Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Page 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 28. september 2006
Mikið um að vera hjá Visku í Viku símenntunar:
Hraðlestur, smurbrauð, silfursmíði,
argentínskur tangó og flugukast
-meðal þess sem boðið er upp á í vetur
Það hefur verið nóg að gera í viku
símenntunar en Valgerður Guð-
jónsdóttir, forstöðumaður Visku,
hefur notað tímann vel og farið í
fyrirtæki og stofnanir til að kynna
þau námskeið sem eru í boði í vetur.
Hún hefur m.a. kynnt náms- og
starfsráðgjöf á vinnustöðum, haldið
fundi og auk þess var námskeiðið
Hver tók ostinn minn, í boði Visku
sl. föstudag.
Valgerður segir að á fyrsta degi í
viku símenntunar hafi áhersla verið
lögð á breytingar og þess vegna
fékk hún Gísla Blöndal til að vera
með námskeiðið, Hver tók ostinn
minn. „Það var gert með tilliti til
þess að miklar breytingar eiga sér
stað í samfélaginu nú sem fyrr. Það
eru breytingar í pólitíkinni, grunn-
skólanum, yfirstjórn stofnana, innan
fyrirtækja o.s.frv. Sömuleiðis þurfa
einstaklingar að takast á við
breytingar í lífi sínu alla daga.”
Ég hef kynnt náms- og starfs-
ráðgjöf á vinnustöðum í Viku
símenntunar en það er gert í beinu
framhaldi af því að ríkið greiðir
peninga til símenntunarstöðva, sem
skulu fara í ákveðin verkefni.
Annars vegar eru þeir settir í náms-
og starfsráðgjöf og hins vegar í vott-
uð námskeið. Þau eru þrjú sem
Viska býður upp á núna. Þau eru
Landnemaskólinn sem er fyrir
Islendinga með erlendan uppruna,
Grunnnámskeið fyrir skólaliða og
Fagnámskeið I fyrir fólk í heil-
brigðis- og félagsþjónustu. Nám-
skeiðin eru miklu fleiri en ég ákvað
að halda þessi námskeið núna, segir
Valgerður en mikill áhugi er fyrir
skólaliðanáminu og þegar eru
nokkrir búnir að skrá sig. Þessir
peningar verða til þess að einstak-
lingar þurfa ekki að greiða nema
brot af verði námskeiðanna.
„Ég kem til með að funda með
skólaliðum í næstu viku en þetta
nám hentar mjög vel fyrir ófaglært
starfsfólk í grunn- og leikskólum.
Ég er búin að kynna námsvísinn
sem var borinn í hús um helgina.
Viðbrögðin hafa verið mjög góð og
nú þegar eru tvö námskeið farin í
gang. Það eru hraðlestramámskeið
og íslenska fyrir útlendinga en á
hvoru námskeiði eru tuttugu manns.
Þessi námskeið eru flott start og ég
hef þegar fengið fyrirspurnir um
annað hraðlestrarnámskeið og
framhaldsnámskeið á íslensku fyrir
útlendinga. Ef þátttaka verður næg
þá er hægt að setja þau af stað aftur
en það er staðreynd að ánægðir
nemendur hafa margfeldisáhrif.
Það sýndi sig með smurbrauðs-
námskeiðið í fyrra en þá fréttist út
að það hafí verið vel heppnað og
skemmtilegt. Nú verður eitt smur-
brauðsnámskeið 10. nóvember en
það er síðasta námskeiðið í bili.
Eins var með silfursmíðina, það
voru námskeið í fyrra og árið áður
og við ætlum að bjóða eitt enn í
vetur Sömu sögu má segja um
argentínskan tangó og flugukast-
námskeið, þau verða aftur í boði á
þessari önn.“
Valgerður segir að ný námskeið
verði í boði eins og námskeiðið um
Heimaslóð en það er ætlað til að
kenna fólki að setja efni inn á
vefinn. „Framsögn og ræðumenns-
ka er námskeið sem mér finnst van-
metiðþvíþað hjálparfólkiaðkoma
fyrir sig orði. Þó ekki væri til annars
en að auðvelda því að standa upp
við ýmis tækifæri og segja nokkur
orð eins og í afmælum o.s.frv.
Námskeiðið silfur, íslenska víra-
virkið verður á dagskránni en
Fræðslunet Suðurlands fékk styrk á
námskeiðið og aðrar símenntun-
arstöðvar njóta þess að fá leið-
beinanda gegn lægra gjaldi.
Samklippur og akrýlmálning er
spennandi námskeið þar sem málað
er út frá og í tengslum við Ijós-
myndir. Þá verður tölvunámskeið
fyrir einstaklinga með fötlun en það
er fyrsta samstarfsnámskeiðið milli
Visku og þeirra sem starfa með
málefni fatlaðra. Framhald er
fyrirhugað á þessu námskeiðshaldi
á vorönn en þá er hugmyndin að
vera með matreiðslunámskeið.
Viska tekur líka að sér að skipu-
leggja starfs- eða námsdaga fyrir
hópa. Þá er í raun ekkert annað en
að koma með þema og ég leitast við
að finna leiðbeinendur sem henta.
Einnig verð ég með vísindaleið-
angur fyrir fjarnema eins og í
fyrra,“ sagði Valgerður en það
verður margt annað skemmtilegt á
döfinni hjá Visku í vetur og hægt að
fylgjast með upplýsingum á vefnum
www.viska.eyjar.is
Bæjarstjórn:
Kanna hag-
kvæmni
stórskipa-
hafnar
A fundi bæjarstjómar á fimmtu-
dag var samþykkt tillaga meiri-
hlutans um stórskipahöfn í Vest-
mannaeyjum. Tillagan gerði ráð
fyrir að fela bæjarstjóra í samráði
við framkvæmda- og hafnarráð að
láta vinna hagkvæmnisathugun.
„Vestmannaeyjahöfn er lífæð
samfélagsins og því má ekki
dragast að hefjast nú þegar handa
við næsta skref í hafnarmálum
Vestmannaeyja, markvissan
undirbúning að gerð stórskipa-
hafnar. Flest bendir nú til þess að
þau skip Eimskips og Samskipa,
sem nú eru í gangi, séu síðasta
kynslóð skipa af þessari stærð. Sú
næsta byggist á stærri flulninga-
skipum en Vestmannaeyjahöfn
ræður við í dag og slíkt hæfir ekki
stærstu verstöð landsins.
Þá er ótalið hversu gríðarleg
lyftistöng það yrði fyrir samfélag-
ið að geta tekið á móti þeim ntikla
fjölda skemmtiferðaskipa sem í
dag sigla hjá þar sem stærð þeirra
leyfír ekki hafnarlegu.
Ljóst er að undirbúningur og
rannsóknir á forsendum stór-
skipahafnar hafa nú þegar hafist
og þegar liggja fyrir nokkur gögn
um straummælingar og fleira. Þó
nokkrar umræður hafa verið í
Vestmannaeyjum um staðsetn-
ingu stórskipahafnar. Ákvörðun
um kosti og galla hvers mögu-
leika fyrir sig þarf að meta og
yfirvega af þar til bærum aðilum
og því ber að flýta.
Forsendur ákvörðunar á
framkvæmd gerðar stórskipa-
hafnar eru að sjálfsögðu ekki
hvað síst hagkvæmniathugun og
mikilvægt að bæjaryfirvöld láti
nú þegar vinna slíkt fyrir sig,“
segir í greinargerð tillögunnar
sem fulltrúar minnihlutans
gerðust meðflutningsmenn að og
var hún samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum.
Lúðvík Bergvinsson um flugið: Neyðarástand sem bregðast á við strax
Er búinn að fá nóg af ruglinu undanfarin ár
Landsflug hefur að minni hyggju brotið allar brýr að baki sér. Það er
fráleit hugmynd miðað við það sem á undan er gengið. Þeir hafa reynt
að spila á og nýta sér einokunarstöðu og haldið flugleiðinni til Eyja í
gísiingu, segir Lúðvík.
Lúðvík Bergvinsson, alþingis-
maður og bæjarfulltrúi, sagði að
það væri mikill misskilningur að
halda því fram að Landsflug hafi
sinnt flugleiðinni á milli Reykja-
víkur og Vestmannaeyja á mark-
aðslegum forsendum undanfarin ár.
„Flug Landsflugs uppfyllti ekki
þær kröfur sem eðlilegt er að gera
til áætlunarflugs á stað eins og
Vestmannaeyjar. Menn hafa verið á
villigötum í þessari umræðu. Sam-
gönguráðherra hefur skýlt sér á bak
við þau rök að flugið hafi verið á
viðskiptalegum forsendum. Væri
það á viðskiptalegum forsendum að
menn færu til Eyja tvisvar í viku á
fjögurra sæta rellum og það gengi
upp fjárhagslega? Nei,“ sagði
Lúðvík og bætti við að Eyjamenn
eigi meira og betra skilið frá rík-
isvaldinu.
„Framlag Vestmannaeyja til sam-
félagsins er slíkt. Hér búa yfir
fjögur þúsund manns og ekki má
gleyma því að þetta er eyja og við
það skapast sérstakar aðstæður."
Hann sagði það skýlausa kröfu að
nú þegar verði samið við Flugfélag
íslands um flug milli Vestmanna-
eyja og Reykjavíkur. „Það á að vera
lágmarkskrafa að vélar sem taka 36
til 50 farþega fljúgi til Eyja þrisvar
á dag. Það er ekki hægt og má ekki
gera minni kröfur enda eru það
eðlilegar og sanngjarnar kröfur.
Eyjamenn eiga að halda þeim fast
fram. Menn eiga ekkert með að
sætta sig enn og aftur við lágmarks-
þjónustu," sagði hann og vildi að
skýrt verði kveðið á um stærð véla
og fjölda ferða í útboðslýsingu.
„Þetta er spurning um búsetuskil-
yrði. Við getum tekið dæmi, að
strætó fer alltaf upp í Breiðholt,
jafnvel þó vagninn sé tómur. Það er
enginn að tala um að láta af strætó-
ferðum vegna þessa. Samgöngur
eru Eyjamönnum gríðarlega mikil-
vægar og þetta er svo einfalt að
krafan er að Herjólfur sigli og
flugvélar fljúgi."
Lúðvík segir að margoft hafi hann
rætt við fulltrúa Flugfélags Islands
og Ijóst sé að þeir hafa verið
tilbúnir að hefja flug til Eyja að
uppfylltri kröfu um ríkisstyrk. „Ég
veit að þeir hafa verið tilbúnir að
ganga strax til samninga. Mín
skoðun er sú að það eigi að gera
tímabundinn samning við Flug-
félagið meðan útboðsferillinn er í
gangi. T.d. til sex mánaða. Það er
ekkert í lögum sem kemur í veg
fyrir að gengið yrði frá slíkum
samningi strax.“
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 á
mánudagskvöld að samgöngu-
ráðuneytið væri nú í viðræðum við
Landsflug. „Það félag hefur að
minni hyggju brotið allar brýr að
baki sér. Það er fráleit hugmynd
miðað við það sem á undan er
gengið. Þeir hafa reynt að spila á og
nýta sér einokunarstöðu og haldið
flugleiðinni til Eyja í gíslingu."
Lúðvík vill að brugðist verði við
strax. „Það er neyðarástand og
þegar það ástand er uppi þá eru
mönnum allir vegir færir að leysa
málið. Þetta er bara spurning um
pólitískan vilja. Ef hann er til staðar
er hægt að leysa málið nú þegar.
Ég er alla vega búinn að fá nóg af
ruglinu undanfarin ár,“ sagði
Lúðvík að lokum.
Étgefandi Byjnsýn ehf. 480278-054!) - Vestmannaeyjnm. RitBtjóri; Ómar Garðarsson.
Bhniamenn: Sigursveinn Þórðai'son, Guílhjörg Sigurgeiisdóttir. íþróttir: Jólíus Ingason.
Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarssou & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vcstmannacyjnm. Aðsetnr ritstjómar: Stramlvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstnr:
frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http /www.eyjafivttir.is
FltÉTlilt koma út alla fimmtndaga. Blaðið er sclt i áskrift og einnig i lausasölu á
Kletti, Tvistinuin, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
lsjakanum, Bónusvideó, verslun 11-11, Skýlinu i Friðarhöfn og i Jolla i llafnarfirði
og afgreiðsln Hejrólfs i Þorhikshöfn. FRÉITIK eru prentaðar i 2000 eintökum.
FRÉTITR eru aðilar að Sanitökum hæjar- og hóraðsfréttablaða. Eftirpi-entun,
hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda só getið.