Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Síða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 28. september 2006
Guðrún er 44 ára og gift Gylfa
Sigurðssyni en saman eiga þau þijú
börn.
I tilkynningu frá Guðrúnu segir:
„Ég hef starfað sem formaður
Verslunarmannafélags Vestmanna-
eyja frá árinu 1993 og er auk þess
starfsmaður kjaramáladeildar VR.
Ég sat í miðstjórn Alþýðusambands
íslands og sit nú í stjóm Lands-
sambands íslenzkra verslunar-
manna auk annara trúnaðarstarfa.
Ég gegndi starfi bæjarfulltrúa í
Vestmannaeyjum frá 1998-2006.
í bæjarstjóm gegndi ég m.a. starfi
forseta, var formaður bæjarráðs og
fjölskylduráðs, auk margvíslegra
annara verkefna. Þá sat ég í stjóm
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga,
auk þess að taka þátt í verkefnis-
stjórn um vaxtarsamning við
Suðurland. Þessi störf hafa fært
mér haldgóða þekkingu á mál-
efnum Suðurlands og innviðum
sveitarstjómarmála í kjördæminu.
Félagsmál, í víðasta skilningi þess
orðs, hafa verið mitt helsta áhuga-
mál allt frá unglingsárum. Ég tel að
með störfum mfnum fyrir verka-
lýðshreyfinguna og á vettvangi
sveitarstjómarmála hafí ég öðlast
dýrmæta reynslu sem gæti komið
aðgóðum notum í þingstörfum.
Eg tel rétt að aftur verði til ein
þjóð á íslandi óháð búsetu og efna-
hag. Fyrir því vil ég fá að beijast.
Þess vegna gef ég kost á mér í 3.-4.
sæti á lista Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi fyrir þingkosn-
ingamar, sem fram fara næsta vor.“
Ásgeir Ásmundsson:
Stærri
tilraun á
næsta ári
Ásgeir Ásmundsson, eigandi
kiakstöðvarinnar í Fellsmúla,
segir margt jákvætt hafa
komið út úr tilrauninni.
Sjóbleikjan hafi dafnað vel og
hann segir að stefnt sé að
stærri tilraun á næsta ári.
„Eg er auðvitað hundfúll
vegna þess hvað lítið magn var
í kvínni þegar til átti að taka.
Eitthvað af minni fiskinum
siapp út um möskvana í byrjun
en það á ekki við stærri
fiskinn. Eitthvað gæti hafa
sloppið út um gat sem kom á
netið, en hvað mikið vitum við
ekki,“ segir Ásgeir.
Hann var þó ánægður með
sjálfa tilraunina, reyndar hefði
stærri flskurinn, sem er
vatnableikja, ekki dafnað en
góður vöxtur var í minni
fiskinum sem er
sjóbleikjustofn. „Sjóbleikjan
sexfaldaði þyngd sína að
meðaltali á þessum fjórum
mánuðum sem er mjög góður
vöxtur. Með því að flokka ofan
af, þ.e. taka stærsta fiskinn
jafnóðum hefðum við náð enn
betri árangri því þá hefði
minni fiskurinn fengið meiri
möguleika. Þá hefðum við tekið
rjómann af jafnóðum til að búa
til meiri rjóma.“
Ásgeir segir að þessi niðurstaða
efli þá til dáða því stefnt er að
stærri tiiraun næsta sumar.
„Við erum að setjast niður og
fara yfir stöðuna og ætlum að
fá fleiri aðila til Iiðs við okkur.“
Gleymdi
sér við að
stilla út-
varpið
Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt
til lögreglu í Vestmannaeyjum í
vikunni sem leið. Á fímmtudaginn
var tilkynnt urn árekstur á gatna-
Flytja þurfti báða hílana á brott
með kranabí).
mótum Hraunvegar og Hraun-
hamarsvegar en þarna hafði öku-
maður verið að stilla útvarpstæki
meðan á akstri stóð með þeim
afleiðingum að hann fór yfir á
öfugan vegarhelming og lenti á
bifreið sem kom úr gagnstæðri átl.
Ökumaður hinnar bifreiðarinnar
kvartaði um eymsli í hálsi og
brjósti og var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Vestmannaeyja til
athugunar.
Tjónvaldar stinga af
í tveimur árekstrum í Vest-
mannaeyjum í síðustu viku stungu
sökudólgarnir af. í fyrra tilvikinu
var ekið utan í bifreið á bifreiða-
pianinu við Foldahraunsblokkimar
en talið er að það hafi átt sér stað að
kvöldi 17. september sl. I hinu
tilvikinu er ekki vitað um vettavang
óhappsins en eins og í fyrra
tilvikinu hafði sá sem ók utan í
bifreiðina ekki fyrir því að tilkynna
um óhappið heldur lét sig hverfa.
Það má geta þess að á þessu ári
hefur lögreglunni verið tilkynnt um
18 umferðaróhöpp þar sem sá sem
tjóninu olli fór í burtu án þess að
tilkynna um það.
Árið 2005 var lögreglu tilkynnt
urn 27 óhöpp þar sem tjónvaldur
tilkynnti ekki um óhappið. Lög-
reglan undrast óheiðarleika öku-
manna er þetta varðar, en auðvitað
eru í einhverjum tilvikum eðlilegar
skýringar á að ekki er tilkynnt um
óhöpp en í flestum tilvikum er
þama um hreinan ásetning að ræða
að ekki er tilkynnt um tjónið.
Lögreglan vill því höfða til
samvisku þeirra ökumanna sem
lent hafa í umferðaróhappi og ekki
tilkynnt um það, að gefa sig fram
og létta þannig á samvisku sinni.
Prófkjör
Samfylkingarinnar:
Guðrún
stefnir á
þriðja til
fjórða sæti
Guðrún Erlingsdóttir, formaður
Verslunarmanna-
félags Vest-
mannaeyja, býð-
ur sig fram í
þriðja til fjórða
sæti á lista
Samfylkingar-
innar í Suðurkjör-
dæmi vegna
komandi kosn-
inga til Alþingis.
Guðrún var bæjarfulltrúi í Vest-
mannaeyjum frá 1998 og fram að
síðustu kosningum.
Bleikjueldið í Klettsvík:
Aðeins fimmtungur eftir í kvínni
-Ársgamla bleikjan dafnaði vel - Forsvarsmaður verkefnisins óánægður með aðkomu
Háskólasetursins - Forstöðumaður þess segir að eðlilega hafi verið staðið að tilrauninni
Tilraun til bleikjueldis í Klettsvík
hefur gjörsamlega mistekist þrátt
fyrir að náttúrulegar aðstæður hafi
verið eins og best verður á kosið.
Þetta er mat þeirra sem stóðu að
tilrauninni en innan við 20 prósent
bleikjunnar reyndust vera í kvínni
þega slagta átti á laugardaginn.
Forsvarsmaður tilraunarinnar segir
sorglegt að svona hafi farið þar sem
hann og margir aðrir hafi gert sér
vonir um að með þessu yrði hægt að
efla atvinnulíf í Vestmannaeyjum.
Þann 13. maí í vor komu Guð-
mundur Adólfsson, brottfiuttur
Eyjamaður, ásamt fleirum með eins
og tveggja ára bleikju sem þeir settu
í kvína í Klettsvík. Um var að ræða
um 330 stykki af tveggja ára fiski
og 1300 stykki af ársgömlum fiski.
Eftirtekjan var heldur rýr því upp úr
kvfnni á laugardaginn komu aðeins
88 tveggja ára fiskar og 210 af árs
gömlum fiski.
Guðmundur fór fyrir hópi áhuga-
manna um verkefnið og fengu þeir
Háskólasetrið í Vestmannaeyjum til
liðs við sig. Aðkoma setursins var
eftirlit og fóðrun fiskins, mælingar
og fleira. „Það voru innan við 20
prósent eftir af bleikunni sem við
komum með í vor og það segir sig
sjálft að þar með er þessi tilraun
okkarónýt," sagði Guðmundur sem
er vægast sagt mjög óánægður með
framlag Háskólasetursins sem átti
að gæta fisksins.
„Fiskur flýgur ekki og netið var
heilt,“ sagði Guðmundur þegar
hann var spurður að því hvort
ástæðan gæti ekki verið önnur.
„Eina skýrinigin sem við höfum um
rýrnun frá Páli Marvin Jónssyni,
forstöðumanni Setursins, er sú að
við köfun í kvínni hafi komið í Ijós
önglar og girni í netinu. Laugar-
daginn 9. júlí var ég sjálfur í Eyjum
og kíkti út í kví og þá sá ég flotholt
í kvínni.“
Aðspurður hvernig bleikjan, sem
eftir var, hefði dafnað sagði
Guðmundur að eldri bleikjan hefði
lítið sem ekkert þyngst en þyngd árs
gömlu bleikjunnar hefði allt að því
tífaldast. „Tveggja ára bleikja er að
taka út kynþroska og þyngist ekki á
meðan. Þetta vissum við en yngri
bleikjan, sem var 80 gr og 120 gr í
vor, tók mjög vel við sér. Var stærsti
UNNIÐ við að háfa bleikjuna upp úr kvínni á laugardaginn.
fiskurinn rétt tæpt kíló. Þetta sýnir
að við höfðum rétt fyrir okkur þegar
við ákváðum að gera þessa tilraun."
Guðmundur segir að fóðrunin hafi
lfka farist fyrir og aðeins hafi verið
notuð um 600 kg af þeint 1700 kg
sem áætlað var að þyrfti þessa fjóra
mánuði sem tilraunin stóð yfir.
„Framlag Háskólasetursins var eitt
stöðugildi í sumar og ætlaði Páll
Marvin Jónsson, forstöðumaður
þess, að sjá um fóðrun og eftirlit en
hann hefur verið með hugann við
eitthvað annað en þetta verkefni."
Einn liður tilraunarinnar var að
kanna hvort um markaðsvöru sé að
ræða. Segir Guðmundur að það eins
og annað hafi farið í vaskinn. „Við
gerðum ráð fyrir rýrnun en ekki
þessum ósköpum og þetta magn er
allt of lítið til að setja á markað. Við
erum meira en svekktir, við erum
agndofa og fyrir mfna parta er þetta
mál dautt. Allir þættir, sem við
gerðum ráð fyrir, stóðust nema sá
mannlegi. Kostnaðurinn hleypur á
einhverjum hundruðum þúsunda,“
sagði Guðmundur sem að lokum
sagðist vilja koma eftirfarandi
spurningum á framfæri við Pál
Marvin:
Við óskum eftir upplýsingum og
skýringum á rýrnun í kvínni í
sumar?
Hvers vegna var ekki fóðrað í sam-
ræmi við magnið sem komið var
með til Eyja. Var það vegna fækk-
unar í kvínni sem við vorum ekki
lánir vita um?
Var haldin dagbók? Hvernig tók
fiskurinn við frá einum tíma til
annars. Hafði sól, hiti eða sjávarföll
áhrif?
Eldri fiskurinn þroskaðist ekki sem
skyldi. Var umsjónarmanni það Ijóst
einhvern tímann áður en tilraun
lauk?
Tilraunin heppnaðist
Páll Marvin Jónsson, forstöðu-
maður Háskólasetursins, hefur allt
aðra sögu að segja en Guðmundur.
Hann segir að tilraunin hafi heppn-
ast vel nema hvað stór hluti minni
seiðanna hafi sloppið af því að
möskvarnir í kvínni voru of stórir.
„Mér finnst ótrúlegt að Guð-
mundur sé að ilnna að verkefninu,"
sagði Páll Marvin í viðtali við
Fréttir. „Við vissum að þetta yrði
svona því seiðin voru minni en
haldið var í fyrstu og við sáum
fiskinn synda út úr kvínni þegar
þeim var sleppt. Það er megin-
ástæðan fyrir því hvað lítið kom upp
á laugardaginn.
Reyndar fann ég línu með tveimur
eða þremur krókum í kvínni þegar
ég kafaði þar síðast en það er ekki
Mynd Sigurgeir Jónasson.
hægt að fullyrða neitt um það hvort
óprúttnir náungar hafi veitt það
mikið upp úr kvínni að það hafi haft
þessi áhrif.“
Páll segir að fóðrunin hafi lfka
verið eðlileg en minna magn af fiski
hafi eðlilega leitt til þess að ekki
þurfti eins mikið af fóðri og í fyrstu
var áætlað. „Fyrsta mánuðinn fórum
við út annan hvem dag og oftar
þegar leið á sumarið. Kvíarnar eru
reyndar nokkuð stórar og djúpar en
lítill þéttleiki getur þýtt verri
fóðurnýtingu. Sá fiskur sem kom
upp var mjög fallegur og feitur
þannig að ég átta mig ekki alveg á
orðum Guðmundar." sagði Páll.
Hann sagði að um tvo stofna hafi
verið að ræða, annar var sjó-
bleikjustofn ep hinn var fersk-
vatnstofn. Ferskvatnsstofninn var
mun stærri og kom fljótlega í ljós að
hann þoldi saltið illa, tók ekki fóður
og fór fljótt í kynþroska sem er ekki
gott. Én sjóbleikjustofninn kom
aftur á móti mjög vel út að sögn
Páls. „Sá fiskur kom 85 til 120
grömm frá klakeldisstöðinni í
Fellsmúla. Vöxturinn var um 3
grömm á dag yfir tímabilið og
fiskurinn var fallegur í holdinu.
Meðalþyngdin við slátrun var um
500 gr. Það er því Ijóst að þessi
stofn hentar vel við þessar aðstæður
og að þessi frumtilraun lofar góðu.“