Akureyri


Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 18

Akureyri - 27.02.2014, Qupperneq 18
18 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014 FLÓÐBYLGJA OFNEYSLUNNAR Laugardaginn 1. mars næstkomandi kl. 15 opnar Jonna, Jónborg Sigurðardóttir, innsetninguna Flóðbylgja í Ketilhúsinu á Akureyri. Þar túlkar hún tilfinningar sínar til flóðbylgju ofneyslunnar sem brýst inn á heim- ilin og hrifsar allt til sín með dyggri aðstoð neytenda eins og segir í tilkynningu. „Vitundarvakning er nú loksins að eiga sér stað þegar afleiðing ofgnóttar og sóunar blasir við; tískublætið, græjusýkin, peningabraskið, allur óþarfa lúxusinn og taumlausa hlutadýrkunin – allt bullið og vitleysan.“ Jonna er fædd árið 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistaskól- ans á Akureyri vorið 1995. Hún lærði fatahönnun í Mode og Design skolen í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 2011. Jonna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar. Sýningin stendur til 6. apríl og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis. Fleiri rósir bæt- ast í hnappagöt Húna-manna Halla Björk Reynisdóttir, formað- ur bæjrráðs, afhenti Hollvinafélagi Húna II styrk að upphæð 750.000 kr. þegar því var fagnað um borð í eikarbátnum um síðustu helgi að “Áhöfnin á Húna” hlaut Eyrarrósina fyrir framúrskarandi menningar- verkefni á starfsvæði Byggðarstofn- unar árið 2013. Styrkurinn er veittur vegna fyr- irhugaðrar ferðar Húna II til Os- lóar í júlí 2014 þar sem áhöfnin á eikarbátnum mun taka þátt í stórri strandmenningarhátíð. Hátíðin er sú fjórða í röð slíkra hátíða en sú fyrsta var haldin á Húsavík sumarið 2011. Í Osló verður lögð sérstök áhersla á báta og ef að líkum lætur verður Húni II eini íslenski bátur- inn þar. Einnig er vert að taka fram að hljómsveitin “Áhöfnin á Húna” gerir ráð fyrir að vera í Osló á sama tíma. Strandmenningarhátíðin í Osló stendur frá 17.-20. júlí og er fyrirhugað að Húni II komi aftur heim til Akureyrar 27. júlí. Sl. föstudag hlut áhöfnin á Húna 1.650.000 krónur í styrk fyrir Eyrar- rósina en að auki fékk Verksmiðjan, Hjalteyri sérstaka viðurkenningu. Áhöfnin á Húna sigldi hringinn í kringum landið í sumar og voru þá haldnir 16 tónleikar í sjávarbyggð- um landsins. Ríkisútvarpið fylgdi siglingunni eftir með beinum út- sendingum frá tónleikum áhafnar- innar sem og sjónvarps- og útvarps- þáttagerð þar sem landsmönnum öllum gafst tækifæri til að fylgjast með ævintýrum áhafnarinnar. Húni II hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir áhugavert starf í menn- ingartengdri ferðaþjónustu og er samstarf hans við tónlistarfólkið í Áhöfninni á Húna liður í að efla það enn frekar. HALLA BJÖRK AFHENDIR Hjörleifi Einarssyni, formanni Hollvinafélags Húna II, styrkinn. Mynd: Þorgeir Baldursson. DAGLEG STÖRF ERU mismunandi eins og gengur. Þessi starfsmaður Sólskóga klippti grávíði í gríð og erg í vikunni. Taldi sér ganga vel, en markmiðið er að klippa 5.000 sprota fyrir vorið. Völundur Jónsson

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.