Fréttablaðið - 26.06.2013, Page 42
26. júní 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30
PEPSI-DEILDIN 2013
ÚRSLIT
ÞÓR/KA - BREIÐABLIK 1-1
0-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (14.), 1-1 Arna Sif
Ásgrímsdóttir (79.).
FH - ÍBV 1-3
1-0 Teresa Marie Rynier (20.), 1-1 Shaneka Gordon
(31.), 1-2 Sóley Guðmundsdóttir (65.), 1-3 Bryndís
Jóhannesdóttir (67.).
HK/VÍKINGUR - SELFOSS 1-2
0-1 Guðmunda Brynja Óladóttir (29.), 1-1 Arna
Ómarsdóttir (53.), 1-2 Guðmunda Brynja (93.).
VALUR - ÞRÓTTUR 6-1
1-0 Hildur Antonsdóttir (25.), 2-0 Elín Metta
Jensen (43.), 3-0 Dóra María Lárusdóttir (45.), 4-0
Svava Rós Guðmundsdóttir (52.), 5-0 Elín Metta
Jensen (64.), 5-1 Ásgerður Arna Pálsdóttir (68.),
6-1 Dóra María Lárusdóttir (80.).
STJARNAN - AFTURELDING 5-1
1-0 Rúna Sif Stefánsdóttir (33.), 1-1 Aldís Mjöll
Helgadóttir (53.), 2-1 Harpa Þorsteinsdóttir (63.),
3-1 Harpa Þorsteinsdóttir (73.), 4-1 Harpa Þor-
steinsdóttir (85.), 5-1 Írunn Þorbjörg Aradóttir
(92.).
STAÐAN
Stjarnan 8 8 0 0 30-2 24
Breiðablik 8 6 1 1 20-9 19
ÍBV 8 5 1 2 25-13 16
Valur 8 4 2 2 26-12 14
Selfoss 8 4 1 3 11-11 13
Þór/KA 8 3 3 2 15-11 12
FH 8 2 2 4 15-22 8
HK/Víkingur 8 1 1 6 11-28 4
Afturelding 8 1 1 6 4-25 4
Þróttur 8 0 0 8 2-26 0
NÆSTU LEIKIR
ÍBV - Þór/KA mán. kl. 18.00
Breiðablik - Stjarnan mán. kl. 19.15
Afturelding - HK/Víkingur mán. kl. 19.15
Selfoss - Valur mán. kl. 19.15
Þróttur - FH mán. kl. 19.15
Ellert
Hreinsson
Mark Tubæk
Sam Tillen
Jóhannes Karl
Guðjónsson
Insa
Francisco
Eiður Aron
Sigurbjörnsson
Rúnar Már
Sigurjónsson
Gunnleifur
Gunnleifsson
Ármann Smári
Björnsson
Gunnar Már
Guðmundsson
Arnór Eyvar
Ólafsson
LIÐ UMFERÐARINNAR
FÓTBOLTI „Ég var að finna mig
mjög vel. Þetta var í fyrsta skipti
í sumar sem ég spilaði alveg heill
heilsu þannig að mér leið betur,“
sagði Arnór Eyvar Ólafsson, leik-
maður ÍBV, sem átti skínandi leik
fyrir sitt lið er það vann Fram,
1-0, í Eyjum.
Arnór hefur verið að glíma við
leiðindi í ökkla en öll þau vand-
ræði eru nú að baki.
Leikurinn var reyndar
ekki mikið fyrir augað og
ekki peninganna virði eins og
maðurinn sagði. „Ef ég hefði
verið í stúkunni hefði ég líklega
viljað fá endurgreitt,“ sagði
Arnór og hló við.
„Það var afar lítið um
heppnaðar sendingar framan
af leik. Við vorum að komast í
ágætar stöður en vorum klaufar
á síðasta þriðjungnum. Það var
í raun ekki fyrr en við komumst
yfir sem leikurinn fór í gang.“
ÍBV er með 15 stig í sjötta sæti
deildarinnar.
„Það var gott að komast aftur á
sigurbraut. Einnig mikilvægt að
slíta okkur frá neðri hlutanum.
Við viljum vera ofar.“ - hbg
Hefði viljað fá endurgreitt
Eyjamaðurinn Arnór Eyvar Ólafsson er leikmaður 8. umferðar hjá Fréttablaðinu.
VAXANDI Arnór hefur bætt leik
sinn mikið síðustu sumur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI Fylkir hefur aldrei
byrjað verr í efstu deild karla
en nú. Liðið er með tvö stig eftir
fyrstu átta leikina og fátt annað
en fall blasir við Árbæingum með
sama áframhaldi. Fylkismönnum
gekk þó ágætlega fyrir tímabilið
og voru margir stórhuga fyrir
sumarið. Stefnan var sett á að
vinna sér þátttökurétt í Evrópu-
deildinni, sem er í besta falli fjar-
lægur draumur í dag.
„Af núverandi liðum í Pepsi-
deildinni höfum við verið næst-
lengst í deildinni samfellt. Og við
höfum aldrei byrjað verr – það
er bara staðreynd,“ sagði Ásgeir
Ásgeirsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Fylkis, í samtali við
Fréttablaðið í gær.
„Við höfum verið frekar óheppin
með meiðsli upp á síðkastið, sem
hefur gert það að verkum að þjálf-
arinn [Ásmundur Arnarsson]
hefur neyðst til að gera miklar
breytingar á milli leikja. Því
miður hefur það púsluspil ekki
gengið nógu vel,“ segir Ásgeir en
bendir þó á að liðið hafi bætt sig
í síðustu leikjum, þá sérstaklega í
varnarleiknum.
„Fyrri hálfleikur gegn FH var
til að mynda mjög fínn,“ sagði
hann, en Fylkir hafði 1-0 forystu
í hálfleik á mánudagskvöldið. FH
vann að lokum 2-1 sigur.
„Við höfum fengið á okkur mörg
klaufaleg mörk sem hafa reynst
dýrkeypt. En við höldum ótrauðir
áfram og vonumst til þess að við
getum snúið genginu við.“
Þurfum að kaupa leikmenn
Þrjú lið, sem öll standa betur en
Fylkir, hafa skipt um þjálfara á
tímabilinu en Ásgeir segir að sú
umræða hafi aldrei farið af stað
innan stjórnar deildarinnar.
„Við viljum þétta raðir okkar
og stöndum við bakið á Ása. Það
er ekki alltaf lausnin að skipta
mönnum út. Við erum fyrst og
fremst að ræða um hvað hægt er
að gera til að bæta gengi liðsins.“
Ein leið til þess er að styrkja
leikmannahópinn og segir Ásgeir
að það verði gert þegar opnað
verði fyrir félagaskipti um miðjan
næsta mánuð. „Við þurfum að
gera það, ekki síst vegna þess að
við munum missa þrjá leikmenn
í haust þegar þeir fara til Banda-
ríkjanna í nám,“ segir hann, en
þetta eru þeir Andri Þór Jónsson,
Oddur Ingi Guðmundsson og Davíð
Ásbjörnsson.
Staðan metin er mótið er hálfnað
Fylkir mætir toppliði KR á sunnu-
dagskvöldið og svo Víkingi Ólafs-
vík og ÍA í næstu deildarleikjum á
eftir. Síðastnefndu tveir leikirnir
munu hafa mikla þýðingu um botn-
baráttuna enda þrjú neðstu lið
deildarinnar, en þau hafa saman-
lagt sex stig eftir átta umferðir.
Eftir þessa leiki verður mótið
hálfnað og Ásgeir segir að staðan
verði endurmetin þá.
„Það er ágætis tímapunktur
til þess þá. Staðan er auðvitað
ekki góð en það eru þó nokkur
lið í vandræðum og nóg eftir af
mótinu. Gengi liðsins hefur áhrif á
allt starf félagsins og því vonumst
við auðvitað til þess að það fari að
birta til.“
eirikur@frettabladid.is
Stöndum við bakið á Ása
Fylkismenn ætla að endurmeta stöðuna þegar tímabilið í Pepsi-deild karla er hálfnað. Að loknum fyrstu
átta umferðunum er liðið með tvö stig og hafa Árbæingar aldrei byrjað verr í efstu deild í sögu félagsins.
NÝTUR TRAUSTS Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, nýtur enn trausts stjórnar knattspyrnudeildar til snúa gengi liðsins við
eftir slæma byrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fyrir leik Fylkis gegn Sindra frá Höfn í Hornafirði í 16-liða úrslitum
Borgunarbikarkeppni karla kvisaðist út að leikmenn hefðu greitt tíu
þúsund krónur hver fyrir ferðakostnaði liðsins til Hafnar. Við það tilefni
tóku stuðningsmenn Sindra sig til og settu í gang
„söfnun“ til styrktar leikmönnum Fylkis.
„Þessi umræða var auðvitað út í hött,“ segir
Ásgeir Ásgeirsson, formaður knattspyrnudeildar.
„Upphaflega áætlunin var að fara akandi en við
buðum leikmönnum upp á þann möguleika að
fljúga ef þeir tækju þátt í kostnaðinum, sem þeir
þáðu. Það var því gert, þrátt fyrir að það hafi á
endanum kostað félagið meira en að leigja rútu.
Staðan var því ekki verri en það,“ segir Ásgeir.
„Við viljum reka félagið skynsamlega og erum
með aðhald í rekstri. Enda hefur reksturinn gengið ágætlega.“
Ósk leikmanna að taka þátt í kostnaði
Fylkir hefur aldrei fengið færri
stig í fyrstu átta leikjum sínum í
efstu deild karla:
2013 - ??? 2 stig (markatala: 7-16)
1996 - féll úr deildinni 3 (12-15)
1989 - féll úr deildinni 7 (7-14)
2010 - 9. sæti 8 (15-18)
1993 - féll úr deildinni 9 (8-17)
2008 - 9. sæti 9 (10-16)
Fæst stig Fylkis
FÓTBOLTI Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusam-
bands Íslands dæmdi Stjörnumanninn Veigar Pál
Gunnarsson í tveggja leikja bann í dag. Bannið fær
Veigar fyrir olnbogaskot í leik Þórs og Stjörnunnar.
Hann mun því missa af leikjum Stjörnunnar gegn
ÍBV og Breiðabliki.
Veigar Páll sendi svo frá sér yfirlýsingu þar sem
hann baðst afsökunar. „Um algjört óviljaverk var
að ræða [...]. Það var aldrei ætlun mín að meiða
viðkomandi leikmann,“ sagði hann en Veigar
baðst einnig afsökunar á ummælum sínum eftir
leik, er hann gerði lítið úr liði Þórs.
Stjörnumennirnir Garðar Jóhannsson og Ólafur
Karl Finsen eru komnir í eins leiks bann vegna
fjögurra áminninga, rétt eins og Blikinn Elfar Árni
Aðalsteinsson. - esá
Veigar Páll í tveggja leikja bann
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Sölvi
Geir Ottesen er nú án félags eftir að
samningur hans við dönsku meistar-
ana í FCK rann út á vormánuðum.
Hann er nú staddur í Danmörku en
leitin að nýju félagi gengur vel.
„Ég á von á því að þetta skýrist
á næstu dögum,“ sagði hann við
Fréttablaðið í gær en gat þó ekki
gefið frekari upplýsingar um gang
mála. Hann hefur þó áður sagt að
hann sé á leið frá Danmörku og
stendur það enn til.
Sölvi er 29 ára gamall. - esá
Framtíð Sölva
Geirs skýrist fl jótt
FÓTBOLTI FH-ingurinn Guðjón Árni
Antoníusson þarf að taka sér hvíld
frá æfingum næstu tvær vikurnar
eftir að hafa fengið höfuðhögg í
bikarleik liðsins gegn Stjörnunni
í síðustu viku. Frá því er greint á
Fótbolti.net.
Þetta var í annað skiptið á
tímabilinu sem Guðjón Árni fékk
slæmt höfuðhögg og því þarf hann
að hvíla nú. „Þetta er hundleiðinlegt
en ef maður horfir á þetta í stærra
samhengi er betra að geta hreyft sig
í framtíðinni,“ sagði hann. - esá
Guðjón þarf hvíld
eft ir höfuðhögg
FÓTBOLTI KSÍ hefur vísað um-
mælum Ólafs Þórðarsonar, þjálfara
1. deildarliðs Víkings, til aga- og
úrskurðarnefndar sambandsins.
Ólafur sagði eftir 2-2 jafntefli Víkinga
gegn Haukum á laugardaginn að
íslenskir dómarar væru að leggja lið
sitt í einelti.
Í síðustu viku var ummælum
Heimis Gunnlaugssonar, varafor-
manns knattspyrnudeildar Víkings,
vísað til sömu nefndar. Heimir var í
gær áminntur og Víkingur sektaður
um 25 þúsund krónur. - esá
Ummæli Ólafs
fyrir aganefnd KSÍ
Í FIMMTA SÆTIÐ Selfoss hoppaði upp
fyrir Íslandsmeistara Þórs/KA með sigri
á HK/Víkingi í gær. Hér er Valorie Nicole
O’Brien í baráttu við Láru Hölludóttur,
fyrirliða Selfyssinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPORT