Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.1981, Side 1
VIKUBLAÐ I VEXTL
B
I
B
B
I
B
8. árgangur
Vestmannaeyjum 30/12 1981
54. tölublað
Elstu borgarar landsins
með lögheimili í Eyjum
Eftir lát Halldóru Bjarna-
dóttur á Blönduósi nú nýlega,
en hún var elsti borgari lands-
ins, 107 ára, fædd 14. okt.
1873, fóru menn að spekúlera
hver væri elsti borgari lands-
ins að Halldóru látinni.
Samkvæmt athugun Hag-
stofunnar eru tveir elstu borg-
Asgeir
lék ekki
S.l. sunnudag átti að
fara fram áður auglýstur
fótbolti í íþróttahúsinu
með þátttöku Vestmanna-
eyja-útlaganna Asgeirs
Sigurvinssonar o.fl.
Er til átti að taka var
víst um misskilning að
ræða og Ásgeir og félagar
hans úr útlandinu léku
ekki. Þegar betur er að gáð
mun Ásgeir vera með ein-
ar af heimsins dýrustu
löppum, á Islandi og því
út í hött að hætta þeim í
innanhússfótbolta heima í
Eyjum.
Ánnars er það af Ás-
geiri að segja að hann kom
til jólahalds í Eyjum á
þorláksmessu og dvaldi
hér bar til í gær að hann
hélt til Bayern á ný.
arar landsins með lögheimili í
Eyjum, en það eru þær: Sig-
ríður Jónsdóttir fædd 30 maí
1879, og Jenný Guðmunds-
dóttir frá Mosfelli, fædd 23.
janúar 1879. Eru þær stöllur
báðar fæddar í Rangárvalla-
sýslu, en eru nú búsettar
í Reykjavík, þótt lögheimili
þeirra sé enn í Vestmanaeyj-
um.
Ekki tókst okkur að ná í
myndir af þeim Jenný og
Sigríði, en birtum hér mynd
af Láru Guðjónsdóttur frá
Kirkjulandi, en hún mun elsti
núlifandi borgarinn búsettur
í Eyjum, fædd 4. júlí 1886, og
er því nýlfega orðin 95 ára.
Þess má til gamans geta hér
í lokin, að kvenfólkið er mun
framar karlmönnum í langlíf-
inu í Eyjum. Ef reiknað er
saman fólkið, sem hefur lög-
heimili í Eyjum, án tillits til
búsetu, þá eru konur í 9
sætum, áður en kemur að
fyrsta karlmanninum. En sé
reiknað með búsetu í Eyjum,
er karlmaður í 3. sæti.
Ákveðið hefur verið að árið
1982 verði á íslandi til-
einkað öldruðum. Af því til-
efni senda Fréttir nú öllum
öldruðum Eyjabúum, og þá
sérstaklega vistfólki Hraun-
búða og þeim er á sjúkrahús-
inu dvelja, bestu nýársóskir,
með von um að árið 1982
verði því til blessunar.
Lára Guðjónsdóttir frá Kirkjulandi býr nú á
Hraunbúðum. Ljósm.: Sigurgeir Jónasson
STORA BOMBAN
á loft á gamlársdag!
Á gamlársdag ætla Týrarar
að skjóta á loft „stóru bomb-
unni“, sem áætlað var að
skjóta á loft á 60 ára afmæli
Týs í haust, en var frestað þá
vegna veðurs.
Nú ætla Týrarar ekki að
láta veðrið aftra sér, heldur
láta bombuna í loftið. Verður
henni skotið frá nýja hraun-
inu. Bæjarbúar eru hvattir til
að mæta á Stakkagerðistúnið
á gamlársdag kl. 15.00 og
fylgjast með.
I þessari bombu verður 12
fermetraifáni, með þjóð-
hátíðarmerki Týs og fleiri
góðar sólir.
Góð gjöf
til Sjálfs-
bjargar
Verkakvennafélagið Snót
gaf nýlega félagi Sjálfs-
bjargar í Vestmannaeyj-
um fimm þúsund krónur í
tilefni árs fatlaðra.
Sjálfsbjörg Vestmanna-
eyjum þakkar Snót þessa
höfðinglegu gjöf.
Fréttir
komu oftast
Blaðið í dag er 54. tbl. á
þessu ári. Ekkert blað í Eyj-
um hefur komið eins oft út.
Blaðið hefur verið í örum
vexti undanfarin ár og eru
enn ráðgerðar frekari breyt-
ingar og betrumbætur á
blaðinu á næsta ári.
Enn sem fyrr viljum við
vekja athygli bæjarbúa á því
að blaðið er ÖLLUM opið,
og geta ALLIR skrifað um
það sem þeir vilja svo lengi
sem það varði ekki við Iög
eða almennt velsæmi.
Fréttir þakka þeim er stutt
hafa útgáfuna á árinu með
margvíslegum hætti. Sér-
staklega þökkum við Sig-
mundi Andréssyni, Frið-
birni Ó. Valtýssyni og
Stefáni Jónassyni fyrir þeirra
þátt. Auk þess Sigurgeiri
Jónassyni ljósmyndara en
allir þessir aðilar og svo
aðrir ónafngreindir hafa
verið okkur vel innan hand-
ar við útgáfuna á árinu og
vonum við að svo verði á-
fram. GLEÐILEGT ÁR!
Nú borgar sig að
senda jólamyndimar í framköllun.
□□□□□□□□□□□□□□□□□
Við eigum filmur og flasskubba og
þrífætur til að taka góðar myndir
um áramótdn.
□□□□□□□□□□□□□□□□□
Mikið úrval af myndarömmum
og öðrum ljósmyndavörum.
□□□□□□□□□□□□□□□□□
RAFTÆKJAVERSLUNIN
KJARNI S/F SKÓLAVEGI 1 - SíMI 1300
Brennur
um
ára-
mótin
Fréttir höfðu samband
við slökkvliðsstjóra og
spurðust fyrir um ára-
mótabrennur í ár.
Kristinn sagði, að
formlegar beiðnir um
brennuleyfi hefðu enn
ekki borist (í gær) en hann
giskaði þó á að brennu-
staðir yrðu þeir sömu og
undanfarin ár, að undan-
skilinni brennunni milli
Fella. Það er því líklegt að
brennur verði á eftirtöld-
um stöðum: Malargryfj-
unni við Hástein, vestan
við Stapa og fyrir sunnan
Hraunbúðir, auk þess
smærri brennur hér og
þar.
Rétt er að brýna fyrir
öllum að fara varlega með
eldinn á gamlárskvöld.
Mörg alvarleg slys hafa
hlotist af völdum flugelda
og meðferð elds á þessu
kvöldi. Einnig að foreldr-
ar fylgist með börnum
sínum með skotelda.