Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Qupperneq 14
14
Ffgttir / Fimmtudagur 28. september 2006
Landa-
KHiKJA
Fimmtudagur 28. september
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
fræðslustofu Safnaðarheimilisins.
Gengið inn frá Skólavegi. Spjall
og uppbyggileg stund yfir kaffi-
bolla. Sr. Kristján.
Kl. 14.30. Helgistund á Sjúkra-
húsinu, dagstofu 2. hæð. Kl.
20.00. Fundur í 12 spora andlegu
ferðalagi. Vinir í bata.
Kl. 20.00. Æfing hjá Kór Landa-
kirkju.
Kl. 20.00. Opið hús f KFUM&K
heimilinu við Vestmannabraut.
Sunnudagur 1. október
Kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta
með miklum söng, lofgjörð og
gleði. Barnafræðararnir Sigurlína,
Elfa Ágústa, Guðrún, Rakel og
Þröstur leiða stundina með presti.
Kl. 11.00. Kirkjuprakkarar,
kirkjustarf 6 TIL 8 ára krakka
hefst með barnaguðsþjónustunni
en færist síðan í fræðslustofuna til
Esterar Bergsdóttur, leiðtoga.
Kl. 14.00. Messa með altaris-
göngu. Fermingardrengirnir Ari
Brynjólfsson og Jóhann Gunnar
Aðalsteinsson lesa úr Ritning-
unni.
Kl. 16.00. TTT- kirkjustarf.
Kl. 20.30. Fundur í Æskulýðs-
félagi Landakirkju-KFUM&K.
Mánudagur 2. október
Kl. 18.00. Haustfundur starfs-
manna og sóknarnefndar í
Safnaðarheimilinu. Sóknarprestur
og formaður sóknarnefndar stýra
fundinum.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá
Kvenfélagi Landakirkju. Stjórnin.
Þriðjudagur 3. október
Kl. 11 - 12.00. Viðtalstímar
presta þriðjudaga til föstudaga.
Kl. 13.15, 14.50 og 15.40.
Fermingarfræðsla í fræðslu-
stofunni. Sr. Kristján.
Kl. 20.00. Fundur í Gideon-
félaginu í Eyjum í fundarherbergi
nýja Safnaðarheimilisins.
Miðvikudagur 4. október
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 15.10. Fermingarfræðsla í
fræðslustofu.
Kl. 20.00. Aglow, fundur og
samvera kvenna í öllum
kirkjudeildum. Stjórn Aglow.
HVÍTA
SUNNUEIEKJAN
Fimmtudagur 31. ágúst
Kl. 20:30 Biblíuleshópur Post-
ulasagan.
Föstudagur 1. september
Kl. 20:30 Unglingakvöld.
Laugardagur 2. september
Kl. 20:30 Bæn- og lofgjörð.
Sunnudagur 3. september
Kl. 13:00 SAMKOMA.
Aglow
Aglowfundur vetrarins verður í
Safnaðarheimilinu Á miðvikudag
kl. 20.00.
Kafftgjald 500 krónur.
Allar konur velkomnar.
AíIVENTKI RKJAN
Laugardagur
Kl. 10:30 Biblíurannsókn.
SKÁKMENN á öllum aldri tóku þátt í mótinu sem var nokkuð sterkt.
Vel heppnuð skákveisla í Höllinni á laugardaginn:
Björn ívar í átta liða úrslit í atskák
-Helgi Ólafsson sigraði á afmælismóti Taflfélags Vestmannaeyja
Á laugardaginn fór fram Meist-
aramót Islands í atskák en tæplega
40 keppendur tóku þátt í mótinu.
Enginn stórmeistari var með þetta
árið cn engu að síður voru alþjóð-
legir meistarar áberandi á meðal
keppenda og mótið því nokkuð
sterkt.
Teflt var með útsláttarfyrirkomu-
lagi, byrjað í 32 manna úrslitum
eftir forkeppni og síðan teflt þar til
tveir stóðu eftir. Þeir tveir sem
komust í gegnum umferðirnar voru
þeir Bragi Þorfinnsson og Arnar
Gunnarsson, báðir alþjóðlegir
meistarar en þeir munu tefla til
úrslita í mótinu f sjónvarpssal
Ríkissjónvarpsins í næstu viku.
Bjöm ívar Karlsson komst alla leið
í átta manna úrslit en féll þar úr leik
og var það besti árangur heima-
manna í mótinu.
Samhliða Meistaramótinu fór
fram glæsilegt afmælismót Tafl-
félags Vestmannaeyja í tilefni af 80
ára afmæli Taflfélagsins. Þar var
keppt í hraðskák en munurinn á
atskák og hraðskák er eingöngu
leiktími keppenda en tíminn er mun
styttri í hraðskák. Enda sáust oft
skemmtileg tilþrif þegar tíminn var
að renna út og þá var oft handa-
gangur í öskjunni.
Keppt var í fimm flokkum og var
Helgi Ólafsson eini stórmeistarinn
sem tók þátt í mótinu. Hann sigraði
í opnum flokki en Helgi teflir fyrir
Taflfélag Vestmannaeyja.
Veitt voru myndarleg peninga-
verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í
hverjum flokki fyrir sig en úrslitin
urðu eftirfarandi.
Sigurvegarar:
1. Helgi Ólafsson TV
2. Bergsteinn Einarsson TR
3. Hrannar Baldursson TH
Flokkur keppenda með undir 1900
skákstigum:
1. Guðfríður L. Grétarsdóttir TH.
2. Sigurjón Þorkelsson TV
3. Páll Sigurðsson TG
Flokkur keppenda undir 1600 skák-
stig:
1. Elsa María Þorfinnsdóttir TH
2. Víkingur Fjalar Eiríksson TR
3. Stefán Gíslason TV
Börn 12 ára og yngri:
1. Nökkvi Sverrisson TV
2. Alexander Gautason/Bjartur Týr
Ólafsson TV
3. Sindri Freyr Guðjónsson TV
Börn yngri en 10 ára:
1. Daði Steinn Jónsson TV
2. Hafsteinn Valdimarsson TV
3. Ársæll Guðjónsson TV
Verðlaunahafar á Vestmannaeyjamótinu.
Vestmannaeyjamót 14 ára og yngri:
Margir bættu árangur sinn
Vestmannaeyjamót 14 ára og yngri
var haldið á dögunum. Náðist góður
árangur og bættu margir árangur
sinn.
í flokki 9 til 10 ára náði Elliði
Ivarsson bestum árangri í sínum
flokki og sigraði í 60 m hlaupi á
10,47 sek., í langstökki stökk hann
3,29 m og í kúluvarpi kastaði hann
6,27 m.
Björn Virgill Hartmannsson
sigraði í flokki ll til 12 ára í 60 m
hlaupi á 10,12 sek., stökk 3,79 m í
langstökki og kastaði kúlunni 5,97
m. Margrét Björk Grétarsdóttir
sigraði svo í flokki 8 ára og yngri í
60 m. hlaupi á 11,15 sek. og stökk
2,98 m í langstökki.
Karl Marinósson sigraði í flokki
13 til 14 ára í 60 m hlaupi á 9,81
sek., stökk 3,83 m. í langstökki,
1,25 m í hástökki, kastaði kúlunni
7,37 m í kúluvarpi og hljóp 400 m á
75,38 sek. og þykir vera efni í
framtíðar tugþrautarkappa.
Kristin Sólveig Kormáksdóttir
sigraði svo í kvennaflokki 13 til 14
ára en hún hljóp 60 m á 9,20 sek.,
stökk 4,29 m í langstökki, kastaði
kúlunni 7,20 m í kúluvarpi en
Ragnheiður Perla Hjaltadótir
sigraði í hástökki með 1.15 m.
Veður var mjög gott meðan á mót-
inu stóð en aðstæður til iðkunar
frjálsra íþrótta eru, eins og allir vita,
fyrir neðan allar hellur þrátt fyrir
mikla vinnu vallarstjóra áður en
mótið hófst. Krakkarnir áttu eríitt
með að ná spymu í völlinn þar sem
mölin á hlaupabrautinni er bæði
stórgrýtt og laus í sér.
Á dögunum tók hópur frá
Ungmennafélaginu Óðni þátt í
Meistaramóti unglinga en í
umfjöllun um mótið láðist að
greina frá sigri Ragnheiðar Perlu
Hjaltadóttur í 100 m hlaupi og
Jóhanni Helga sem fékk gull-
vcrðlaun í langstökki.
ÆFingar hófust svo í byrjun
vikunnar en nánari upplýsingar
um æfingatíma hanga á kork-
töflunni í íþróttahúsinu.