Fréttablaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 46
29. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30 „Blandarinn auðveldar lífið í sam- bandi við ýmsa sósugerð og ég er mikill sósuaðdáandi. Svo finnast mér góðir margir svona hristingar sem maður getur búið til í þessu undratæki.“ Tinna Þorvalds Önnudóttir, leikkona og söngnemi. BESTA HEIMILISTÆKIÐ „Trommugiggunum mínum fjölgar alltaf meira og meira,“ segir Frið- rik Ómar Hjörleifsson tónlistar- maður en hann er nú bókaður fjór- ar helgar í röð sem trommari. Friðrik Ómar er frekar þekktur fyrir að munda míkrófóninn fremst á sviðinu en er nú kominn aftast á sviðið. „Þegar fólk sér mig á bak við settið á þeim skemmtunum sem ég hef verið að spila á, horfir það gjarnan á mig með stórt spurning- armerki í augunum.“ Trommur eru aðalhljóðfæri Frið- riks Ómars í grunninn og lærði hann hjá bróður sínum. „Fyrir tveimur til þremur árum keypti ég mér trommusett aftur en ég trommaði mikið alla mína barn- æsku og á unglingsárunum,“ útskýrir Friðrik Ómar. Bróðir Frið- riks Ómars, Halli Gulli, er virtur trommuleikari og lék meðal annars með Stjórninni. Friðrik syngur minna á böllun- um fyrir vikið. „Ég er meira í því að radda þegar ég tromma en ég get hins vegar alveg sungið og spil- að í einu,“ bætir Friðrik Ómar við. Spurður út í hæfnina segist Friðrik Ómar vera frekar róleg- ur trommuleikari. „Ég er ekkert svakalegt tæknitröll á settinu en er svona „less is more“ trommari. Ég er Phil Collins Dalvíkur.“ Friðrik Ómar er nú á fullu að undirbúa tónleikaferð um landið í mars og apríl til að fylgja eftir vel- gengni plötu sinnar Kveðju. - glp „Ég er Phil Collins Dalvíkur“ Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður er farinn að tromma af kappi og er nú bókaður sem trommari fj órar helgar í röð. „Ég er þó engan veginn hættur að syngja.“ TÖFF Á TROMMUNUM Friðrik Ómar Hjörleifsson kann vel við sig við trommu settið. MYND/EINKASAFN Íris Stefanía Skúladóttir hannar lógó fyrir keppanda í undankeppni Eurovision í Noregi. „Lagahöfund- urinn, Josefin Winther, er æskuvinkona mín,“ segir Íris. Lógóið verður prentað á boli og derhúfur og það verður einnig notað í kynningarefni á netinu. „Josefin var svo hrifin af mynd sem ég málaði af henni fyrir nokkrum árum að hún bað mig um að hanna fyrir sig plötuumslag. Upp frá því hefur Josefin alltaf beðið mig um að sjá um alla grafík í kringum tónlistina sína, og ég hef líka leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir hana.“ Lagið eftir Josefin heitir Silent Storm og lenti í fimmtán laga úrslitum í undankeppni Eurovision í Noregi. Carl Espen syngur lagið. „Carl er frændi Josefin. Hann hefur algjöra englarödd, þessi dreng- ur,“ segir Íris. Hún hefur mikla trú á því að Josefin gangi vel í keppninni. „Formaður Eurovision-klúbbs- ins í Noregi heldur með þessu lagi, samkvæmt frétt í Aftenposten.“ Íris leggur áherslu á að hún sé bara áhugahönnuð- ur og máli einungis í frítíma sínum. „Ég hafði aldrei hannað neitt á ævi minni þegar ég hannaði umslagið, þannig að ég fór á námskeið í InDesign og Photoshop hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur til að læra það. Svo lá ég á YouTube og horfði á myndbönd sem hétu „How to Make a CD Cover.“ Ég var ánægð með afrakstur- inn. Ég notaði myndina sem ég málaði af Josefin sem fyrirmynd að umslaginu, með nýjum bakgrunni.“ Josefin bjó um tíma á Íslandi. „Þá reddaði ég henni leiguíbúð í kjallaranum hjá frænku minni,“ segir Íris. Hún kynnti vinkonu sína líka fyrir tónlistarmannin- um John Grant. „Ég kynntist John Grant fyrir algjöra tilviljun á Laundromat,“ segir Íris. „Ég vissi ekkert hver hann var þegar ég byrjaði að spjalla við hann. Ég bauð honum heim til mín í mat til þess að hann þyrfti ekki að borða einn í ókunnugu landi. Hann þáði það, og bauð mér svo á tónleikana sína á Airwaves í Hörpu. Svo kynnti ég hann fyrir Josefin.“ John Grant og Josefin náðu vel saman að sögn Írisar. „Hann fékk hana til að hita upp fyrir sig á þrennum tónleikum í London með þúsundum áhorfenda, sem hefur hjálpað til við að koma henni á framfæri í London,“ segir Íris. Nú býr Josefin í London, en John Grant er fluttur í kjallaraíbúð frænku Írisar. „Það má segja að þessi íbúð hafi spilað svolitla rullu í íslensku tónlistarlífi, því bæði Josefin og John Grant hafa tekið upp tónlist í þessum kjallara,“ segir Íris. ugla@frettabladid.is Lærði að gera plötu- umslag á YouTube Íris Stefanía Skúladóttir hannar lógó fyrir norska Eurovision-keppandann Josefi n Winther. Þær eru æskuvinkonur en Íris kynnti Josefi n fyrir John Grant. VERÐUR PRENTAÐ Á BOLI OG DERHÚFUR Lógó Írisar er byggt á ljósmynd af Carl Espen. Formaður Eurovision- klúbbsins í Noregi heldur með þessu lagi, samkvæmt frétt í Aftenposten. Íris Stefanía Skúladóttir „Við erum að sýna fólki að lúðra- sveitir spila ekki eingöngu í skrúð- göngum og á svoleiðis samkomum,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, trompetleikari og meðlimur í Lúðra- sveit Þorlákshafnar. Ása Berglind og félagar standa fyrir tónleikum í Norðurljósasal Hörpu 25. febrúar og verður þar leikin alls kyns kvikmyndatónlist. „Við ætlum að spila kvikmyndatón- list, bæði íslenska og erlenda. Af því tilefni að við erum þrjátíu ára í febrúar, fengum við Stefán Örn Gunnlaugsson til að útsetja kvik- myndasyrpu úr íslenskum kvik- myndum og erum við mjög stolt af því,“ segir Ása Berglind. Lúðrasveitin mun leika lög úr kvikmyndum á borð við Engla alheimsins, Stellu í orlofi og Stuð- mannamyndina Með allt á hreinu. Af erlendu efni mun sveitin flytja tónlist úr kvikmyndum á borð við Pirates of the Caribbean, Mary Poppins, Jaws, Star Trek, Star Wars og Harry Potter svo fátt eitt sé nefnt. Í Lúðrasveitinni eru 45 meðlim- ir en þeir hafa fengið engan annan en Fjallabróðurinn Halldór Gunn- ar Pálsson til að vera kynnir á tón- leikunum. „Hann mun að öllum líkindum bregða sér í ýmis líki úr kvikmyndasögunni í tilefni tón- leikanna,“ bætir Ása Berglind við. Lúðrasveitin hefur undanfarið komið fram með Jónasi Sig eftir að þau gáfu út plötuna Þar sem himin ber við haf í sameiningu árið 2012. Miðasala á tónleikana er á midi.is en þeir eru hluti af tónleikaröðinni Lúðraþytur í Hörpu. - glp Spila íslenska kvikmyndatónlist Lúðrasveit Þorlákshafnar leikur kvikmyndatónlist í Norðurljósasalnum í Hörpu hinn 25. febrúar. Sveitin leikur meðal annars tónlist úr íslenskum kvikmyndum. MIKIL GLEÐI Lúðrasveit Þorlákshafnar ætlar að leika kvikmyndatónlist í Hörpu í febrúar. MYND/ÁGÚSTA RAGNARSDÓTTIR OG DAVÍÐ ÞÓR GUÐLAUGSSON EYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREY ÚTSALA AFSLÁTTUR 20% 119.920 ÚTSALA AFSLÁTTUR 15% 67.915 120X200 ÚTSALA AFSLÁTTUR 20% 119.920 160X200

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.