Fréttablaðið - 17.05.2014, Síða 24
17. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Þokan hylur Búlandstind og önnur fjöll Berufjarðar að mestu þegar við Gunnar V. Andrésson ljósmyndari brunum niður Öxi og austur ströndina. Þó grillir í tígu-
lega klettadranga og gil ofan við bæinn
Karlsstaði. Á hlaðinu tekur tíkin Píla
glaðlega á móti okkur og húsbóndinn
Svavar Pétur stígur út með barnavagn
því Aldís Rúna, átta mánaða, ætlar að
fá sér dagdúr bak við hús. Næstur birt-
ist Hrólfur, fjögurra ára, og tilkynnir
okkur að það sé lamb í eldhúsinu. Mikið
rétt. Um gólfið vagar völtum fótum lítil
mögótt gimbur – með bleiu. Mæðgurnar
Berglind Häsler og Elísa Egilsdóttir eru
að baka pönnukökur og okkur er boðið í
bröns þar sem bulsur (grænmetispyls-
ur) Svavars Péturs gegna veigamiklu
hlutverki.
Kallstaðir eða hvað?
Svavar segir munnmæli til um að bær-
inn hafi heitið Kallstaðir því hægt hafi
verið að kalla til Djúpavogs, yfir fjörð-
inn.
Hrólfur: „Sko, pabbi kallar bæinn
Kallstaði, allar konurnar kalla hann
Konustaði og öll börnin kalla hann
Barnsstaði!“
Þessi yfirlýsing vekur kátínu við
borðið. Hrólfur er samt minntur á að
nota inniröddina. „Þegar maður er
svona mikið inni og úti til skiptis þá
verður maður að eiga bæði inni- og úti-
rödd,“ segir faðir hans til skýringar.
Svo berst talið að búskapnum á Karls-
stöðum og framtíðaráformunum.
Svavar: „Við höfðum verið með augun
opin fyrir jörð í dálítinn tíma og keypt-
um þessa í vor. Okkur langar að vera
með blöndu af menningarstarfsemi,
matvælaframleiðslu og einhvers konar
ferðaþjónustu. Þetta er ekkert sem ger-
ist á einni nóttu heldur eru þetta lang-
tímaverkefni.“
Berglind: „Það var aldrei markmiðið
að gerast sauðfjárbændur en við eignuð-
umst 60 kindur óvænt. Ég hafði komið
svona fjórum sinnum á ævinni í fjárhús
áður en ég kom hingað. En kindurnar
voru hér og það var ekki hægt að fara
að slátra þeim að vori til.“
Svavar: „Þetta er alveg passlegur
fjöldi, þó að þeim fylgi hellings vinna
yfir sauðburðinn. Líka mjög skemmti-
legar kindur. Þær koma jörðinni dálítið
vel því þá urðum við að byrja á að rétta
við girðingarnar. Fyrstu lömbin fædd-
ust í blábyrjun apríl, þegar við vorum
að renna í hlað, og það komu 35 lömb í
lotu en svo varð hlé um tíma. Það var
dálítið gaman þegar við vorum að bólu-
setja þessi 35 lömb. Ég hélt á þeim en
Berglind var með sprautuna á lofti eins
og róbóti.“
Berglind: „Já, og var allan tímann að
hugsa um hvað ég ætlaði að fá mér gott
kaffi þegar þetta væri búið!“
Svavar: „Þegar við komum heim
minnti ég hana á að við ættum eftir að
merkja og marka öll lömbin. Þetta var
góð leið til að hoppa beint í djúpu laug-
ina.“
Berglind: „Annars hefðum við bara
haldið áfram í tölvuvinnunni og kannski
gleymt okkur í henni. Við erum líka með
æðarvarp og þurfum að fara daglega
Á kafi í búskap við Berufjörðinn
Tónlistarhjónin Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson eru óhrædd við að prófa nýja hluti. Nú eru þau orðin bænd-
ur á Berufjarðarströnd. Þau hafði dreymt um að búa í sveit, rækta grænmeti, ástina og andann og sinna öðrum hugðarefn-
um. En þegar þau keyptu jörðina Karlsstaði í vor fylgdu henni 60 ær loðnar og lembdar og þau duttu beint inn í sauðburð.
Það
var dálítið
gaman
þegar við
vorum að
bólusetja
þessi 35
lömb. Ég
hélt á þeim
en Berg-
lind var
með
sprautuna
á lofti eins
og róbóti.
BRÖNS Bulsur eftir uppskrift bóndans og meðlæti eru á borðum og bragðast vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÚRALEGUR BÓNDI
Kindurnar sem fylgdu
jörðinni eru frá
Svínafelli í Öræfum.
Svavar Pétur segir þær
skemmtilegar.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is