Akureyri - 27.02.2014, Síða 4
4 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
Huga þurfi betur að skilaboðum til aldraðra
Ekki er staðið nógu vel að boðun
til íbúa þegar taka þarf rafmagn af
hverfum tímabundið vegna viðgerða
eða af öðrum ástæðum, segir öldruð
kona í Víðilundi á Akureyri.
Í síðustu viku þurfti Norðurorka
að láta framkvæma viðgerð á hluta
Brekkunnar á Akureyri og lentu
sumir íbúa í því að rafmagnið var
tekið af húsnæði þeirra í nokkrar
klukkustundir yfir miðjan dag án
þess að íbúar hefðu fengið viðvörun.
Þetta segir öldruð kona sem hafði
samband við Akureyri vikublað.
Þegar hún áttaði sig á að rafmagnið
var farið hringdi hún í Norðurorku
og leitaði upplýsinga hverju það
sætti að hún hefði ekki verið látin
vita með bréfi fyrirfram. Þá hafi hún
fengið þau svör að truflunin hefði
verið boðuð með rafrænum hætti,
sms smáskilaboðum. Konan segist
sjálf ekki vera með GSM-síma og
þannig háttaði til um fjölda annarra
aldraðra íbúa í grennd. Konan segir
það óboðlegt að gera ráð fyrir að-
gengi rafrænna upplýsinga í hverfum
þar sem fjöldi aldraðra eigi heima. Í
svona tilvikum þurfi að dreifa miða
í hús þar sem lokun sé boðuð með
fyrirvara þannig að íbúar geti búið
sig undir.
NORÐURORKA BIÐST
VELVIRÐINGAR
Blaðið bar málið undir Baldur Dýr-
fjörð upplýsingafulltrúa hjá Norður-
orku og spurði hvort aldraðir íbúar
sem ekki hafa tæknivæðst gætu lent
milli skips og bryggju þegar boð-
anir stofnana eins og Norðurorku
væru annars vegar. Baldur sagðist
ekki þekkja þetta tilvik til fulln-
ustu en sagðist sammála konunni
um nauðsyn þess að allir fengju
upplýsingar og baðst velvirðingar
fyrir hönd Norðurorku. Reynt væri
að auglýsa mjög stórar lokanir sér-
staklega bæði í útvarpi og blaði eins
og Akureyri vikublaði. Hin almenna
vinnuregla ef fyrirvari gæfist væri
að senda líka bréf og sms. Taka
mætti fram að notendur gsm-síma
væru að jafnaði mjög ánægðir með
að fá tilkynningar með þeim hætti.
Hins vegar hefðu ekki allir aðgang
að slíkum upplýsingum og ef hægt
væri að senda bréf líka yrði að gera
það eða reyna allt hvað hægt væri til
að koma skilaboðum til notenda. a
Aðeins 39 kusu sér
nýjan oddvita hjá VG
Sóley Björk Stefánsdóttir mun leiða
lista VG á Akureyri til sveitarstjórn-
arkosninga í vor. Sóley fékk 36 at-
kvæði af 39 greiddum atkvæðum en
Andrea Hjálmsdóttir, oddviti flokks-
ins og bæjarfulltrúi, hefur af persónu-
legum ástæðum ákveðið að hætta í
bæjarstjórn eftir þetta kjörtímabil.
Edward Huijbens varabæjarfulltrúi
mun áfram skipa annað sætið, hlaut
33 atkvæði af 44 greiddum atkvæðum.
Hildur Friðriksdóttir sigraði í
kosningu um þriðja sæti og kem-
ur ný inn í forystusveit flokksins á
Akureyri.
Sóley Björk, nýr oddviti VG á
Akureyri, segist þakka eindreginn
stuðning í efsta sætið því að félagar
hennar í VG séu ánægðir með hennar
störf innan og utan flokksins síðustu
ár og hafi trú á henni sem leiðtoga.
„Það var jákvætt að í öll sæti á list-
anum voru tveir eða fleiri frambjóð-
endur og til marks um áhuga fólks á
starfinu en um leið mjög ánægjulegt
að stuðningurinn sé svo afgerandi.“
En hvað skýrir svo dræma kjör-
sókn að mati Sóleyjar?
„Reynslan í félagsstarfi almennt
sýnir að oft sé ekki mikil aðsókn á
opna fundi almennt og ekki óalgengt
að örfáir félagar mæti, jafnvel hjá
mjög stórum félögum svo ég held
að 50 manns sé bara alls ekki svo
slæm mæting. Við vorum að prufa
þetta valfundarfyrirkomulag í fyrsta
skiptið og í Reykjavík, þar sem val-
fundur var haldinn viku fyrr, dróst
hann mjög á langinn sem hefur
líklega fælt eitthvað frá mætingu
hér. Að lokum þá er alltaf nóg um
að vera á Akureyri, þennan dag var
t.d. Dagur tónlistarskólanna haldinn
hátíðlegur og heilmikið um að vera
víða.“ a
GATAN SENN GREIÐ! Þeir sem starfa við snjómokstur og hreinsun gatna þurfa stundum tímabundið að skipta strætum Akureyrar
í tvennt, þar sem myndarlegur snjóruðningur í miðju gatnanna ræður hvort fólk kemst í stæðin sín án útúrdúra. Myndin er tekin
í Hrafnagilsstrætinu um helgina en nokkrum mínútum síðar höfðu stórvirkar vinnuvélar fjarlægt allan snjóinn af götunni – og líf
íbúanna tók á sig hefðbundna mynd. Það styttist í vorið – og þá fer svona ástand að heyra sögunni til. Í bili. BÞ
Körlum í nemahópi
HA fækkar um 50 á
fjórum árum
Stefán B. Sigurðsson rektor HA, hélt
fyrirlestur undir yfirskriftinni„Hlut-
verk og mikilvægi HA fyrir nærsam-
felagið og íslenskt þjóðfélag“ í húsa-
kynnum skólans í gær. Þar fór hann m.a.
yfir tölur um fjölda nemenda á síðustu
árum. Árið 2009 voru 1499 einstak-
lingar við skólann en fjölgaði um 69 á
fjórum árum. Árið 2013 voru þeir 1568.
Körlum í hópi nemenda fækkaði
við Háskólann á Akureyri á sama
tímabili. 392 karlar voru við nám í
HA árið 2009 en 343 karlar árið 2013.
Fækkunin nemuir 49 körlum á sama
tíma og skólinn hefur vaxið.
Stefán B. Sigurðsson rektor
segir þetta ekki vera æskilega þró-
un. „Þetta er líklega vegna þess
að kennarafræðin og hjúkrunar-
fræðin, sem hafa verið eftirsóttustu
námsleiðirnar innan HA, hafa í gegn-
um tíðina verið talin kvennastörf,“
sagði Stefán á fyrirlestrinum.
-SA/BÞ
REKTOR HÁSKÓLANS Á Akureyri segir það vonda þróun að karlnemum við skólann
fækki.