Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Side 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 28. september 2006
Knattspyrnuhús og Iþróttaakademía á borði bæjarstjórnar:
Bókun minnihlutans olli meiri-
hlutanum miklum vonbrigðum
Um Íþróttaakademíuna sagði Elliði að ekki væri fyrirhugað að stofna hana því nú þegar væru 15 nemend-
ur við nám í akademíunni sem sem allir spila handbolta undir merkjum IBV.
í bæjarstjóm á fimmtudaginn lagði
Vestmannaeyjalistinn fram bókun
þar sem er áréttað er að V-listinn
hafi markað þá stefnu að byggja
skuli knattspyrnuhús í Vestmanna-
eyjum og að leitað verði allra leiða
til að byggja eins hagkvæmt og
nokkur kostur sé. Mikil umræða
varð um bókunina og hátt reitt til
höggs hjá sumum. Íþróttaakdemían
spannst inn í umræðuna og fullyrti
bæjarstjóri að hún væri komin af
stað með aðkomu ÍBV-íþrótta-
félags. Framkvæmdastjóri IBV, sem
einnig er bæjarfulltrúi, kannaðist
ekki við það, sem kom bæjarstjóra á
óvart.
I bókun V-listans segir að á síðasta
kjörtímabili hafi verið samþykkt
samhljóða að byggja knattspyrnu-
hús sem fullnægði þörfum knatt-
spyrnunnar í Vestmannaeyjum. Það
hús var u.þ.b. helmingi ódýrara en
það hús sem nú er rætt um. „Það er
mikilvægt að lögð verði fram
nákvæm kostnaðaráætlun. Það er
mikilvægt, ef ákveðið verður að
byggja knattspyrnuhús, að hug-
myndir þar um verði lagðar fyrir
eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga samanber 1. og 3. gr.
Samnings bæjarstjómar Vestmanna-
eyja og eftirlitsnefndarinnar frá 8.
ágúst sl.
I skýrslu sem lögð var fyrir menn-
ingar- og tómstundaráð koma fram
upplýsingar um að fyrirhugað sé að
stofna íþróttaakademíu við Fram-
haldsskólann. Engar upplýsingar
liggja fyrir um stofnun íþrótta-
akademíu. Engar upplýsingar liggja
fyrir um aðkomu stjómvalda eða
fjármögnun íþróttaakademíu í
Vestmannaeyjum," segir í bókun-
inni sem Lúðvík Bergvinsson,
Hjörtur Kristjánsson og Páll
Scheving voru skrifaðir fyrir.
Kemur 1 opna skjöldu
Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sagði
að bókunin kæmi sér í opna skjöldu.
„Málefni knattspyrnuhúss hafa
ítrekað verið rædd og alltaf hafa
bæjarfulltrúar verið á einu máli.
Menningar- og tómstundaráð vísaði
málinu til bæjarráðs og þar situr
Lúðvík Bergvinsson en í forföllum
hans mætti Páll Scheving sem
samþykkti afgreiðsluna aðfinnslu-
laust,“ sagði Elliði.
Hann sagði að nú væri Lúðvík
mættur og þá væri farið að tala um
allt aðra hluti og það sé ekki gott.
„Þetta hefur haft langan aðdraganda
og allir verið á einu máli. Ég lýsi
miklum vonbrigðum með þennan
vingulshátt og þama koma fram
hreinar og klárar rangfærslur í
bókun."
Er þegar tekin til starfa
Um Íþróttaakademíuna sagði Elliði
að ekki væri fyrirhugað að stofna
hana því nú þegar væru 15 nemend-
ur við nám í akademíunni. „Þessir
15 spila allir handbolta undir
merkjum IBV. Framkvæmdastjóra
IBV ætti að að vera fullkunnugt um
þetta. Það er verið að prufukeyra
módelið og það verður blásið til
fullrar sóknar næsta haust nema
eitthvað óvænt komi í ljós,“ sagði
Elliði.
Páll Scheving (V) tók næst til
máls og sagðist verða að viður-
kenna að hefði ekki hugmynd um
að Íþróttaakademía væri starfrækt
við Framhaldsskólann. „Ég hafði
ekki hugmynd um það og það er
sjálfsagt að játa það. En ég er með
tölvupóst frá bæjarstjóra þar sem
hann óskar eftir fundi með full-
trúum FÍV og ÍBV varðandi íþrótta-
akademíu í Vestmannaeyjum.
Skólameistari bað um frest en fund-
arboðið kom á mánudaginn. Stjórn
ÍBV hefur ekki sett sig inn í málið
og hefur ekki rætt það. Það lítur því
út fyrir að handboltadeildin hafi ein
gert þetta og það án þess að ræða
við stjómina," sagð Páll.
Ekki verið að breyta
nokkru
Lúðvík Bergvinsson (V) sagðist
vilja upplýsa að þó V-listinn hefði
samþykkt í menningar- og tóm-
stundaráði að vísa málefnum
knattspyrnuhúss til bæjarráðs hefði
það verið gert á þeirra rökum og
forsendum. „Hér er ekki verið að
breyta nokkru eða setja málið í
annan farveg. Það er afar mikilvægt,
já, mjög mikilvægt að setji menn
fram röksemdir sé það gert af hóf-
semd en ekki eins og bæjarstjóri
gerði hér áðan,“ sagði Lúðvík.
Páley Borgþórsdóttir (D) sagði
bókunina mikil vonbrigði. Knatt-
spyrnuhús hefði fengið mikla
umræðu og í menningar- og tóm-
stundaráði þar sem bæjarstjóra hafi
verið falið að vinna að gerð kostn-
aðaráætlunar og kanna fjármögnun.
„Hverju vilja menn breyta þegar
búið er að vísa málinu til bæjarráðs.
Þetta eru mikil vonbrigði í þessu
góða máli,“ sagði Páley.
Afram hélt umræðan og næst var
komið að Páli Marvin Jónssyni (D)
sem sagði bókunina mikil von-
brigði. „Þetta eru mikil vonbrigði
þegar við erum að róa ákveðnar
leiðir með því að fá ríkið til að
koma að stofnun Íþróttaakademíu.
Nú fáum við þetta framan í okkur
frá Páli Scheving, framkvæmda-
stjóra IBV þegar við erum að keyra
þetta með handboltanum. Til að
akademían fari af stað þarf knatt-
spymuhús. Þetta em vonbrigði fyrir
hönd íþróttahreyfmgarinnar í
Vestmannaeyjum," sagði Páll
Marvin.
Margrætt við fulltrúa ÍBV
Elliði kom næstur í pontu og sagði
að jarðvegurinn hefði verið
undirbúinn frá því í vor. „Ég hef
margsest niður með fulltrúum ÍBV,
þeim Erlingi Richardssyni, Hlyn
Sigmarssyni og margrætt þetta við
Pál Marvin. Eg hef líka margrætt
þetta við Pál Scheving og á engum
tímapunkti hefur komið fram and-
staða við knattspyrnuhús, heldur
þvert á móti. A síðasta bæjar-
stjómarfundi ræddum við hvemig
hús ætti að byggja og hversu mikil-
vægt það væri að byggja knatt-
spymuhús ef við ætlum okkar að
nýta það sóknarfæri sem Fram-
haldsskólinn hefur með stofnun
Íþróttaakademíunnar og um leið
fyrir IBV-fþróttafélag. Ég á það
ekki orðrétt þegar Páll hrósar okkur
fyrir djörfung í þessu máli en svo
mætir Lúðvík hér á fund og þá
verða sinnaskípti. Þetta er vont í
stjómsýslunni. Við emm að reyna
að vinna saman að stjóm bæjar-
félagsins eins og við vorum kjörin
til. Og málefni knattspymuhúss og
Iþróttaakademíu hafa verið unnin af
heilindum hingað til,“ sagði Elliði
sem sagði þetta þyngra en támm
taki því þama séu tækifæri fyrir
skólann, íþróttahreyfmguna og
Vestmannaeyjar allar.
Hissa á gífuryrðum
Hjörtur Kristjánsson (V) var hissa á
gífuryrðum sem bæjarfulltrúar
hefðu látið falla í umræðunni.
„Þetta er ekki spuming um að vera
með eða á móti. Þetta er lítil
afgreiðslutillaga sem hefur ekkert
með að gera að vera með eða á móti
knattspymuhúsi eða Akademíu. Það
kemur mér gífurlega á óvart hvað
gffurlega mikil gífuryrði hafa fallið
í umræðunni," sagði Hjörtur og
lagði áherslu á orð sín.
Forseti bæjarstjómar, Gunnlaugur
Grettisson, sá ástæðu til að setja
ofan í við Hjört og sagði ekki við
hæfi að gera grín eða hæða aðra
bæjarfulltrúa.
Elliði sagði það gífurleg vonbrigði
að sjá nýja bæjarfulltrúa gera sig að
fífli.
Hjörtur sagði bæjarfulltrúa hafa
haft uppi gífuryrði og menn verið
sakaðir um vingulshátt. Jafnt yrði
yftr alla að ganga með ávítur.
Forseti sagði að enginn hefði verið
ávíttur en hvatti til hófsemi það yrði
bæjarfulltrúum til sóma.
Páll Scheving sagðist hafa dáðst að
kjarki meirihlutans en ekki sam-
þykkt knattspymuhús upp á allt að
400 milljónir. „Við viljum að áfram
verði unnið að framgangi knatt-
spyrnuhúss en ég hef bent á að við
lögðum til helmingi ódýrara hús.
Það er mikilvægt að akademían
komist af stað en hver kallar mig
andstæðing íþrótta í Vestmanna-
eýjum? Það em nýjar fréttir og ný
tíðindi að íþróttabraut sé tekin til
starfa.
Ég las það í blöðum að hún ætti að
byrja næsta haust en það er gott ef
hún er þegar byrjað. En ég hef
aldrei verið á móti knattspymuhúsi
og akademíu og bókunin er
nauðsynlegt gagn í þessu máli,“
sagði Páll.
Páley sagði þessa deilu ótímabæra
því engar tillögur um kostnað lægju
fyrir. „Það er búið að vinna í íþrótta-
akademíu og við höfum verið í
viðræðum við rikið og allt er þetta
hið besta mál. Það fylgja því mörg
tækifæri og við megum ekki eyði-
leggja það og ekki draga íþrótta-
akademíuna ofan í eitthvert svað.
Þessi bókun er óþöf,“ sagði Páley.
Framtíðarskipulag háskóla- og rannsóknastofnanna
Á fundi bæjarstjórnar á fimmtu-
daginn lagði meirihluti sjálfstæðis-
manna fram tillögu um framtíðar-
skipulag háskóla- og rannsókna-
stofnana í Vestmannaeyjum. Til-
lagan gerði ráð fyrir að að fela
bæjarstjóra að ræða við mennta-
málaráðuneytið um skipan sérstaks
starfshóps, skipuðum fulltrúum
ráðuneytisins, bæjaryfirvalda og
Rannsókna- og fræðasetursins til
að fjalla um og koma með tillögur
um framtíðarskipulag háskóla- og
rannsóknastofnana í Vestmanna-
eyjum.
Meginmarkmið hópsins verður að
endurskipuleggja aðstöðu til rann-
sókna og háskólanáms í Vest-
mannaeyjum.
í greinargerð segir að mikil
áhersla hafi verið á uppbyggingu
háskólanáms á landsbyggðinni í
þeim tilgangi að skapa forsendur
fyrir jákvæða byggðaþróun. „Árið
1993 gerðu Vestmannaeyjabær og
Háskóli íslands með sér samning
um að byggja upp rannsókna-
aðstöðu og opna útibú frá Háskóla
íslands í Eyjum. Rannsókna- og
fræðasetrið var síðan opnað haustið
1994. Meginmarkmið Setursins var
að leiða saman þær rannsókna-
stofnanir sem þá voru til staðar í
Eyjum og tengja við útibú Háskóla
íslands sem tók til starfa á sama
tíma. Með því að setja þessar
stofnanir undir sama þak tókst að
skapa þverfaglegt rannsókna-
umhverfi innan raunvísinda. Þær
rannsóknastofnanir sem hafa að-
setur í Setrinu í dag eru Háskóli
íslands, Hafrannsóknastofnunin,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarips,
Rannsóknaþjónustan Vm. ehf. og
Náttúrustofa Suðurlands. Þá er
Viska, fræðslu- og símenntunar-
miðstöð Vestmannaeyja sem hóf
starfsemi 2003, með skrifstofu og
kennsluaðstöðu í Setrinu.
Um þessar mundir stunda 60 til 70
manns háskólanám í Eyjum í gegn-
um fjarnámsbúnað og fjöldi ann-
arra tekur þátt í almennum nám-
skeiðum Visku.
Mikið hefur breyst í rannsókna-
og háskólasamfélaginu frá stofnun
Setursins og ber þar hæst fjölgun
háskóla í landinu og efling fræða-
setra á landsbyggðinni með vírkri
aðkomu ríkisins. Fjölgun háskóla
hefur almennt leitt til eflingar fjar-
náms og aukins námsframboðs á
háskólastigi. Uppbygging á há-
skólasamfélagi og aukin þekking
og/eða menntun f heimabyggð er
talin vera ein meginforsenda já-
kvæðrar byggðarþróunar úti á
landi.
Það er mikilvægt að Vestmanna-
eyjar taki virkan þátt í þessari
þróun og marki sér nýja fram-
tíðarsýn í þessum málum, með
aðkomu ríkisins og hinum fjöl-
mörgu háskóla- og rannsóknastofn-
unum sem gera sér grein fyrir
mikilvægi þess að starfa í Vest-
mannaeyjum.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
hefur tekið að sér að leiða vinnu er
lítur að stöðumati og stefnumótun
stofnana Setursins í tengslum við
Vaxtasamning Suðurlands. Sú
vinna mun nýtast starfshópnum til
að móta tillögur um framtíðar-
stefnu og skipulag háskólanáms og
rannsókna í Vestmannaeyjum,"
segir í greinargerð með tillögunni
sem var samþykkt samhljóðaa.