Akureyri


Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 2

Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 2
2 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 Dregið úr heima- námi í Giljaskóla Meginhluti rannsókna staðfestir ekki gildi eða mikilvægi heimalær- dóms. Þetta segir skólastjóri Gilja- skóla, Jón Baldvin Hannesson. Hann segir ekki alla á eitt sátta með þetta, því erfitt virðist að finna aðferða- fræðilega réttar rannsóknir sem sýnt geti fram á að nemendur nái meiri árangri ef þeir sinna miklu heimanámi. „Við höfum ekki stigið skrefið og ákveðið að fella niður heimanám og óvíst að við gerum það. Slíkt yrði aldrei gert með lestur á fyrstu skólaárunum, þar til góðri lestrarfærni er náð, en kæmi frekar til greina með annað nám,“ segir Jón Baldvin. Eigi að síður telur Jón Baldvin að margir kennarar skólans hafi dregið úr heimanámi hjá nemendum sín- um. „Þegar kennarahópurinn okkar var spurður í fyrra um tilgátur eða skýringar á góðum árangri nemenda okkar á samræmdum prófum komu m.a. tilgátur um að lítið heimanám gæti skýrt betri árangur. Engar rann- sóknir styðja það þó, hér er einungis um tilgátu að ræða.“ Þegar skoðaðar eru niðurstöð- ur úr samræmdum prófum síðustu fimm ár koma nemendur Giljaskóla og Brekkuskóla best út á Akureyri. Félagsstaða foreldra nemenda í Brekkuskóli er að jafnaði hærri en hjá foreldrum barna í Giljaskóla og því má velta fyrir sér hvort kennslu- þátturinn í Giljaskóla vegi þyngra en ella. „Sumir vilja halda fram að heima- nám sé mun meira í öðrum skólum en okkar. Ég get hins vegar ekkert full- yrt um það. Formlegur samanburður hefur ekki verið gerður. Það væri hins vegar fróðlegt að sjá rannsókn á því,“ segir Jón Baldvin. a KSÍ bíður upplýsinga frá útlöndum vegna Þórsmálsins „Athugun er ekki lokið og við bíðum enn upplýsinga erlendis frá vegna þessa máls,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ. KSÍ skoðar enn vísbendingar um veðmálabrask þegar Þór spilaði fótboltaleik við lið Dalvíkur-Reynis um miðjan janúar. Niðurstaðan liggur ekki fyrir. Fram- kvæmdastjóri Íslenskrar getspár sagði í frétt Stöðvar 2 skömmu eftir að sagt var frá málinu í fjölmiðlum að freistnivandi væri fyrir hendi fyrir aðila nátengdum lið- um, sérstaklega í leikjum sem ekki hefðu mikla þýðingu. Fram kom í frétt Stöðvar 2 að fjárhæðum var veðjað á leikinn hér innanlands og á stórsigur Þórs. Með stórsigri er átt við að leikur vinnist með þremur mörkum eða meira. Leikurinn fór 7-0. „Við erum sem sagt með skoðun á þessu máli í gangi og höfum leitað til allra þeirra aðila sem okkur er fært að leita til varðandi slík mál, s.s. UEFA, ESSA, veðmála- síðunnar sjálfrar og fleiri aðila,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ sem ekki getur tjáð sig nánar um málið að svo stöddu. Leikmenn Þórs sendu frá sér yfirlýsingu skömmu eftir að Akureyri vikublað flutti fyrst frétt um grunsemdirnar. Þar var því neitað að leikmenn hefðu tekið þátt í veð- málum í eigin leik. a Nýr kafli í sögu kaffi- hússins í Lystigarðinum Fasteignir Akureyrarbæjar hafa ákveðið að bjóða út rekstur kaffi- hússins í Lystigarðinum. Stefnt er að því að semja til næstu 10 ára frá og með 15. apríl 2014 og að nýr rekstr- araðili geti hafið þar rekstur sinn með vorinu. Eins og Akureyri vikublað greindi fyrst frá varð ljóst sl. haust að Sig- urður Guðmundsson og Njáll Trausti Friðbertsson, sem báðir hafa gegnt stöðum bæjarfulltrúa og varabæj- arfulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar á kjörtímabilinu, hefðu ekki bolmagn til að reka kaffihúsið áfram þrátt fyrir fyrri samning. Deilt var um brigsl og gengu ásakanir um svik og ósannindi milli Odds Helga Halldórssonar og þeirra félaga, Njáls og Sigurðar, m.a. í aðsendum greinum. Tekist var á um mál eins og hvort bærinn hefði stað- ið við samkomulag um snjómokstur til að greiða aðgengi almennings að kaffihúsinu yfir vetrartímann. Bæði Akureyri vikublað og Vikudagur hafa haft eftir Oddi Helga að bær- inn skaðist á riftun samningsins þar sem endumeta þurfi forsendur um endurgreiðslu stofnkostnaðar. Kaffihúsið í Lystigarðinum var reist árið 2012 í tilefni af 100 ára afmæli garðsins og 150 ára afmæli kaupstaðarins. Rekstur kaffihússins var boðinn út árið 2012. Niðurstaðan í kjölfar riftunar leigusamningsins er að bjóða rekstur kaffihússins út aftur eins og Oddur Helgi, formaður Fats- eigna Akureyrar, boðaði í Akureyri vikublaði haust. Verður það gert með auglýsingum í fjölmiðlum. Kaffihúsið í Lystigarðinum er samtals 177,2 m2 með kjallara og stórri verönd. Frestur til að skila inn tilboðum í rekstur þess rennur út 21. mars nk. a Varaþingkona beitt ofbeldi fyrir framan stórmarkað Freyja Haralsdóttir, varaþingmað-ur Bjartrar framtíðar, ritar grein í Akureyri vikublað í dag þar sem hún lýsir ofbeldi sem hún varð fyrir í vetur. Greinin er liður í átaki sem Zontakonur hafa hrundið af stað þar sem hvatt er til vitundarvakningar vegna ofbeldis gegn konum. Freyja lýsir í grein sinni þegar hún hafði lokið innkaupum í verslun í vetur ásamt aðstoðarkonu og beið fyrir framan bíl meðan aðstoðarkonan gekk frá pokunum. Þá bar að eldri mann og án þess að aðstoðarkon- an yrði þess vör snerti hann Freyju ítrekað. „Hann byrjaði að strjúka á mér hárið, andlitið, bringuna, vinstra brjóstið, magann og niður lærið á mér. Ég leit í hina áttina, fjarlægði hugann frá líkamanum og beið eft- ir að þessu lyki. Fraus. Kom ekki upp orði. Þessar nokkru sekúndur liðu eins og heil eilífð. Næsta sem ég man er að aðstoðarkonan er að aðstoða mig inn í bíl og maðurinn stendur á bakvið okkur og starir á mig þar til búið er að loka bílnum og við keyrum burt. Mig langaði að kasta upp. Öskra. Eitthvað. En ég gat það ekki. Ekkert annað en að klára þennan dag við hliðina á sjálfri mér. Þó þakklát fyrir að hafa haft aðstoð til þess að komast inn í bíl svo þetta hefði ekki farið verr.“ LÍKAMAR OKKAR EINS OG EIGN ALMENNINGS Í grein Freyju kemur fram að fatlaðar konur verða samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum fyrir margfalt meira ofbeldi en ófatlaðar konur og nóg er nú samt eins og hún orðar það. Hún segir að fatlaðar konur tilkynni síður ofbeldi en aðrar og síðar en almennt tíðkist. „Ýmsar ástæður liggja að baki, ekki síst það valdaleysi sem við sem fatlaðar konur búum við og skortur á aðstoð og aðgengi. Á okkur má glápa, líkamar okkar eru oft skil- greindir afbrigðilegir og gallaðir og verða viðföng fagfólks sem vill gera við þá. Við erum álitnar eilíf börn, þar með kynlausar og höfum oft ekki nokkra stjórn á hver aðstoðar okkur, hvar, hvenær og hvernig. Sem ungar stúlkur erum við jafnvel skammaðar fyrir að leyfa ekki hverjum sem er að aðstoða okkur á salernið og erum sagðar vera með vesen fyrir að gera kröfur um hver aðstoðar okkur við svo persónulegt mál. Skilaboðin sem við fáum eru því oft þau að líkamar okkar séu ekki í eigu okkar sjálfra. Líkamar okkar eru eign almennings.“ Sjá bls. 13 MIG LANGAÐI AÐ öskra, segir Freyja Haraldsdóttir varaþingmaður sem varð fyrir árás í vetur. REKSTUR KAFFIHÚSSINS GEKK ekki sem skyldi hjá fyrri rekstaraðilum en nú eru samningar lausir. Völundur ÞÓRIR HÁKONARSON

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.