Akureyri


Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 12

Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 12
12 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 AÐSEND GREIN EDWARD H. HUIJBENS Misráðin gjaldtaka Í Fréttablaðinu síðastliðinn þriðju- dag kom ítarleg grein um hugmyndir landeigenda í Reykjahlíð um gjald- töku á þremur áfangastöðum á Norð- urlandi. Þessi nýjasta tekjuöflunar- leið af ferðafólki er að mínum dómi sú versta mögulega sem hugsast get- ur og fyrir því liggja nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi er mikilvægt að átta sig á því að ferðaþjónusta ein og sér stendur ekki undir hagvexti svæða eða landa. Straumur ferðafólks er árstíðarbundinn og frekar hvikur, sveiflast til með tísku og tækni- breytingum, verðlagi og ástandi heimsmála. Gestakomur hafa fyrst og fremst þann kost að efla samfélög og bæta framlegð fyrirtækja sem þar eru. Til þess þurfa samfélög og fyr- irtæki að standa traustum fótum og þá á fleiri fótum en ferðafólki einu saman. Tekjur af ferðafólki koma þannig ekki gegnum einhverskonar beinharðan pening sem gestir greiða á hverjum stað fyrir sig, heldur kem- ur umfram allt fram í bættum rekstri fyrirtækja og bættri nýtingu þess sem fyrir er. Þannig er ferðaþjónusta jákvætt afl til uppbyggingar. Í annan stað birtast í hugmyndum um gjaldtöku undarlegar hugmyndir um eignarhald á landi. Eiga land- eigendur í Reykjahlíð Dettifoss? Nei auðvitað ekki. Við öll „eigum“ landið ef þá hægt er að segja það. Þeir sem ætla að taka sér það vald að hefta för fólks um landið verða að hafa lögmæta hagsmuni að verja, svo sem vernd á því sem þar er yrkjað eða byggt upp. Á náttúrusvæðum er ekkert byggt né yrkjað, aðeins í boði upplifun af mætti náttúru. Að hindra för fólks til að nálgast þessa upplif- un samræmist ekki gildandi lögum, en þar segir: „Mönnum er heimilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa, að fara gangandi, á skíð- um, skautum og óvélknúnum sleð- um eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar.“ (14gr. 1999/44). Gestum ber að sýna landeigendum og starfsemi þeirra á landinu tillitssemi (ef einhver er), en mega fara óhindrað um. Réttur land- eigenda til að loka vegna verndar er reyndar tryggður í nýjum lögum um náttúruvernd (18gr. 2013/60) en þau munu ekki koma til fyrr en í júní á næsta ári ef af verður. Þetta þýðir einfaldlega að rökin um að gjaldtaka snúi að vernd standast ekki núgild- andi lög og í raun ekki skoðun. Hvað þá skoðun varðar, og í þriðja lagi, ber að nefna að ef til stendur að rukka alla gesti sem koma þarf starfslið og þjónustumiðstöð, sem til stendur að byggja á þessum þremur stöðum. Það þýðir að tekjur sem mögulega verða standa fyrst og fremst undir byggingu og rekstri á þessum einingum og lítið sem ekkert mun fara í vernd eða uppbyggingu staðanna sjálfra. Enda gaf formaður landeigenda félagsins það skýrt til kynna þegar hann sagði það „ekkert óeðlilegt við að eigendur hefðu arð af starfseminni“ þegar uppbyggingu væri lokið. Ekki var annað að skilja en að sú uppbygging sneri aðeins að þjónustumiðstöðvum. Hversu langt menn ætla að ganga í uppbyggingu á þessum þremur stöðum má svo sem einu gilda. Gjaldtaka þar af þeim gestum sem þá staði sækja mun ekki renna til annarra staða, sem kannski stendur til að byggja upp, eða jafn- vel enn brýnni þörf er á að byggja upp t.d. með það að marki að dreifa gestafjölda, sem er yfirlýst stefna í ferðamálum hér á landi. Í fjórða lagi má spyrja hvaða sam- tal landeigendur eru eiginlega að reyna að hefja við aðila í ferðaþjón- ustu. Nú er búið að selja í fjölda ferða til landsins, þar sem inni í verði er heimsókn á t.d. þessa þrjá staði. Ekki var gert ráð fyrir gjaldtöku. Þýðir það að ferðaskrifstofur og ferða- skipuleggjendur muni þurfa að bera kostnaðinn af heimsókn sinna hópa þetta sumarið, eða á að hætta á all- nokkra óánægju meðal gesta með því að rukka hvern og einn sem úr rútu kemur? Þessum spurningum er ósvar- að og var þeirra í raun aldrei spurt, enda hér um einleik landeigenda að ræða sem telja sig eigendur að nátt- úruperlum þessa lands. Það fordæmi sem mögulega skapast með þessari gjaldtöku landeigenda í Reykjahlíð, og byggir reyndar þegar á fordæmi frá Ker- inu, er það versta sem skapast get- ur. Það að hver staður skuli standa í innheimtu hver fyrir sig og hver með sínu nefi, gerir upplifun af Ís- landsferð þannig að gestir telji sig féfletta frekar en sinnt af gestrisni. Ferðaþjónusta sem knúin er áfram af væntingum um gróða er ekki já- kvætt afl í samfélagi og ranghug- myndir landeigenda um hlutverk sitt og réttarstöðu munu ekki verða uppbyggingu ferðaþjónustu til fram- dráttar. Höfundur er forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála. AÐSEND GREIN FREYJA HARALDSDÓTTIR ZONTA segir Nei Nýja aðstoðarkonan sat undrandi á móti mér við eldhúsborðið eitt miðvikudagskvöld í vetur þegar ég var að fara með henni yfir starfslýs- inguna. Ég útskýrði fyrir henni að í starfinu myndi hún upplifa fordóma og áreitni í minn garð frá ókunn- ugu fólki í samfélaginu sem myndi tala fram hjá mér og yfir mig beint við hana, vilja kyssa mig og snerta mig í leyfisleysi og vita allt um mína persónulegu hagi þegar það næði henni einni. Eins og flestum nýjum aðstoðarkonum var henni brugðið. Sólarhringi síðar kynntist hún þessu af eigin raun þegar ég var að koma úr matvörubúðinni eftir vinnu. Á meðan ég beið eftir að hún opn- aði bílinn á bílastæðinu og gengi frá pokunum kom eldri maður upp að mér. Hann byrjaði að strjúka á mér hárið, andlitið, bringuna, vinstra brjóstið, magann og niður lærið á mér. Ég leit í hina áttina, fjarlægði hugann frá líkamanum og beið eft- ir að þessu lyki. Fraus. Kom ekki upp orði. Þessar nokkru sekúndur liðu eins og heil eilífð. Næsta sem ég man er að aðstoðarkonan er að aðstoða mig inn í bíl og maðurinn stendur á bakvið okkur og starir á mig þar til búið er að loka bílnum og við keyrum burt. Mig langaði að kasta upp. Öskra. Eitthvað. En ég gat það ekki. Ekkert annað en að klára þennan dag við hliðina á sjálfri mér. Þó þakklát fyrir að hafa haft aðstoð til þess að komast inn í bíl svo þetta hefði ekki farið verr. Nokkrum vikum seinna fór ég út að borða með vinkonum mínum og á leiðinni út af veitingastaðnum kom maður upp að mér og sagði við að- stoðarkonuna ,,Er þetta ekki Freyja? Ég verð að fá að kyssa hana.” Aftur fraus ég. Mig langaði að mótmæla honum en kom ekki upp orði. ,,Nei!” sagði aðstoðarkonan hvasst og vísaði honum frá. Honum brá en spurði aftur. Það var eins og ég kæmist til einhvers konar meðvitundar, leit á hann og sagði ,,Nei, þú gerir það ekki.” Maðurinn fór undan í flæm- ingi. Og kvöldið mitt var ekki ónýtt. Fatlaðar konur verða samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum fyrir margfalt meira ofbeldi en ófatlað- ar konur og nóg er það nú samt. Þær tilkynna það síður og þá þegar það hefur varað lengur en almennt tíðkast. Ýmsar ástæður liggja að baki, ekki síst það valdaleysi sem við sem fatlaðar konur búum við og skortur á að- stoð og aðgengi. Á okkur má glápa, líkamar okkar eru oft skilgreindir afbrigðilegir og gallaðir og verða viðföng fagfólks sem vill gera við þá. Við erum álitnar eilíf börn, þar með kynlausar og höfum oft ekki nokkra stjórn á hver aðstoðar okkur, hvar, hvenær og hvernig. Sem ungar stúlkur erum við jafnvel skammaðar fyrir að leyfa ekki hverjum sem er að aðstoða okk- ur á salernið og erum sagðar vera með vesen fyrir að gera kröfur um hver aðstoð- ar okkur við svo persónulegt mál. Skilaboðin sem við fáum eru því oft þau að líkam- ar okkar séu ekki í eigu okkar sjálfra. Líkamar okkar eru eign almenn- ings. Áreitni af þessu tagi er hversdagsleg í mínu lífi. Svo hversdagsleg að það er ekki nema rúmt ár síðan ég áttaði mig á því að hún væri röng og að fólk hefði ekki leyfi til þess að umgangast líkama minn eins og hvern annan dauðan hlut. Þegar aðstoðarkonan neitaði manninum á veitingastaðnum um að kyssa mig og ég komst til ,,meðvitundar” var eitt af þeim mörgu augnablikum sem ég átta mig á því hve mikið frelsi fylgir því að hafa aðstoð sem ég stýri sjálf. Það fyllti mig um leið mikilli sorg því ég er ein af örfáum fötluðu konunum á Íslandi sem bý við slíkt frelsi. Frelsið gerir mér ekki aðeins kleyft að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Það gefur mér frelsi til þess að fá aðstoð við að komast úr vondum aðstæðum. Setja mörk. Leita mér ráðgjafar. Segja nei. Að- stoðin gefur mér líka vald. Vald til þess að byggja mig upp, taka ekki ábyrgð á ofbeldisverkum annarra, geta sent skömmina til síns heima. Og að lokum vald til þess að virða líkama minn, stjórna honum og eign- ast hann sjálf. Sem gefur mér um leið mun meira vald yfir eigin lífi. Höfundur er varaþingmaður. Edward H. Huijbens Eiga landeigendur í Reykjahlíð Dettifoss? Nei auðvitað ekki. Við öll „eigum“ landið ef þá hægt er að segja það. Nei! Freyja Haraldsdóttir

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.