Akureyri - 27.02.2014, Page 14
14 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Heyrst hefur
HEYRST HEFUR að afhjúpun
Akureyrar vikublaðs á
eignarhaldinu bak við félagið
sem bauð hæst í Skútustaða-
skóla á uppboði nýverið hafi
sett hluti í samhengi. Hefur
heyrst að Jón Ragnarsson sem
var um tíma leiðandi í hótel-
bransanum hérlendis hafi nú
aðeins eina aðkomu af hótelrekstri hérlendis, í gegnum Skútustaðaskóla, og
að hann myndi líta á það sem illt hlutskipti að missa síðustu tenginguna.
Hefur heyrst að félög tengd Jóni hefðu e.t.v. getað fengið skólann á mun
lægra verði en boðið var um síðir, eða tæpar 400 milljónir króna, ef ekki
hefði komið inn einn innlendur fjárfestir sem líka hafði mikinn áhuga á að
eignast húsið til hótelrekstrar. Sá bauð og bauð en lúffaði að lokum.
HEYRST HEFUR að afleidd
áhrif tilboðsins háa sem gert var
í Skútustaðaskóla muni hafa
áhrif á fasteignaverð í Mývatns-
sveit. Verð fasteigna er fljótandi
og vísitölutryggt og tekur mið af
hræringum og breytingum
annarra fasteigna. Hefur heyrst
að kröfuhafar skuldsettra ferðaþjónustufyrirtækja í Mývatnssveit hafi hopp-
að hæð sína af kæti þegar upplýstist að skóli sem til stóð að selja fyrir átta
milljónir fyrir skemmstu kosti nú 384 milljónir króna, „kassinn einn“ eins
og það er orðað.
HEYRST HEFUR að frétt Akureyrar vikublaðs um að Íslendingur, sonur
Jóns Ragnarssonar, sé eini skráði hluthafi erlends félags sem bauð hæst í
Skútustaðaskóla sé dæmi um enn eitt málið, þar sem komi á daginn á áhugi
Íslendinga á fjárfestingum hér innanlands sé þrátt fyrir allt harla lítill þegar
allt kemur til alls. Stundum sé hinu gagnstæða haldið fram og alið á ótta
um að Ísland sé til sölu og hákarlar erlendis muni gleypa allt. Hið rétta sé
að oftar en ekki séu Íslendingar bak við „erlendu félögin“. Hefur mátt sjá
þessa stað allt frá því að ríkisbankarnir voru einkavæddir. Spunafréttir um
áhuga erlendra fjárfesta reyndust ekki eiga við rök að
styðjast. Fæstir hafi áhuga á oss. Nema við sjálf...
AÐSEND GREIN HEIÐUR ÓSK ÞORGEIRSDÓTTIR
Skák er skemmtileg íþrótt
Skákfélag Akureyrar var stofnað 10.
febrúar árið 1919 og er eitt af elstu
félögunum á Akureyri. Skákfélagið
er opið öllum, ungum sem öldnum,
og má hver sem er sem hefur áhuga
á skák hefja æfingar en þessi íþrótt
er einstök listgrein fyrir alla. Skák
er jafnan talin holl íþrótt þar sem
reynt er á hugann og einstaklingar
sem stunda hana eignast kyrrlátt
athvarf og tilbreytingu frá hvers-
dagsleikanum.
Skákfélag Akureyrar er stórt fé-
lag sem hefur unnið til margra titla
í einstaklingskeppnum í ýmsum
aldursflokkum frá stofnun þess og
þá sérstaklega undanfarin ár. Til að
mynda má nefna að árið 2011 var
landsmót í skólaskák haldið á Ak-
ureyri og voru báðir sigurvegararnir
frá Akureyri og var það í fyrsta sinn
í 32 ára sögu mótsins sem svo var.
Einnig er nýlegur skákmeistari
Akureyrar sá yngsti frá upphafi, eða
14 ára gamall. Nú í ár fengu tveir frá
Skákfélaginu tilnefningu til að fara
á norðurlandamótið í skólaskák í
Billund þar sem annar hampaði öðru
sæti í sínum aldursflokki og hinn
fjórða sætinu í sínum aldursflokki.
Þeir sem eldri eru í félaginu eru dug-
legir að sækja öldungamót sem eru í
boði, bæði innanlands sem utan, en
þeir fara til að mynda annað hvert ár
til Færeyja. Innan félagsins eru auk
þess haldin ýmis mót og er þá keppt
í hraðskák, kappskák og atskák.
Aðstaða Skákfélags Akureyrar
er í íþróttahöllinni á Akureyri þar
sem allar æfingar fara fram. Æfingar
fyrir byrjendur eru á mánudögum kl.
16:30-18 og sér Andri Freyr Björg-
vinsson um þær en æfingar fyrir
lengra komna eru á miðvikudögum
kl. 17-18:30 og sér Sigurður Arnars-
son um þær.
Skák er íþrótt sem krefst styrks
hugans ásamt því að þú lærir að
beita huganum á rólegan og yfir-
vegaðan máta. Í skákinni eignastu
vini til framtíðar frá ýmsum lönd-
um og þrátt fyrir vítt aldursbil er
skákhópurinn ótrúlega samheldinn
og náinn og fullur af afburðaleik-
mönnum og meisturum framtíðar-
innar. Þess vegna er ekki skrítið að
einkunnarorð skákhreyfingarinnar
séu: ,,Við erum ein fjölskylda“. Skák-
in er heillandi samband af list og
íþróttum og í henni þjálfar þú hug-
ann og heilann.
Ég hvet alla, unga sem aldna,
til að kynna sér skákstarfið og
möguleika þess og vil benda á vef-
síðu Skákfélags Akureyrar, http://
www.skakfelag.blog.is, en þar er
fjallað um ýmis mót, úrslit móta,
sögu félagsins og starfssemi í kring-
um félagið. Einnig er hægt að hafa
samband við formann skákfélagsins,
Áskel Örn Kárason, á askell@simnet.
is eða Sigurð Arnarsson, á sigarn@
akmennt.is ef vantar frekari upp-
lýsingar.
AÐSEND GREIN SIGURÐUR RÚNAR RAGNARSSON
Athyglisverð frétt
Athyglisverð frétt birtist í blaðinu
Akureyri vikublaði 20.feb sl. Og
þeim fjölgar. Blaðið er að sækja sig.
Veiðifélag Mývatns skorar á sveit-
arstjórn og aðra að koma í veg fyrir
frekari framkvæmdir við jarðvarma-
virkjanir í nágreni Mývatns.
Tillagan var borin upp af for-
manni félagsins.
Áskorunin er birt í heild í blaðinu
og þar með rökstuðningur fyrir því
að þetta sé brýnt.
Helsti rökstuðningur var:
Svæðið er á rauðum lista umhverfis-
yfirvalda (ekki nefnt hverra) vegna
áforma um Bjarnarflagsvirkjun,
mengandi frárennsli frá manna-
byggð og hnignunar kúluslkíts.
Helstu áhyggjur vegna Bjarnar-
flagsvirkjunar eru minna hitastreymi
til vatnsins vegna kólnunar og/eða
minna rennslis og eiturefnamengun
frá borholuvökva.
Ég varð hissa að að veiðifélags-
menn, vildu leggja þetta til málanna.
Í því sambandi langar mig að
skjóta nokkrum athugasemdum eða
hugleiðingum inn í umræðuna.
Fyrir það fyrsta: Í Kröflueldum
hækkaði hiti á grunnvatni sem renn-
ur í Ytriflóa. Hiti vatns í Grjótagjá,
sem er sæmilegur mælikvarði, fór úr
um 40°C í um 65°C. Síðan hefur hann
lækkað hægt og bítandi. Því finnst
mér skjóta skökku við að áhyggjur
stafi af lækkandi hita grunnvatns
þar sem hann nálgast óðum það sem
hann var á árum áður.
Í öðru lagi; Borholuvökvi frá
Bjarnnarflagi, hvort sem hann er eit-
urefnamengaður eða ekki, hefur ver-
ið losaður á yfirborði í Barnarflagi
í meira en hálfa öld og við Kröflu-
virkjun nokkru skemur. Ég hef ekki
rekist á neinar mælingar sem hafa
gefið vísbendingu um að hann spilli
lífríki vatnsins. Ef þær eru til, vildi
ég gjarna fá ábendingar þar um.
Í þriðja lagi: Borholuvökvi úr
Bjarnarflagi er nú notaður í Jarð-
böðin í Mývatnssveit sem tugþús-
undir manna baða sig í ár hvert.
Fullyrðing þeirra veiðifélagsmanna
að hann sé eirurefnamengaður finnst
mér nokkuð brött og hjálpar Jaðböð-
unum varla í markaðssetningu, nema
enginn taki mark á henni.
Í fjórða lagi; Gert er ráð fyrir sam-
kvæmt umhverfismati Bjarnarflags-
virkjunar að borholuvökvi sem frá
henni stafar og Jarðböðin þurfa ekki
að nota, verði sendur aftur niður í
jörð a.m.k. 1.000 metra niður fyrir
sjávarmál.
Í fimmta lagi: Ef taka ætti tillit til
áskorunar formanns veiðifélagsins
um að beita varúðarreglunni, þ.e. að
náttúran njóti vafans, sýnist mér að
hann snúist helst um frárennsli frá
fólki í sveitinni, íbúum landbúnaði
og ferðafólki. Með fjölgun ferðafólks
eru líkur til að frárennslið aukist.
Veit raunar ekki til að næringarefna-
eða eiturefnamengunar vegna frá-
rennslis frá landbúnaði eða byggð
hafi til þessa orðið vart í Mývatni.
Hvaðeina má draga í efa. Í þessu
tilfelli sýnist mér efinn helst beinast
að afleiðingum fjölgunar ferðafólks.
Verði tekið undir óskir þeirra 14
veiðifélagsmanna, að náttúran fái
að njóta vafans, liggur beinast við
að takmarka eða banna móttöku
ferðamanna í Mývatnssveit.
Í frétt blaðsins kom fram að eftir
miklar umræður hafi tillagan verið
naumlega felld með 18 atkvæðum
gegn 14, þ.e. 14 af 32 fundarmönnum
samþykktu tillögu formanns. Hvort
það er naumt læt ég öðrum eftir að
dæma.
Að lokum: Í þessari athyglisverðu
tillögu formanns veiðifélagsins kem-
ur fram að “ Bleikjuveiði hafi löng-
um verið stórfelld hlunnindi vatns-
bænda í Mývatnssveit, sem séu nú
að engu orðin”.
Þegar illa veiddist á árum áður
var Kísiliðjunni gjarnan kennt um.
Hún er löngu horfin. Nú er risinn nýr
skotspónn, jarðvarmavirkjun.
Hverju voru veiðileysis- og átu-
leysisár að kenna fyrir tilkomu
Kísiliðju og jarðvarmavirkjanna í
nágrenni Mývatns?
Dettur engum í hug að bleikja í
Mývatni hafi verið ofveidd?
Sigurður Rúnar Ragnarsson
(Aths. ritstjóra: Í greininni að ofan segir að tillagan á fundinum hafi komið fram frá formanni Veiðifélags
Mývatns. Hið rétta er að tillagan kom fram frá fyrrverandi formanni Veiðifélags Mývatns, Braga Finnbogasyni.
Bragi situr samkvæmt upplýsingum blaðsins ekki í stjórn.)
Dettur
engum í hug
að bleikja
í Mývatni
hafi verið
ofveidd?
Sigurður Rúnar Ragnarsson
Skák er
jafnan
talin
holl
íþrótt þar
sem reynt er
á hugann ...
Heiður Ósk Þorgeirsdóttir
60 manna barnaverk
sett upp í Hofi
Leikhópurinn Grímurnar á Akureyri
setur upp á stóra sviðinu í Hofi á
Akureyri þann 23. mars nk., nýjan
barnasöngleik með tónlistinni af
vísnaplötum Gunnars Þórðarson-
ar, Einu sinni var og Út um græna
grundu. Höfundar eru Pétur Guð-
jónsson og Jóhanna G Birnudóttir
sem skrifað hafa tvö önnur leikrit
sem sett hafa verið upp á Akureyri.
Friðrik Ómar sér um útsetningar og
stjórnar upptöku, söng-og kórstjórar
eru Heimir Ingimarsson og Margrét
Árnadóttir en Ívar Helgason hannar
útlit á sýningunni, auk þess að sjá um
leikstjórn og dans. Um 25 börn eru í
sýningunni, auk fullorðinna, svo hátt
í 60 manns koma að henni.
Tumi Tímalausi í Álfheimum er í
tilkynningu frá aðstandendum sögð
skemmtun fyrir alla fjölskylduna
enda hafi tónlistin lifað með þjóðinni
í hartnær 40 ár og sé nú endurvakin
í ævintýri úr álfheimum. a