Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Page 11
Fréttir / Fimmtudagur 28. september 2006
11
Hvað eru
aðkomusjó-
menn
margir?
I bæjarstjóm á fimmtudaginn barst
svohljóðandi tillaga frá meirihluta
sjálfstæðismenna: Bæjarstjórn
Vestmannaeyja samþykkir að láta
nú þegar kanna hversu stórt hlutfall
sjómanna á bátum og skipum, sem
gera út frá Vestmannaeyjum, eru
með lögheimili annars staðar en í
Vestmannaeyjum.
Tillagan var samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum.
Gísli Stefánsson skrifar:
Niðurmuldar samgöngur
Nokkrar staðreyndir um
Vestmannaeyjar:
-1 Vestmannaeyjum búa um og yfir
4000 manns.
- Allir, mér vitanlega, búa á
Heimaey.
- Allflestir eyjaskeggja hafa ríka
þörf fyrir að heimsækja megin-
landið reglulega.
- Ungir Vestmannaeyingar vilja
koma til Eyja að lokinni skóla-
göngu og búa í Eyjum.
- Samgöngur á milli lands og eyja
eru í molum.
Nú þegar Landsflug er hætt að
fljúga hefur verið slökkt á þeim
möguleika (í bili að minnsta kosti)
að hægt sé að fljúga beint til
Reykjavfkur nema á leiguvél.
Ekki það að Landsflug hafi verið
flugfélag sem hægt var að hrópa
húrra fyrir. Þessi grey felldu nú
niður flug trekk í trekk og oft af
óskiljanlegum ástæðum þannig að
ég er ekkert hræddur við að segja
að ég sé frekar ánægður með að
Landsflug skuli vera búnir að kasta
frá sér allri ábyrgð hvað flug til
Vestmannaeyja varðar.
Það er kannski spurning hvort
einhver munur sé á samgöngu-
mulningnum sem ríkir hér nú,
þegar Landsflug er hætt að fljúga,
og á mulningnum þegar Landsflug
flaug á milli lands og eyja.
En hvernig sem þjónustu
Landsflugs við Eyjamenn var
háttað er það nú alveg ljóst að ekki
þykir það arðbært að einkarekið
flugfélag standi í þessum rekstri án
hjálpar. Það er nú þegar alveg Ijóst
að algjör nauðsyn er á að ríkið
komi til og niðurgreiði flugið fyrir
okkur Eyjamenn eins og Guðrún
Erlingsdóttir, fyrrverandi bæjarfull-
trúi og Elliði Vignisson, bæjarstjóri
bentu réttilega á í sjónvarpsviðtali á
dögunum. A meðan ríkið skiptir
sér ekki af, gerist ekki neitt. Það
kemur kannski inn annað flugfélag
en það á enga möguleika á að
halda þessu úti frekar en
Landsflug.
Hvað sem því líður er flugleiðin
nauðsynleg. Að sjálfsögðu mundu
fleiri fljúga sem og að reksturinn
yrði arðbærari ef ríkið greiddi
flugið. Fargjöld mundu lækka og
þjónustan batna.
Það eru fleiri samgönguklisjur
svo sem göng, nýr Herjólfur og
ferjustæði í Bakkafjöru sem eru að
trufla og hrella okkur. Það er alltaf
verið að kanna málin og ekkert
aðhafst. Þingmenn eru því miður
eins og steinrunnar geitur með
lafandi spör og kannski ekkert
annað en eðlilegt þar sem pólitíkin
fer mun meira fram innan flokk-
anna en nokkurn tíma meðal þeirra,
inn á Alþingi.
Mitt persónulega mat er að ég vil
fá göng. Og hvers vegna? Vegna
þess að ég tel að atvinnutækifærum
mundi fjölga sem og leiðum til
þess að ungir Vestmannaeyingar
sem sótt hafa menntun sfna til
höfuðborgarinnar geti komið aftur
heim til Eyja og stundað atvinnu
við sitt hæfí og alið böm sín upp í
mjög mótandi umhverfi. Við
komumst í gegn um göngin í þoku
sem og í 12 vindstigum en erum
ekki innilokuð eins og gerst getur í
vondum veðrum.
Nútímasamfélag kallar á þessar
breytingar. Svo er það, að við fáum
engan afslátt á skattgreiðslum
okkar sem eiga að ganga til bættra
samgangna og þar að leiðandi til
Vegagerðarinnar og annarra stofn-
ana tengdum samgöngum. Við
fáum ekki að njóta alls þess sem
við greiðum fyrir.
Bæjarstjórn á fimmtudaginn:
Starfshópur um heilbrigðis- og
heilsutengda ferðaþjónustu
Bæjarstjóm hefur samþykkt tillögu
minnihlutans að koma á laggirnar
fimm manna starfshópi sem hefur
það hlutverk að vinna atvinnuskap-
andi verkefnum innan heilbrigð-
isþjónustu og heilsutengdri ferða-
þjónustu brautargengi hjá lands-
yfirvöldum og öðrum sem að þess-
um málum koma. Hópurinn hafí
auk þess það hlutverk að halda utan
um og koma af stað undirbún-
ingsvinnu til að kanna möguleika á
að koma hér á fót heilsuhæli.
Hópurinn fengi umboð til að koma
fram fyrir hönd bæjarins í viðræð-
um við ráðuneyti, önnur yfirvöld og
aðra hagsmunaaðila og umboð til
samningagerðar með fyrirvara um
samþykki bæjarstjómar.
Lagt er til að í hópnum verði
Gunnar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðisstofnunar Vest-
mannaeyja, Lúðvík Bergvinsson al-
þingismaður og bæjarfulltrúi, Guð-
jón Hjörleifsson alþingismaður,
Hjörtur Kristjánsson læknir og
bæjarfulltrúi og Elliði Vignisson
bæjarstjóri.
I greinargerð er spurt, hvar eru
vaxtarmöguleikar í atvinnulífi Eyj-
anna? „Að mati Vestmannaeyja-
listans liggja þeir möguleikar einna
helst í ferðaþjónustu og þá ekki síst
á sviði íþróttatengdrar og heilsu-
tengdar ferðaþjónustu.
Tækifæri eru fyrir hendi á sviði
heilbrigðisþjónustu og heilsu-
tengdrar ferðaþjónustu. T.d. eru
möguleikar á að fá hingað sérhæfð
verkefni til Heilbrigðisstofnunar-
innar og er verið að vinna að
nokkrum slíkum málum. Slík verk-
efni eru atvinnuskapandi. I því sam-
bandi má nefna að hópur hjúkrunar-
fræðinga útskrifaðist úr fjarnámi sl.
vor og mikilvægt er að atvinnu-
framboð sé fyrir hendi. Yflrleitt þarf
aðkomu ríkisins og ýmissa annara
aðila til þess að slík verkefni verði
að veruleika. Til að hægt sé að nýta
þessi tækifæri þarf að kynna þau og
skapa þeim góðar viðtökur hjá
hagsmunaaðilum.
Markmiðið með stofnun vinnu-
hóps er að slíkum málum verði
skapaður farvegur þegar aðkomu
bæjarins þarf með, meðal annars og
hópurinn sjái um að vinna þeim
brautargengi.
Eins og áður hefur komið fram
þarf þó að grípa til róttækari
aðgerða til að stöðva fólksfækkun-
ina. Fulltrúar Vestmannaeyjalistans
telja að vænlegur kostur í því sam-
bandi sé að athuga möguleika á því
að koma hér upp heilsuhæli. Ef
undirbúningsvinna skilar jákvæðum
niðurstöðum og viðskiptaáætlun
liggur fyrir má selja hana fjár-
festum. Hins vegar þarf frumkvæði
og fjármögnun rannsókna- og
undirbúningsvinnu að koma frá
bænum. Til að vanda til verks er rétt
er að fá fagaðila til slíkrar vinnu.
Eitt af hlutverkum vinnuhópsins
yrði að koma slíkum undirbúningi í
réttan farveg," segir í greinargerð
með tillögunni.
Lúðvík Bergvinsson, Hjörtur
Kristjánsson og Páll Scheving eru
skrifaðir fyrir tillögunni en Elliði
Vignisson, Páll Marvin Jónsson,
Páley Borgþórsdóttir, Gunnlaugur
Grettisson gerðust meðflutnings-
menn.
Vinnumálastofnun
Suðurlands:
Ráðgjafinn
staðsettur
á Selfossi
í auglýsingu eftir náms - og starfs-
ráðgjafa láðist að geta þess að ráð-
gjafinn hefur starfsstöð á Selfossi.
Um er að ræða starf til eins árs
vegna þess að starfandi ráðgjafí á
Selfossi fer í fæðingarorlof.
Tveir náms- og starfsráðgjafar
starfa hjá Vinnumálastofnun á
Suðurlandi, annar á Selfossi í
100% starfi en hinn á þjónustu-
skrifstofunni í Vestmannaeyjum í
50% starfi. Starfssvið ráðgjafanna
er að annast náms- og starfsráðgjöf
fyrir atvinnuleitendur á Suðurlandi,
einstaklings- og hópráðgjöf. Þeir
sjá einnig um skipulag og þróun
úrræða fyrir atvinnulausa ásamt þvf
að annast almenna upplýsingagjöf
og leiðbeiningar til fólks í atvinnu-
leit.
Atli Gíslason
tekur áskorun
Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður
og varaþingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs hefur
ákveðið að taka áskorun kjör-
dæmisráðs VG í Suðurkjördæmi og
gefa kost á sér í fyrsta sæti fram-
boðslistans.
í tilkynningu segir að Atli hafi
látið að sér kveða í baráttu fyrir
kvenfrelsi, náttúruvemd og réttin-
dum launafólks og útlendinga bæði
innan og utan þings síðustu ár.
Meðal mála
sem Atli hefur
flutt á þingi em
frumvarp til
breytinga á
jafnréttislögum
um stjórnvald-
súrræði til að
uppræta kyn-
bundinn launa-
mun, frumvarp
um að uppsag-
nir úr starfi
skuli vera skriflegar, rökstuddar og
málefnalegar og um miskabætur
vegna ólögmætra uppsagna.
Spurt er:
Hvað er
svona gott
við haustið?
Ingi Steinn Olalsson:
Það getur verið fallegt og maður
spáir líka í veturinn sem er fram-
undan.
íris Jónsdóttir:
Þá kemur regla á hlutina og
óreglu sumarsins er lokið.
Vilborg Þorsteinsdóttir:
Haustlitirnir í gróðrinum og nátt-
úrunni eru mjög fallegir.