Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Side 15
Frcttir / Fimmtuda.gui' 28. september 2006
15
Úrvalsdeild kvenna í handbolta: HK - ÍBV 27:24
Meistararnir töpuðu fyrsta leik
töpuðu óvænt fyrir spútnikliði HK á útivelli
Eyjastúlkur hafa ekki farið vel af
stað í upphaft leiktíðar en í síðustu
viku tapaði Iiðið stórt á heimavelli
gegn Haukum í Meistarakeppni
HSÍ. Á þriðjudagskvöld lék liðið
svo sinn fyrsta leik í íslandsmótinu,
á útivelli gegn HK en ÍBV hafði
tryggt sér Islandsmeistaratitilinn á
sama velli síðasta haust. En nú voru
HK-stúlkur sterkari og unnu 27:24.
Leikmenn IBV voru mun sterkari í
fyrri hálfleik, náðu m.a. sex marka
forystu þegar rúmlega tíu mínútur
voru búnar og voru yfír í hálfleik
11:15. En svo hófst síðari hálf-
leikur og óhætt að segja að leikur
liðsins hafi gjörsamlega hrunið.
HK breytti stöðunni úr 11:15 í
16:15 og fyrsta mark ÍBV kom ekki
fyrr en eftir átta mínútna leik. í
nokkra stund skiptust liðin á að
skora en fljótlega sigu heima-
stúlkur fram úr og unnu eins og
áður sagði með þremur mörkum.
Einar Jónsson, þjálfari ÍBV, var
ósáttur þegar blaðamaður heyrði í
honum eftir leik. „Við byrjuðum
mjög vel, komumst í 8:2 og ágætis
rennsli á þessu. Svo veit ég hrein-
lega ekki hvað gerist í seinni
hálfleik," sagði Einar.
„Sæunn meiðist undir lok fyrri
hálfleiks en ég veit í raun ekki hvort
það hafði þau áhrif að leikur liðsins
hrundi. Þetta bara algjörlega hrundi
í seinni hálfleik. Þegar Sæunn
dettur út þá þarf ég að róta til í þessu
en við erum bara ekki komin lengra
en það að þegar einn leikmaður
dettur út þá ráðum við illa við það.“
En er liðið í nógu góðu formi ef það
heldur ekki út í heilan leik.
„Mér finnst liðið vera í formi
þannig að það var ekki þannig að
stelpurnar væru uppgefnar. Þessar
30 mínútur í seinni hálfleik voru
bara algjör hörmung og það voru
leikmenn í liðinu sem voru hrein-
lega ekki að skila sínu. Valentina
var reyndar að spila vel en það er
bara nóg framundan hjá okkur.
Næsti leikur er á laugardaginn og
svo aftur leikur á þriðjudaginn eftir
viku. Allt eru þetta erfiðir leikir
þannig að við verðum heldur betur
að láta hendur standa fram úr
ermum. Ég vona bara að þetta sé
gott spark í rassinn á okkur og við
komum tvíefld til baka,“ sagði
Einar að lokum.
Mörk ÍBV: Valentina Radu 13/1,
Andrea Low 4, Pavla Plaminkova
4/2, Sæunn Magnúsdóttir 2, Pavla
Nevarylova I.
Varin skot: Branca Jovanovic 17/3.
Leikmenn ÍBV hafa ekki farið vel af stað á tímabilinu sem er nýhafið.
Hér eru þær Pavla Plaminkova, Andrea Löw, Renata Horvath,
Valentina Radu og Hekla Hannesdóttir eftir tapleik gegn Haukum í
síðustu viku.
íþróttir
Leikið í
Landsbankadeild karla: ÍBV - Fylkir 2:0
Enduðu tímabilið á sigri
Heimir fyrsti kostur sem þjálfari ÍBV næsta sumar
Tveir efnilegir. Markvörðurinn Elías Fannar Stefnisson og Egill
Jóhannsson léku báðir með IBV í síðasta leik og eru framtíðar leik-
menn liðsins. Með þeim á myndinni er varnarjaxlinn Páll Þ. Hjarðar.
körfubolta
um helgina
íslandsmótið í körfubolta hefst
hjá 8. flokki ÍBV um helgina en
fyrsta mótið fer fram hér í
Eyjum. Strákarnir tóku miklum
framförum síðasta vetur og unnu
sig upp úr C-deild og leika nú í
B-deild. Og andstæðingamir eru
ekki af verri endanum, Valur,
Tindastóll, KR og Hamar. Fyrstu
leikimir heíjast síðdegis á laugar-
dag en mótinu lýkur svo um
hádegi daginn eftir. Fyrsti leikur
ÍBV er klukkan 18.00 á laugar-
dag gegn Tindastóli og svo
klukkan 20.00 gegn KR.
Morguninn eftir, klukkan 10.00
leika Eyjapeyjar svo gegn Val.
Bjöm Einarsson, þjálfari
flokksins sagði að andstæðingar
ÍBV væm allt félög með mikla
reynslu. „Ég þjálfaði þessa
stráka í Tindastóli á sínum tíma
pg þá urðum við í öðm sæti í
Islandsmótinu. Núna eru þeir
komnir niður í B-riðil en eru
samt sem áður með mjög sterkt
lið. KR-ingar em líka mjög
sterkir en við emm með rosalega
duglega stráka sem geta alveg
staðið í þessum liðum.
Markmið þjálfarans em skýr
fyrir helgina. „Við ætlum að
halda sæti okkar í B-riðli. Við
erum á heimavelli og viljum fá
góðan stuðning um helgina. Ef
það gengur eftir og við náum að
spila vel þá höldum við sæti
okkar í riðlinum. Markmið
vetrarins er að verða sterkt B-
riðils lið,“ sagði Bjöm að lokum.
Eyjamenn kvöddu úrvalsdeild karla
í knattspymu með sæmd þegar liðið
lagði Fylki að velli síðasta laugar-
dag. Lokatölur urðu 2:0 og í raun
áttu gestirnir aldrei möguleika í
leiknum. Það kom svo í hlut
Grindvíkinga að fylgja ÍBV eftir í 1.
deildina og því ljóst að ekkert lið
utan Faxaflóasvæðisins mun leika í
efstu deild að ári.
Eyjamenn léku afar vel í leiknum
gegn Fylki og héldu áfram á sömu
braut undir stjórn Heimis
Hallgrímssonar. Elías Fannar
sannaði með stórkostlegri mark-
vörslu í síðari hálfleik að þar er
efnilegur markvörður á ferð.
Innkoma Egils Jóhannssonar var
líka góð og Anton Bjamason stóð
sig vel í byrjunarliðinu.
Viðar Elíasson, formaður knatt-
spymuráðs, segir að undirbúnings-
vinna fyrir næsta tímabil sé hafið.
Knattspymuráð er byrjað að leita að
þjálfara fyrir liðið og er Heimir
Hallgrímsson fyrsti kostur í stöð-
una. „Við emm í viðræðum við
Heimi um að taka þetta verkefni að
sér en það verður ekki dvalið lengi
við einn mann. Við viljum ráða
þjálfara sem fyrst," sagði Viðar.
Þegar hann var spurður hvort það
gengi að þjálfari liðsins væri í
Vestmannaeyjum yfir vetrartímann
þegar stærsti hluti leikmanna-
hópsins væri í Reykjavík þá sagði
hann að það væri ekki alveg rétt.
„Mér sýnist að stór hluti leikmanna-
hópsins verði hér í Eyjum þannig að
það er ótvíræður kostur ef við
höfum þjálfara búsettan hér. Svo er
í framhaldi hægt að leysa þjálfun
leikmanna sem eru búsettir í
Reykjavík."
Samkvæmt heimasíðu KSI eru
eftirtaldir leikmenn ekki með samn-
ing eða samning sem rennur út á
þessu tímabili: Atli Jóhannsson,
Bjami Geir Viðarsson, Bjarni Rúnar
Einarsson, Elías Fannar Stefnisson,
Guðjón Magnússon, Mark J.
Schulte, Pétur Runólfsson, Sævar
Eyjólfsson, Thomas Lundbye, Ulrik
Drost. Viðar segir að vilji sé að
halda flestum af þessum leik-
mönnum. „Við munum ekki semja
aftur við dönsku leikmennina.
Schulte hefur lýst yfir áhuga á að
vera áfram hjá okkur en hann er
búinn að vera mikið meiddur og
spuming hvort hann leggi skóna á
hilluna. Jonah Long, Garner og
Mwesigwa verða allir áfram eins og
staðan er í dag. Bjami Geir er
bundinn vinnu og námi og án þess
að ég ætli að tala fyrir hans hönd, þá
tel ég að það verði erfítt fyrir hann
að vera áfram hjá okkur. En fyrir
utan þessa leikmenn þá er stefnan
hjá okkur að ná í aðra leikmenn.
Við höfum sett stefnuna upp aftur í
efstu deild næsta sumar og ráðum
þjálfara í takti við þær væntingar.
Sá þjálfari verður auðvitað að hafa
mannskap sem er tilbúinn í slaginn í
1. deild."
Varðandi knattspyrnuráðið sjálft
segir Viðar að lfklegt sé að flestir
haldi áfram. „Fótbolti íVestmanna-
eyjum er hins vegar ekkert einkamál
okkar sem emm í knattspymu-
ráðinu. Við hlustum á gagnrýnis-
raddir og viljum fá sem flesta að
þessari vinnu. Það væri ekkert mál
að búa til meistaralið ef maður hefði
fleiri með sér og betri aðgang að
fjármunum og fyrirtækjum. Oft
þarf ekki nema einn einstakling til
að opna leið að styrkjum hjá
ákveðnu fyrirtæki. Við þurfum öll
að leggjast á eitt hér í Vestmanna-
eyjum til að búa til gott knatt-
spymulið,“ sagði Viðar að lokum.
Iþróttir
Fjórði flokkur
í l.deild
A-Iið 4. flokks kvenna í hand-
bolta lék í forkeppni Islands-
mótsins um helgina en í for-
keppninni er liðum raðað upp í
deildir eftir styrkleika. Breytt
fyrirkomulag er nú á Islandsmót-
inu í 4. flokki þar sem nú er
leikið heima og heiman en áður
voru turneringar. B-lið IBV
þurfti ekki að taka þátt í for-
keppni þar sem liðin þar eru
aðeins tíu talsins.
A-liðið gerði sér lítið fyrir og
vann alla leiki sína um helgina
og spilar því í l. deild í vetur.
Urslit leikjanna urðu þessi: ÍBV-
Víkingur 16:13, ÍBV-ÍR 16:11 og
ÍBV-KR 27:11. Markahæstar um
helgina vom þær Elísa Viðars-
dóttir með 16 mörk og þær
Kristrún Hlynsdóttir og Andrea
Káradóttir báðar með 11 mörk.
Heiða Ingólfsdóttir varði vel í
markinu.
Þriðji flokkur
hélt sæti sínu
Þriðji flokkur karla hélt sæti sínu
í B-deild í knattspyrnu með sigri
gegn Aftureldingu í hreinum
úrslitaleik um hvort liðið félli.
Liðin mættust á Þórsvellinum í
síðustu viku og dugði Mosfell-
ingurn jafntefli til að tryggja sæti
sitt í B-deild. Eyjamenn höfðu
hins vegar betur 4:2 og komust
þar með upp fyrir Aftureldingu
sem féll ásamt Keflavík.
Eyjamenn voru l :0 yfir í hálf-
leik en Mosfellingar jöfnuðu
fljótlega í síðari hálfleik. En tvö
mörk í röð frá ÍBV gerðu út um
leikinn og liðin skoruðu sitt hvort
markið á lokamínútunum. Orri
Gústafsson skoraði þrjú mörk í
leiknum og Birkir Helgason eitt.
Fannar og Atli
í liði vikunnar
Hinn 15 ára gamli markvörður
ÍBV, Elías Fannar Stefnisson og
miðjumaðurinn sterki, Atli
Jóhannsson voru báðir valdir í lið
vikunnar í Morgunblaðinu.
Fannar fór fljótlega eftir leikinn
til Rúmeníu þar sem íslenska U-
17 ára landsliðið leikur í for-
keppni Evrópumótsins. Liðið
hafði lcikið einn leik þegar þetta
er skrifað, gerði jafntefli gegn
heimamönnum l: l en Fannar
vermdi tréverkið.
Framundan
Föstudagur 29. september
Kl. 19.00 Höttur-ÍBV
l. deild karla.
Laugardagur 30. september
Kl. 13.00 Höttur-ÍBV
l. deild karla.
Þriðjudagur 3. október
Kl. 19.00 Grótta-ÍBV
Úrvalsdeild kvenna.
Um helgina:
Fjölliðamót,
8. flokkur körfubolta í Eyjum.