Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.1981, Side 1
r
FRETTIR (
■ VIKUBLAÐ f
^ 8. árgangur Vestmannaeyjum 27. maí 1981 22.
MALLORKA
(ITCOfVTIK
VESTMANNAEYJAUMBOÐ:
ENGILBERT GÍSLASON
KOSTAKJÖR
SÍMI 2220 - 1318
Sögufélagið:
Erindi um rannsóknir
í Herjólfsdal
Á fimmtudag, uppstigning-
ardag, mun Margrét Hermanns-
dóttir fornleifafraeðingur flytja
erindi á vegum Sögufélags
Vestmannaeyja um fornleifa-
rannsóknir í Herjólfsdal.
Margrét hefur haft umsjón
meö (Dessum athugunum á
fornminjunum inni í Dal s.l.
nokkur sumur. Þessum rann-
sóknum er nú að Ijúka og því
forvitnilegt að heyra frá Margréti
hvað út úr þeim hefur komið.
Þegar hefur þó komið fram, að
rústirnar eru mjög gamlar, jafn-
vel eldri en landnám, og enn
fremur vekur athygli að beitt
hefur verið ýmsum nýjungum
við þennan uppgröft.
Margrét mun sýna myndir og
teikningar með þessu erindi.
Allir áhugamenn eru velkomnir
á þennan fund Sögufélagsins,
sem stofnað var í fyrravor.
Fundurinn hefst kl. 16.30 (hálf
-fimm) og verður í Safnahúsinu.
Fréttatilkynning.
„Saga daganna“:
Uppstigningardagur
í bók Árna Björnssonar,
þjóðháttafræðings segir svo
um uppstigningardag:
„Fjörtíu dögum eftir upp-
risuna steig Jesús upp til
himna segir í Nýjatestament-
inu. Þetta gerðist því eðlilega
á fimmtudegi. f elstu ritum
íslenskum heitir þessi stund
ýmist uþpstigningardagur, eða
uppstigudagur.
Ekki er vitað um neina
veraldlega siði á íslandi í
sambandi við þennan dag,
þótt talsvert sétil um slíkt úti í
Evrópu og sumt harla skond-
ið. Varla er ástæða til að að
nefna uppstigningardags-
hretið, því að vorhretin voru
svo mörg kennd við einstaka
dag. En úti í Evrópu þóttust
menn víða búast við þrumu,
eða að minnsta kosti helli-
dembu nákvæmlega á þeirri
stundu, þegar Jesús setti gat
á festinguna, sem regnið
steyptist niður um einsog
flóðgátt.
Annað uppátæki, sem á að
hafa tengsl við flug Krists til
himna, er að borða sérstakt
fuglakjöt á þessum degi.
Fullyrtu menn, aðslíktværi
Guði þóknanlegt. Loks hafa
karlmenn sumstaðar í Þýska-
landi búið sér til þann helgi-
sið, að hella sig sætkennda
þennan dag öðrum fremur
og á það að standa í sam-
bandi við helldembuna, sem
áður var getið. Er þá dagur-
inn kallaður herradagur.
Lofsvert framtak
Þessa dagana er verið að
setja upp uppistöður fyrir
gatnamerkingum á vegum
bæjarins, og þar með bætt úr
brýnni þörf.
Gestkomandi hefurgengið
illa að rata um nýja hluta
bæjarins, en nú ætti að rofa
til í þeim efnum, með þessu
myndarlega framtaki bæjar-
yfirvalda.
Af eldri götum er það að
segja, að margareru merktar
uppá gamla móðinn, en bæta
mætti þar úr og setja svip-
aðar merkingar við þær eins
og þær nýju.
Einnig er verið að lagfæra
gangstéttar bæjarins, en
vandræðaástand var í þeim
málum, eftir hitaveitufram-
kvæmdirnar, sem staðið hafa
að undanförnu.
Ekki hefur veðrið spilit fyrir útiveru undanfarna daga.
Gróður farinn „á fulla ferð“, og bæjarbúar farnir að snyrta
híbýli sin og lóðir.
Óli Granz og Hjalli eru að sjálfsögðu í sumarskapi allt árið,
og sigla Bravó sinum hring eftir hring í kringum eyjuna með
túrista og heimamenn.
Kjarnakjör!
MÓTORORF
NÝKOMIÐ:
Flott Ijós og ódýr.
Tré-borðlampar
Tré-standlampar
KJARNI sf
raftækjaverslun
Skólavegi 1 - Sími 1300