Fréttir - Eyjafréttir - 23.06.2011, Blaðsíða 16
FRÉTTIR I þlús Í4C ☆ ™ u sumBRFER0,R JJMBOÐ J rYJUfVJ:
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 rmfMrJUjr' .rí]jJjJJ9£Jf£E}£JjrJ 3'/h6lJíl@3ljJjJJ3Lk>
SIGURBJÖRG KRISTÍN Óskarsdóttir hélt um helgina sýningu á vörum sem hún hannar og útbýr úr kjúk-
lingaskinni. Þar var margt athyglisvert að sjá og hér er Sigurbjörg, t.h. að spjalla við Fanneyju Asgeirs-
dóttur, skólastjóra, sem var meðal fjölmargra sem litu við.
Sorporkustöðin - UST stendur á sínu - Dagsektir frá 1. júlí:
Bærinn biður um lengri frest
Á síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs lá fyrir svar Umhverfis-
stofnunar frá 30. maí 2011 vegna
óska Vestmannaeyjabæjar frá 20.
aprfl sl. um frestun á þvingunarúr-
ræðum. Fram kemur í bréfi
Umhverfisstofnunar að frestur til
úrbóta er til 1. júlí nk., að öðrum
kosti komi til dagsekta og annarra
þvingandi úrræða.
f fundargerð segir að í bréfi Um-
hverfisstofnunar frá 9. maí sl. komi
fram að áætlaður verktími vegna
þeirra úrbóta sem þarf að gera á
Sorporkustöðinni sé þrír til sex
mánuðir að mati stofnunarinnar en
fresturinn til úrbóta sé aftur á móti
innan við þrjár vikur.
„Það er ljóst að tímaramminn er
ófullnægjandi og ekki hægt að gera
viðeigandi ráðstafanir á þeim tfma.
Einnig liggur fyrir að ekki er unnt
að uppfylla skilyrði um mælingu
vegna anna hjá Nýsköpunarmiðstöð
en UST hefur óskað eftir niður-
stöðum nýrra mælinga fyrir 25. júní
nk.,“ segir í fundargerðinni.
Þá er kvartað yfir því að Vest-
mannaeyjabær hafi sent erindi til
Umhverfisstofnunar þann 20. apríl
með ósk um frest en svar barst ekki
fyrr en 30. maí, eða 40 dögum síðar.
Þá hafi verið gefinn frestur til 1. júlí
sem eru einungis 20 vinnudagar frá
því svar berst þar dagsektum verður
beitt.
Nú óskar ráðið þess að frestur
verði í samræmi við mat UST á
verktíma, þrír til sex mánuðir,
sérstaklega þar sem síðasta mæling
á ryki í útblæstri sýni umtalsverðan
árangur í að draga úr mengun og að
innleiðing er hafin á frekari flokkun
á sorpi í Vestmannaeyjum.
Mannvit hefur unnið minnisblað
um endurbætur á sorpbrennslu fyrir
Vestmannaeyjabæ. Þar kemur fram
að núverandi reykhreinsun sé ófull-
nægjandi miðað við kröfur í starfs-
leyfi og að búnaður til vothreinsunar
hafi ekki skilað nægilegum árangri.
Lagt er til að bætt verði við
búnaðinn til þess að hann uppfylli
kröfur núgildandi starfsleyfis. Að
auki þarf að skilgreina leiðir til að
frárennsli frá vothreinsun sé undir
þeim mörkum sem sett eru brennslu
úrgangs. Semja þarf við aðila sem
hefur leyfi til að brenna spilliefni
um að taka við kolunum og brenna.
Komi í ljós að endurbótum loknum
að ekki hefur tekist að ná þeim
markmiðum að ryk í útblæstri sorp-
brennslunnar sé vel innan marka
starfsleyfis þurfi að grípa til frekari
aðgerða. „Éf vel tekst til og ryk
verður umtalsvert lægra og jafnvel
neðar en 100 mg/Nm3 kemur til
álita hvort framlengja eigi líftíma
brennslunnar og stefna að því að
uppfylla mörk fyrir nýjar brennslur.
Mannvit getur aðstoðað við hönnun,
útboð, eftirlit með smíði og uppsetn-
ingu eftir þörfum og óskum Vest-
mannaeyjabæjar," segir í skýrslunni.
Veiðibann
Aldrei fleiri á Shellmóti
Umhverfis- og skipulagsráð hefur
samþykkt að heimila ekki lunda-
veiði í Vestmannaeyjum í sumar.
Ákvörðunin er tekin með hliðsjón
af mjög bágu ástandi stofnsins og
lélegrar viðkomu í ár eins og undan-
farin ár. Ráðið áréttar að lundaveiði
í Eyjum er á forræði bæjaryfirvalda
og mun ákvörðun um veiði eða
áframhaldandi lokun verða tekin
árlega m.t.t. aðstæðna á hverjum
tíma.
„Lundinn og lundaveiði í Vest-
mannaeyjum er gríðarlega stór og
mikilvægur hluti í menningu Eyj-
anna og verður hér eftir sem hingað
til gengið um fugla og sögu með
tilhlýðilegri virðingu," segir í bókun
ráðsins.
Shellmótið fer fram um helgina og liðin streymdu til Eyja í gær,
miðvikudag. Á mótinu verða 104 lið frá 25 félögum, þar af eitt frá
Bandaríkjunum sem kemur sérstaklega á mótið. Heildarfjöldi þátttakenda
hefur aldrei verið meiri og reiknað með að um fjögur þúsund manns komi f
tengslum við mótið þegar allt er talið, þátttakendur og aðstandendur þeirra.
„Þátttakendur og fararstjórar eru 1200 og við getum búist við að á milli
2500 til 3000 manns fylgi liðunum. Liðin byrja að spila klukkan 08.20 á
fimmtudagsmorgun og spila fram að setningu sem hefst klukkan 18.30 með
skrúðgöngu frá Bamaskólanum,“ sagði Einar Friðþjófsson, mótstjóri
Shellmótsins.
„Mótið heldur svo áfram föstudag og laugardag og lokahófið fer fram kl.
18.30 á laugardagskvöld. Við notum Hásteins-, Þórs-, Týs og Helgafellsvöll
og það verður líka spilað aðeins í Eimskipshöllinni," sagði Einar en öll
gisting sem fyrirfinnst í bænum er upppöntuð og fjöldi manns vinnur við
mótið. „Skipulag hefur gengið vel og kvennadeild IBV er burðarás í þessu
starfi og vinnur mikið verk. Þær eru á vöktum í skólanum og við matinn
og fleira og þeim ber að þakka sem og öllum þeim sem koma að mótinu,“
sagði Einar þegar rætt var við hann í gærmorgun.
Maryland kex
verð nú kr 99,-
verð óður kr 145,
Tom & Jenna kex
SS Kryddl.tvírifjur
verð nú kr/kg 1998,
veré óður kr/kg 2578,.
SS Hnmborgarar 10*90 g,
veré nú kr 1158,-
verð úður kr/kg 2968,-
verð áður kr 1380,-
0PNUNARTIMI:
Mán. - Föst.
kl. 7.30 - 19.00
Laugardaga
kl.10.00 - 19.00
Sunnudaga
kl.11.00 -19.00
SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS 15. MAÍTIL14. SEPTEMBER
Mán, þri og mið Fim, fös, lau og sun
Frá Vestmannaeyjum Frá Landeyjahöfn kl. 8:30,11:30,17:30,20:30 l<l. 10:00,13:00,19:00, 22:00 kl. 8:30,11:30,14:30,17:30, 20:30 kl. 10:00,13:00,16:00,19:00, 22:00 HERJÓLFUR
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.herjolfur.is MILLl LANDS OC EYJA