Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2006, Side 16
Frétta- og auglysingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
Síðasta laugardag var konum í Kvenfélagi Landakirkju boðið til helgistundar í kapellu sjúkra-
hússins en miklar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á kapellunni. Kvenfélag Landa-
kirkju kostaði breytingarnar sem eru einstaklega vel heppnaðar. Lagfæringar voru gerðar á lofti,
ný ljós keypt, gólfefni og stólar. Gjöfln var afhent formlega til sjúkrahússins við þetta tækifæri. A
myndinni er sr. Kristján Björnsson ásamt fimm af stjórnarmönnum Kvenfélags Landakirkju,
Oddný Bára Ólafsdóttir, Kristín Georgsdóttir, Svandís Unnur Sigurðardóttir formaður, Oddfríður
Jóna Guðjónsdóttir, Sveininna Bjarkadóttir og hjúkrunarforstjóri sjúkrahússins, Eydís Ósk
Sigurðardóttir sem veitti gjöflnni viðtöku. í stjórn Kvenfélags Landakirkju eru einnig þær
Guðfinna Georgsdóttir og Erna Jónsdóttir.
Skólameistari FÍV í Íþróttaakademíuna:
Stefnt á að byrja næsta haust
Staðan á Íþróttaakademíu í Vest-
mannaeyjum er sú að unnið er að
undirbúningi í Framhaldsskólanum,
kannaður hefur verið hugur nem-
enda á að stunda nám tengt
akademíunni og stefnt er að því að
hefja námið af fullum krafti á næstu
haustönn.
Fyrsta skrefið er námskeið sem
haldið verður í haust og fæst metið
af íþrótta og Ólympíusambandi
Islands. Gert er ráð fyrir að við-
ræður við ÍBV-íþróttafélag og aðra
sem að málinu koma hefjist í þess-
ari viku. #
Ólafur H. Sigurjónsson, skóla-
meistari, sagði í samtali við Fréttir
að í skólanum væri unnið við að
fínpússa námskrá og skipulag sem
lagt verður fyrir menntamála-
ráðuneytið, en hugmyndir skólans
hafa áður verið kynntar ráðuneyt-
inu.
„I haust könnuðum við meðal
nemenda hvort einhverjir hefðu
áhuga á að nýta sér þetta nám. Það
voru tíu eða tólf sem lýstu yfir
áhuga á að stunda nám við íþrótta-
akademíuna eða hvað við komum
til með að láta þessi námsleið heita.
Við gátum lítið gert á þessari önn
því fyrirvarinn var svo skammur.
Reyndar verður haldið grunn-
námskeið fyrir þá sem áhuga hafa á
að þjálfa böm og unglinga í iþrótt-
um. Erlingur Richardsson, kennari
við skólann, er að skipuleggja
námskeiðið," sagði Ólafur.
Hann sagði að hugmyndin væri að
nám við Íþróttaakademíuna verði
hluti af félagsfræðibraut. „Hún yrði
valkostur við skólann næsta haust.
Kynning færi þá fram í vor en lykil-
atriði er að það fáist nægilega marg-
ir nemendur eins og í öllu öðru
námi.“
Hafið þið rætt við ÍBV? „Nei, en
það er verið að reyna að finna tíma
í þessari viku fyrir fund með okkur,
IBV, fulltrúum bæjarins og öðrum
sem koma þurfa að þessu. Aðkoma
þessara aðila og samstarfsform þarf
að liggja fyrir áður en lagt verður
upp,“ sagði Ólafur að endingu.
Stóru tækin seld og Sjúkraflugs-
leita a til einkaaðila j Skúffu?
Jarðýtan og stóri hefill
Þjónustumiðstöðvarinnar voru
seld fyrir skömmu upp á land.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, yfir-
maður miðstöðvarinnar, staðfesti
þetta í samtali við Fréttir.
Söluverð var 996 þúsund krónur
með virðisaukaskatti. Sagði
hann að vélarnar hafi verið seld-
ar fyrir lítið til að losna við þær
og ekki yrði fjárfest í nýjum „Ef
á þarf að halda þá tökum við
tæki á leigu en bæði hefillinn og
jarðýtan hafa verið lítið notuð
undanfarið. Ég held að það séu
þrjú eða fjögur ár síðan ýtan var
notuð síðast.“
Sagði hann jafnframt að það
væri töluverður kostnaður fólg-
inn í að farga slíkum tækjum.
„Við reynum að vera ekki í
beinni samkeppni við einkaaðila.
Til dæmis stóð til að fjárfesta í
gröfu fyrir skömmu en þá kom í
Ijós að einkaaðili hugðist gera
slíkt hið sama. Var hætt við það
hjá bænum enda ekki stefnan að
þrengja að einkaaðilum.“
Guðmundur sagði til að mynda
varðandi snjóruðning að þá
hefur verið sett upp aðgerðar-
plan sem miðar að því að ryðja
sem mest á sem skemmstum
tíma. „Við skiptum bænum
niður í ýmis svæði sem verk-
takar í bænum sjá um ruðning á
til móts við bæjaryfirvöld. Allt
miðar þetta að því að vera nógu
snöggir að opna allar leiðir.“
Ekkert bólar enn á sjúkraflugs-
skýrslu heilbrigðisráðuneytisins
þrátt fyrir að tæpir þrír mánuðir
eru frá því að Elliði Vignisson
bæjarstjóri óskaði eftir úttektinni.
Bráðabirgðaskýrsla kom út
tveimur vikum eftir að ósk Elliða
var sett fram og voru gerðar fjöl-
margar athugasemdir við hana.
Hefur blaðamaður margítrekað
haft samband við ráðuneytið sím-
leiðis en engar upplýsingar fengið
aðrar en þær að vinna við skýrsl-
una væri í gangi. Eins hefur
tölvupóstum ekki verið svarað.
Elliði hafði sömu sögu að segja.
„Ég hef þurft að leita eftir öllum
upplýsingum og er orðinn lang-
eygur að bíða eftir niður-
stöðunni."
VIKUTILBOÐ
28. sept - 4. okt.
Dan Cake Rúllutertur
verð nú kr. 198/-
verð áður kr. 289,-
Smjörvi 300 g
verð nú kr 149,-
verð áður kr 189,-
Egils Kristall o,s l
verð nú kr. 88,-
verd áður kr. 122,-
Kit Kat
verð nú kr. 69,-
veré áður kr. 99,-
Cordon Bleu
verð nú kr. 369,-
verð áður kr. 460,-
Munið heita matinn í hédeginu!
HAR LIST
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
FANcy
Snyrtistofa ð verslun
Skólavegi 6
s. 481-3330