Reykjavík


Reykjavík - 10.08.2013, Page 14

Reykjavík - 10.08.2013, Page 14
14 10. ágúst 2013 Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Hvað veistu um borgina þína? Svar: Leikfélagið var stofnað 11. janúar 1897 er tveir hópar áhugamanna um leiklist sameinuðust í eitt félag Til hamingju með daginn www.3frakkar.com - Sími: 552-3939 Grilluð Lúðuflök með soya smjörsósu og wasabi kartöflumús mmmm ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar Þrír Frakkar Café & Restaurant Ferskur léttsteiktur bláugga- túnfiskur m/soya-s jörsósu og wasabi-kartöflumús Sigurður H Guðjónsson skrifar um hagsmunamál húseiganda: Heimreiðir, aðkeyrslur og bílastæði Heimreiðir eru algengt deilu-efni í minni fjölbýlishúsum þar sem innkeyrsla er að bílskúr eða bílskúrum sem tilheyra sumum en ekki öllum. Deilt er um rétt til að leggja bílum í innkeyrslu og framan við bílskúra, um aðkomu- réttinn og kostnað við standsetn- ingu, viðhald og rekstur. Réttur eigenda fer í fyrsta lagi eftir því sem segir í þinglýsum heim- ildum um húsið en þar er sjaldn- ast stafur um það. Menn deila og stundum í blóðillu hver eigi inn- keyrsluna og hver megi leggja hvar. Ef ekkert segir í þinglýstum gögnum er lóðin, þar á meðal innkeyrslan, í sameign allra en ekki í séreign bíl- skúrseigenda. Bílskúrseigendur eiga hins vegar rétt á hindrunarlausri aðkomu að bílskúrum sínum og það þýðir að aðrir mega ekki tálma eða hindra hana með því að leggja bílum þar að staðaldri a. m. k. Að því leyti er réttur þeirra aukinn umfram aðra. Hæstaréttardómur um séreingarrétt bílskúrseiganda Fyrir skömmu kvað Hæstiréttur upp stefnumarkandi dóm sem hefur verulegt fordæmisgildi. Um er að ræða fjórbýlishús við Kirkjuteig í Reykjavík. Bílskúr tilheyrir einni íbúðinni. Eigendur bílskúrsins töldu að öðrum eigendum væri óheimilt að leggja í aðkeyrslunni að honum og að þeir ættu einir bílastæði framan við bílskúrinn. Séreignar- réttur bílskúrseigenda varð ekki leiddur af þinglýstum heimildum og var heldur ekki talinn geta byggst á eðli máls. Sönnunarbyrðin um sérstakan og aukinn rétt var lögð á bílskúrseigendur og sönnun þar að lútandi lánaðist þeim ekki. Var heimreiðin því öll talin í sameign allra eigenda. Sagði í dómnum að ef bíl sé lagt framan við bílskúrinn tálmaði það aðgengi annarra eigenda að bakgarði og sorptunnum. Kærunefnd fjöleignarhúsamála hafði mótað aðra reglu og beitt annarri túlkun í þessu efni. Hún hefur jafnan lagst á sveif með bíl- skúrseigendum og ályktað þeim í hag og talið stæði framan við bílskúra vera sérstæði sem öðum beri að virða. Talið hefur verið að eigendur bílskúra ættu þannig ríkari rétt til innkeyrslu en aðrir eigendur. Eins hefur nefndin talið að kostnaður við innkeyrslur sé að meginstefnu sérkostnaður viðkomandi eigenda en ekki sameiginlegur öllum. Í þessum Hæstaréttardómi kveður sem sagt við nýjan tón. Beitt er annarri túlkun og nálgun og lagt til grundvallar að þeir hlutar lóðar sem ekki eru ótvírætt í séreign séu í sameign sem allir eigi hagnýtingar- rétt að. Innkeyrslur séu almennt í sameign allra og bílskúrseigendur eigi aðeins rétt á hindrunarlausri aðkomu en réttur þeirra til að láta bíla sína standa þar sé víkjandi gagn- vart rétti annarra til að komast að og frá sameign og sameiginlegum tilfæringum. Heimreið að húsi er sameiginleg Fordæmisregla dómsins er: Bíl- skúrseigendur eiga ekki einkarétt á stæðunum framan við bílskúra eða í innkeyrslu ef hagnýtingin er öðrum eigendum til baga og torveldar eðli- leg og lögmæt afnot og aðgang þeirra af sameiginlegri lóð eða tilfæringum. Þessi dómur skýrir réttarstöðuna og hefur ótvírætt fordæmisgildi þegar atvik eða aðstæður eru með sama eða líku sniði. Almennt má nú ganga út frá því að innkeyrslur og svæði framan við bílskúra séu í óskiptri sameign nema skýr og ótvíræð gögn segi annað. Sá sem heldur því fram að hann eigi sérstakan eða aukinn rétt í því efni ber sönnunarbyrðina fyrir því. Heimreið að húsi er sam- eiginleg og allir eigendur eiga rétt á að hagnýta hana, s. s. til aðkomu og flutninga á fólki, vörum og munum að og frá húsinu. Hafa verður í huga að heimreiðir og innkeyrslur eru með ýmsu móti og aðstæður og atvik og samningar og samskipti eigenda eru með mis- munandi móti og verður að skoða hvert tilvik fyrir sig til að ákvarða óyggjandi rétt eigenda til að hag- nýta þær. Meginreglan er hins vegar vörðuð með þessum nýja dómi. Grípandi saga um framandi heim Það fylgir því alveg sérstök tilfinning þegar sílesandi bókaormur dettur niður á framúrskarandi bók. Ekki síst þegar lesandinn á ekki von á neinu sér- stöku, ákveður að gefa bók smá séns en heillast á stundinni af seiðandi texta og frábærri sögu. Þannig er sögunni Flekkuð rétt lýst. Kápan er fjarri því aðlaðandi og alls ekki söluvænleg. En umbúðir eru eitt og innihald annað. Hér er sagt frá Jamilet, ungri stúlku í Mexíkó sem flýr yfir landamærin til Bandaríkj- anna í von um betra líf og dreymur um að hitta lækni sem getur fjarlægt valbrá á baki hennar sem af ýmsum er talin merki djöfulsins. Hún kynnist eldri manni á geðveikrahæli sem segir henni magnaða sögu með óvæntum endalokum. Í sögunni fylgir lesandinn herra Peregrínó eftir á ferðalagi hans um Jakobsveginn á Spáni til Santiago og áhugaverðum persónum sem eru með honum í för. Hinsvegar er sagt frá tilraun Jamilet að laga sig að lífinu í Bandaríkjunum, sambúð hennar við móðursystur sína og samskipti hennar við jafnaldra sinn. Frásögnin er grípandi og spennandi í senn og auðvelt er að heillast af sögu- umhverfinu og persónunum. Það er full ástæða til þess að mæla með þessari lesningu. Þessa dagana þegar mikið magn bóka kemur úr þá getur þýðingin verið upp og ofan er í þessu tilfelli er þýðingin afbragðsvel heppnuð. Hólmfríður Þórisdóttir bækur 2013 Flekkuð Eftir Ceciliu Samartin Þýðandi Nanna B Þórsdóttir Vaka- Helgafell Höfundur er Sigurður H Guðjónsson framkvæmdastjóri og formaður Húseigandafélagsins

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.