.
Uppáhalds leikari?
Kristbjörg Kjeld og Róbert heitinn
Arnfinnsson.
Besta útvarpsstöðin?
Gufan.
Hvað gerir þú þegar þér leiðist?
Mér leiðist aldrei.
Hvað gerir þú þegar þú ert argur eða
í vondu skapi?
Leggst í þunglyndi, en tekst samt oftast
að gera eitthvað í málinu.
Hvað leiðist þér einna mest?
Drukkið fólk.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Fósturforeldrar mínir.
Hvað er helst í tísku í dag?
Glæsileiki (fylgir alltaf kreppu).
Hvað er það sem maður getur ekki
verið án í tískuiðnaðinum?
Fjölbreytileiki.
Eru litgreiningar ennþá í tísku?
Þær eru að koma sterkar inn aftur.
Bíðiði bara!
Ef þú hefðir ekki orðið snyrtir, hvað
heldurðu að þú hefðir þá orðið?
Fatahönnuður, leikari, flugþjónn (Lét
það rætast í ein 15 ár).
YFIRHEYRSL
A Heiðar Jónsson, snyrtir:Blandar sinn eigin ilm