Akureyri - 27.02.2014, Blaðsíða 10
10 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Aðalfundur Ferðafé-
lagsins Norðurslóðar
Ferðafélagið Norðurslóð heldur að-
alfund næstkomandi sunnudag, 2.
mars. Byrjað verður á að ganga á
Höfðann við höfnina á Raufarhöfn
og verður aðalfundurinn haldinn
eftir gönguna. Mæting við kirkjuna
á Raufarhöfn kl. 13:00, fundurinn
hefst í grunnskólanum kl. 14:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf, svo sem skýrsla stjórnar
og reikningar, inntaka nýrra félaga,
kosningar og önnur mál.
Þá verða sýndar myndir úr göng-
um síðasta árs og ferðaáætlun Norð-
urslóðar 2014 verður kynnt.
Fundurinn er öllum opinn, allir
eru hjartanlega velkomnir.
Félagið heldur áfram að eflast
og er óhætt að segja að starf félags-
ins á síðastliðnu ári hafi verið hið
fjölbreyttasta frá stofnun, en það
var stofnað 2009. Góð þátttaka var
í ferðir félagsins, bæði lengri og
styttri, árbók FÍ fjallaði um félags-
svæðið og var farin árbókarferð um
svæðið með fararstjórn höfundar,
Hjörleifs Guttormssonar, félögum
boðið á GPS-námskeið og þannig
má áfram telja. a
Hannaði vörumerki
Loðdýrabændur að Syðra-Skörðugili
í Skagafirði hafa undanfarin miss-
eri unnið að vöruþróun sem gengur
út á að vinna græðandi smyrsl úr
minkafitu. Nú í ársbyrjun fóru að-
standendur verkefnisins þess á leit
við Myndlistaskólann á Akureyri
að nemendur Listhönnunardeildar
skólans hönnuðu vörumerki fyrir
afurðirnar undir merkjum Gands.
Í framhaldi var efnt til samkeppni
nemenda á fyrsta-, öðru- og þriðja
ári deildarinnar.
Merki Ingibjargar Berglindar
Guðmundsdóttur var valið sem fram-
tíðarauðkenni Gands. Afhending
verðlauna fór fram í Myndlistaskól-
anum á Akureyri sl. föstudag ásamt
því að eigendur Gands tóku formlega
við merkinu. a
INGIBJÖRG BERGLIND GUÐMUNDSDÓTTIR, upprennandi hönnuður. Innfellda myndin
sýnir verðlaunamerkið sem hún hannaði fyrir Loðdýrabændur.
Á SNARTARSTAÐANÚP, HORFT yfir Hvalvík og norður eftir Melrakkasléttu. Sesselja
Guðmundsdótti
ÞESSA DAGANA STANDA yfir landvinningar Akureyringa. Vaðlaheiðargöngum hefur
verið snúið á rönguna við gerð grjótgarðs sem skagar langt út í Pollinn. Völundur
10 | SÓKNARFÆRI
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Símar:
467 1205 - 467 1203 - 692 5060 - 869 4441
„Þróun á veiðarfærum er mikilvægur
þáttur í starfi netaverkstæða Ísnets.
Þegar veiðarfæri er þróað, annað-
hvort frá grunni eða eldri gerðir
veiðarfæra endurbættar, þá er í öll-
um tilfellum unnið með skipstjórum
fiskiskipa annars vegar og birgjum
félagsins hins vegar. Það er megin
markmið okkar að prófa þau veiðar-
færi sem við þróum í tilraunatanki
til að fá sem bestar niðurstöður um
veiðarfærin áður en þau eru fram-
leidd í raunstærð,“ segja þeir Birkir
Agnarsson framleiðslustjóri og Kári
Páll Jónasson rekstrarstjóri hjá Ísneti
en í október fór um 50 manna hóp-
ur frá Ísfelli til Hirtshals í Dan-
mörku þar sem ný dragnót og
rækjutroll frá fyrirtækinu voru
kynnt. Í hópnum voru innlendir og
erlendir viðskiptamenn félagsins,
ásamt fulltrúum frá Selstad, Mor-
gére og Garware Wall-Ropes og
starfsmönnum Ísfells. Hægt er að
segja að hópurinn hafi verið fjöl-
þjóðlegur þar sem gestir voru frá Ís-
landi, Grænlandi, Færeyjum, Dan-
mörku, Noregi, Frakklandi, Þýska-
landi, Kanada og Indlandi.
Ný dragnót lítur dagsins ljós
Starfsfólk Ísnets hefur undanfarna
mánuði þróað nýja gerð dragnótar.
Á meðan á þróunarferlinu stóð var
verkefnið unnið í samstarfi við skip-
stjóra á dragnótabátum. Megin
markmiðið var að hanna alhliða
dragnót sem væri létt í drætti og fari
vel í sjó. „Í hönnuninni var lögð
áhersla á góða lárétta og lóðrétta
opnun, styrk og góða endingu sem
og einfaldleika í allri meðhöndlun.
Meðal nýjunga í dragnótinni er ný
gerð af neti frá Garware sem heitir
SNG. Netið er ný kynslóð af Safír
neti sem er mun sterkara og nún-
ingsþolnara en hefðbundið PE net.
Með þessu neti er hægt að hafa efnið
grennra án þess að skerða styrk og
endingu. Þá var möskvastærð einnig
breytt frá hefðbundnum dragnótum
til þess að létta hana í drætti og gera
hana fisknari,“ segir Birkir en meðal
annarra nýjunga má nefna breyting-
ar á lögun á dragnótinni, fiskilínu,
höfuðlínu og fótreipi.
„Viðbrögð skipstjóra, sem voru
viðstaddir tankprófun á dragnótinni,
voru strax jákvæð og nú þegar er bú-
ið að panta hjá okkur dragnætur af
þessari gerð. Það var samdóma álit
viðstaddra að um vel heppnaða
hönnun væri um að ræða sem von-
andi á eftir að skila sér í auknu og
hagkvæmara fiskiríi,“ segir Birkir.
Ísnet 2967 Lukkutroll
Á undanförnum árum hefur Ísnet
unnið að þróun á svokölluðu Luk-
kutrolli til rækjuveiða í samstarfi við
Ómar Þorleifsson, skipstjóra á Sig-
urborgu SH frá Grundarfirði. Sigur-
borgin hefur notað Lukkutroll frá
árinu 2005 með ým um breytingum
sem gerðar hafa verið frá upphaflega
trollinu sem var 2512 möskva.
Nýjasta útfæ slan af trolli u var
svo skoðuð í áðurnefndri tankferð til
Hirtshals en um er að ræða 2967
möskva troll og segja þeir Birkir og
Kári að mönnum hafi borið saman
um að trollið liti mjög vel út í
tanknum. Lukkutrollið hefur le gst
af verið eingöngu úr Safírneti, en í
nýja trollinu er auk þess notað
hnútalaust Dyneema net til að létta
það enn frekar í drætti. Í upphafi var
Lukkutrollið tveggja grandara og er
það ennþá valmöguleiki þó nýjasta
útgáfan sé þriggja grandara.
„Ísnet kynnti þetta troll á síðasta
ári fyrir öðrum viðskiptavinum og
hafa nokkur slík verið afhent undan-
farið, bæði úr Safírneti, Dyneema og
einnig venjulegu PE neti. Kúlurnar,
sem við mælum með á trollið, eru
svokallaðar Hydro kúlur frá Castro á
Spáni sem er nýjung hjá Ísneti. Þær
líta út eins og golfkúlur á yfirborð-
inu og eru hannaðar til að veita
minna togviðnám.
Þess má geta að trollið hefur ekki
einungis gefist vel við rækjuveiðar
heldur veiðir það grálúðu einnig vel
en núorðið má hirða þann fisk sem
kem r í rækjutroll með svokölluð-
um yfirpoka. Það má því segja að
Lukkutrollið sé alhliða troll sem tek-
ur bæði hátt og breitt og hægt er að
fá í öllum stærðum,“ segir Kári.
Ísnet 4200 Gigantus
„breiðskafa“ til rækjuveiða
Gigantus troll er einnig nýjung frá
Ísneti það hannað í samstarfi
við Selstad í Noregi. Meginmark-
miðið við hönnunina segja Birkir og
Kári að hafi verið hönnun á trolli
sem væri fyrst og fremst breitt og
létt í drætti en þyrfti ekki að taka
neitt sérstaklega hátt.
„Ísnet hefur þegar framleitt tvö
Gigantus troll fyrir grænlenska
rækjutrogarann Qaqqatsiaq og þau
voru að stærstum hluta gerð úr Saf-
írneti en þó var notað hnútalaust
Dyneema í hluta af yfir- og hliðar-
byrðum. Qaqqatsiag hefur náð góð-
um árangri með þessi troll og en
skipið dregur tvö 3960 möskva troll.
Við veiðarnar hafa bæði verið notað-
ir hefðbundnir botntrollshlerar eða
flottrollshlerum.“
isfell.is
Fylgst með prófunum á Lukkutrolli í tanknum í Hirtshals og áhugi n leynir sér ekki.
Rækjutroll Gigantus, 4200 möska.
Dragnót, 38 faðma.
Rækjutroll (Lukkutroll), 2967 möskva.
Dragnót, 38 fm í köstun.
Ísnet:
Ný hönnun á dragnót og Lukkutroll
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vinnuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%