Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.1981, Page 4
Handbolti
Leikur hjá II. flokki:
Núna um helgina verður
leikið hér í Eyjum í II. aldurs-
flokki karla við ÍBK, n.k.
föstudag kl. 20.00.
Hvetjum alla Eyjabúa til að
mæta á skemmtilegan leik og
fylgjast með baráttuglöðum
Eyjamönnum, í riðli sem II.
fl. Týs á mikla möguleika áað
sigra í.
Frí um helgina:
Meistaraflokkur Týs á frí
um þessa helgi, en 31. janúar
verður einn af stórleikjum II.
deildarinnar, því þá fá Týrar-
ar lið KA í heimsókn.
Týrarar upp á land:
Um helgina fer fjölmennur
hópur ungra Týrara upp á
fastalandið og keppir þar í
Islandsmóti yngri flokka og
má búast við því að þeir verði
liði sínu til sóma í þessari
hörðu keppni, eins og svo oft
áður.
Fréttatilkynning frá Tý.
Herjólfur tafðist
S.l. þriðjudag tafðist Herjólfur í
Þorlákshöfn, vegna þess að einn
flutningavagnanna fór út af í mik-
illi ófærð. Illa gekk að ná vagninum
upp, því skipið lagði ekki af stað til
Eyja fyrr en kl. 3 um nóttina. Varð
því að fella niður ferð næsta dag.
Auglýsingasími
1210
Fimmtudaginn 8. jan var aftur tckið til við
að tefla, og nú áttust þeir við Páll Árnason og
Arnar Sigurmundsson. Páll hafði hvítt en náði
ekki ncinu út úr byrjuninni og þá ekki hcldur
framhaldinu, svo nú var það Arnar sem braut
niður múrvcgginn mcð snöggum cn þungum
höggum þar til að ckki stóð steinn yfír stcini.
Guðmundur Búason tefldi við Þorvald
Hcrmannsson, Þorvaldur hafði hvítt en það
var mcð hann cins og Pál hann náði engum
tökum á skákinni og tapaði. Kári Sólmundar-
son og Ágúst Ómar börðust hart og lcngi, Kári
hafði hvítt cn hann átti bara fullt í fangi meðað
halda frumkvæðinu og um tíma var sem að
Ágúst ætti ckki minna í stöðunni, cn hann fann
ckki réttu Iciðina og tapaði. Ágúst hefur tcllt
mjög hvasst og vel í þessu móti. Ólafur
Hcrmapnsson og Lúðvík tefldu ckki í þessari
umferð, og Hrafn Oddsson cr farinn að róa og
því hættur í mótinu.
II. fl. 7unda umferð.
Hallgrímur Óskarsson og Óðinn sonur hans
tefldu saman og þeirskildu jafnir. Sigmundur
Andrcsson yngri tapaði fyrir Gunnari Ingólfi
Gíslasyni. Danícl W Fiskcr vann Sigfús
Gunnar Guðmundsson og fór létt með það.
Óskar Sigmundsson og Jón Pálsson áttust við
og hafði Óskar hvítt og tefldi hann stíft til
vinnings og fann Jón ckki svaar við því og
tapaði. Nú tefldi Elías Bjarnhéðinsson við
Auðunn Jörgenson, og varð þetta nú nokkuð
sögulcg skák því allt í einu þá er kallað upp: Eg
vann hann, þetta var þá Auðunn sem kallaði
þctta upp, nú koma margir að og vilja sjá hvað
nú hcfði skeð, jú Elías grúfði sig yfír taflið og
hafði brugðið litum mörgum en sagði ekki eitt
orð. En hvað skeður, þegar betur er að gáð þá
kemur bað í liós að Elías er alls ekki mát, svo
Landakirkja:
Föstudagur 23. janúar:
Samkoma í Landakirkju
kl. 20.30. Anna Þorsteins-
dórtir frá Laufási flytur
ræðu. Guðný Guðmunds-
dóttir leikur á fíðlu. Full-
trúar frá kristnu söfnuðun-
um í lesa ritningarorð.
Fjölmennum!
Sunnudagur 25. janúar:
Sunnudagaskólinn kl. 11.
Messa kl. 14.00. Fundur með
foreldrum fermingarbarna
eftir messu.
Sóknarprestur.
BETEL
Samkomur veröa í Betel sem
hér segir:
Fimmtudag........kl. 20.30
Föstudag.........kl. 20.30
Laugardag........kl. 20.30
Sunnudag.........kl.16.30
Sunnudagaskólinn .... kl. 13.00
Hjónin Beverly og Einar
Gíslason eru ræðumenn.
Betel.
AÐVENTKIRKJAN:
Samkomur föstudag kl. 20.00.
Biblíurannsókn kl. 10 á laugar-
dögum. - Barnahvíldarskóli kl.
10 laugardagsmorgna.
Allir velkomnir.
ÍBÚÐ EÐA HERBERGI:
Oska eftir lítill íbúð eða herbergi
til leigu.
Upplýsingar í síma 2504.
BÍLL TIL SÖLU:
Cortina XL1600 árg. 1972, í góðu
lagi, er til sölu.
Upplýsingar í síma 1546 næstu
kvöld.
þeir eru skikkaðir til þess að tefla skákinaáfram
og þá vann Elías. Undirritaður tefldi við
Kristján Möller sem hafði hvítt, en skákin var
frekar þung í vöfum og í jafnvægi þar til í 23.
leik að ég lék af mér peði og síðan var ekki um
að spyrja, Kristján vann.
Koma dagar og koma ráð, segjum við
sem töpuðum í þessari umferð.
Áttunda umferð 15. jan sl. I. fí.
Ólafur Hermannsson hafði hvítt á móti Páli
Árnasyni og náði Óli nokkuð fljótt frum
kvæðinu og hélt því út skákina og var kominn
með peð og skiftamun yfír þegar Páll gafst upp.
Manni finnst sem að það sé líkast sem að Páll
væri öfugu megin á tunglinu. Hann hefur ekki
náð því í þessu móti að tefla nógu sannfærandi,
sem oft áður.
Lúðvík Bergvinsson tefídi nú við Þorvald
Hermannsson og hafði Lúðvík hvítt, en hann
kom 50 mínútum of seint til leiks og hafði
klukkan gengið á hann, en þennan tímaskort
bætti hann upp mcð skarpri taflmcnnsku svo
Þorvaldur réði ekkert við hann og varð að
gefast upp.
Arnar Sigurmundsson og Ágúst Ómar
börðust grimmt og af miklum krafti og nýttu
tímann til hins ýtrasta, og undir lokin þá
bjuggust menn við jöfnu tafli, en Ágúst skorti
tíma og féll.
ii. n.
Williard Fisker tefldi með hvítu mönnunum
á móti Óðni Hallgrimssyni, en Óðinn var einn
hinn æðsti hinna fornu Ása, og nú varð nafni
hans ”óðindæl!” svo”Óðinsveður” gerði mikið
og sjór úfinn og varasamur og Fisker gafst upp
og hélt til lands.
Þá var Elías heldur betur í essinu sínu er
hann stýrði hvítu mönnunum móti Hallgrími,
þannig að allt varð undan að láta, og ekki
Hefurðu smakkað
kotasæluostinn
í Eyjakjöri?
sparaði hann heldur mannskapinn til þess að
svo mætti verða. Þetta var fyrsta tapið sem
Hallgrímur hefur orðið að þola til þessa. Nú fer
það að verða spennandi hver eða hverjir það
verða sem koma til með að færast upp.
Óskar tefldi á móti Kristjáni Möller sem
sótti mjög stíft með hvítu mönnunum, en
Kristján réði ekki við þessa hröðu sókn og varð
að bakka með hana, og úr því var ekki að spyrja
hann tapaði. Óskar var að hefna ófara föður
síns úr seinustu umferð.
Jón Pálsson og Auðunn Jörgenson tefldu
fjöruga skák, en Jón var nú ekki á þeim
buxunum að láta plata sig og sigraði.
Sævar Halldórsson var nú mættur eftir
jólafríið og stýrði hvítu mönnunum á móti
Guðmundi B Guðmundssyni sem réði ekki við
Sævar sem vann.
Þá áttust við nafnarnir við Sigmunduryngri
og undirritaður, þetta varð hörku skák, en
reynsla hins eldri sagði til sín að lokum og vann
hann.” Nú batt sá er leysa skildi”.
9 unda umferð var tefld s.l mánudag og var
aðeins ein skák tefld í fyrsta flokki, og voru það
vinirnir Þorvaldur Hermannsson og Páll Árna
son og eftir aðeins 11 leiki þá sömdu þeir
svokallað stórmeistara jafntefli sem er flestum
til leiðinda.
í II,fl var annað uppi á teningnum, þar var
barist til síðasta blóðdropa sem vera ber.
Auðunn Jörgenson setti klukkuna í gang á
réttum tíma en andstæðingurinn mætti ekki og
fékk Auðunn 1 vinning.
Óðinn Hallgrímsson pakkaði vel inn hinum
unga Guðmundi Ingólfi Guðmundssyni.
Sigmundur yngri hafði hvítt á móti Williard
Fisker og var kominn með gjörunnið tafl, en þá
kom það vel í ljós, sem oft áður að hinir ungu
skákmenn sem nú eru að byrja í keppni, þeir
kunna ekki að vinna úr endatöflum og þess
vegna verða þeir oft af vinningum og svo fór
einnig í þetta skipti Sigmundur tapaði.
Kristján Möller vánn Sigfús Gunnar Guð
mundsson á sannfærandi hátt.
Þá áttust þeir kappamir Jón Pálsson og Elías
Bjarnhéðinsson við, og var Elías með hvítt og
lék fram drottningarpeði sem Jón svaraði með
b-6 Elías var með frumkvæði alla skákina og
þar kom að Jón féll á tíma í 29 leik, en þá áttu
þeir að hafa lokið 30 leikjum.
Nú var Daníel Grotefend mættur eftir langt
jólafrí og tefldi með svörtu á móti Sævari
Halldórssyni sem beitti kóngsbragði, skákin
var vel tefld þar til í 33 leik að Daníel lék illilega
af sér, missti drottningu fyrir hrók og peð, en
hann var þó með sterka stöðu sem honurh tókst
þó ekki að vinna úr sem skyldi og varð hann að
láta undan síga og gaf.
Aðalslagurinn var svo á milli þeirra Hall-
gríms Óskarssonar og Óskars Sigmundssonar.
Hallgrímur hafði hvítt og lék e-4 og var svarað
með e-6, en hann náði ekki neinum virki-
legum tökum á skákinni, og nú fór Óskar að
vinna stöðu smátt og smátt og eyddi í það
miklum tíma, og þar kom að hann var kominn í
algjört tímahrak en hann stóðs álagið og átti
aðeins eftir rúma mínútu er hann gat mátað
Hallgrím.
Þetta var hörkuskák og hvergi gefíð eftir og
svona skákir eru alltaf spennandi og gaman að
horfa á.
Undirritaður tefldi með hvítu á móti Guð-
mundi Búasyni er lék mjög vel fyrripart
skákarinnar, en hann fór svo út af strikinu og
tapaði manni og um leið skákinni.
Nú eru úrslit ráðin í 1. flokki hjá þeim efstu
og það varð Kári Sólmundarson, sem hlaut
þann heiðurstitil að verða skákmeistari Vest-
mannaeyja 1980.
Kári er vel að þessum heiðri kominn, því
hann vann allar sínar skákir, fékk 8 vinninga.
Hann hefur í áraraðir verið einn af okkar
sterkustu skákmönnum og var í Olympíulið-
inu 1956 ef ég man rétt og hefði eflaust orðið
þekktari stærð ef hann hefði haft hér í Eyjum
sterkari menn til að kljást við. Honum er hér
með óskað til hamingju með þennan sigur.
Annar varð svo Guðmundur Búason, með 6
vinninga. Tapaði aðeins fyrir Kára. Guð-
mundur er nýfluttur hingað og bindum við
miklar vonir við hann hér í skáklífinu og
bjóðum hann velkominn í okkar hóp.
í kvöld verða svo síðustu skákirnar í 1.
flokki tefldar og í næsta blaði verður hægt að
skýra frá, hvernig vinningar hafa þá fallið þar.
Sigmundur Andrésson.
Skákþingið 1980
1. flokkur - 7. umferð
BÍÓ
FIMMTUDAGUR:
Klukkan 8:
ÍNl'ERNATIONAL
Velvet
In every girl isthe
W).MAN SHF is DESTINhí)
10 BECOME...AND IV BT.RV
1VOMAN ISTHB CilRL
SHBOSE0TOBK.
TATUM
OTVEAL
aiRISTOPHER ANTHON'V NANETTE
PLUMMER HOPKINS • NEWMAN
Eyja hinna
dauðadæmdu
fés m'tmm.mww -m.n
ISLAND
PHYLLIS DAVIS • DON MARSHÁLl
ENA HARTMAN - MARTA KRISTEN
Hörkuspennandi bandarísk
kvikmynd dauðadæmda fanga á
Terminaleyju í Kyrrahafi.
Bönnuð innan 14 ára
FÖSTUDAGUR:
Lokað vegna
einksamkvæmis.
LAUGARDAGUR:
Hljómsveitin
Maraþon
leikur frá kl. 10-2