Akureyri - 27.02.2014, Síða 21
27. febrúar 2014 8. tölublað 4. árgangur 21
málastjóri á Akureyri, sem hefur mál sitt á því
sem löngu er orðið „gamlar lummur“, að þar í
bæ séu svo mörg félög, frímúrarar, oddfellóvar,
íþróttafélög o.fl., rétt eins og það tíðkist hvergi
annars staðar, og það skýri leyndina sem þar sé
yfir öllu! Sjómaður að nafni Leifur Thoraren-
sen er kallaður til, sem segir að á Akureyri
hafi verið mikil stéttaskipting og KEA hafi
átt allt og ráðið öllu. Sigurður Líndal prófess-
or les upp úr lagasafni um stolið góss. Því er
lýst með dæmum hve Jakob Frímannsson hafi
verið skelfilegur maður og svo valdamikill að
honum er líkt við sjálft almættið. Ég er ekki
ein um það að ég varð alveg furðu lostin við
þessar yfirlýsingar. Hvað kom þetta málinu
við? Hvers vegna var verið að fóðra okkur á
þessu? Þegar Jakobi Frímannssyni var lýst sem
stórhættulegum valdamanni gekk alveg fram
af mér. Hann þekkti ég frá barnsaldri sem
einstakt ljúfmenni. Á rúmlega tíu ára tímabili
sat ég sem ritari á fundum með Jakobi Frí-
mannssyni í bæjarráði og bæjarstjórn. Þar var
hann þekktur fyrir prúðmennsku og sérlega
friðsamur og vel liðinn maður sem allir virtu.
Ekki höfðu höfundar heimildarmyndarinnar
fyrir því að kynna fyrir áhorfendum hvenær
Coventry-menn komu til Akureyrar eins og
sýnt var síðast í myndinni. Margt fleira gæti
ég sagt um vankanta á umnræddri heimildar-
mynd en fróðlegt þætti mér að vita til hvers
refirnir voru skornir.“
Hvorki stolið né frá Coventry
Miklar tilfinningar birtast í þessum viðbrögð-
um og brást m.a. barnabarn Jakobs Frímanns-
sonar, stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnús-
son, við með hörðu bréfi. Séra Svavar Alfreð
Jónsson prestur í Akuryrarkirkju segir ágalla
hafa verið á heimildarmyndinni frá 2010 en
margt bendi nú til að hvorki hafi glugganum
verið stolið né sé hann ættaður frá Coventry.
„Þetta er löng saga, Jakob Frímannsson kaupir
þesa rúðu og það fylgdu henni þær upplýsingar
að hann væri úr kirkju sem hefði eyðilagst,
hefði verið bjargað á undursamlegan hátt.
Glugginn var keyptur í góðri trú og alltaf talið
að hann kæmi frá Coventry,“ segir séra Svavar.
Tveimur dögum áður en Akureyrarkirkja
var vígð var dómkirkjan í Coventry sprengd í
tætlur. Þá var búið að taka rúðurnar úr kirkj-
unni og koma fyrir í geymslu á sveitarbæ. „Svo
verða blaðaskrif, túristar koma hingað og sjá
gluggann í kirkjunni sem alltaf er sagður frá
Coventry. Sóknarnefnd fær sennilega fyrst
erindi um þetta árið 1973, en aldrei kom fram
krafa um að glugganum væri skilað. Gamla
kirkjan ytra var ekki endurbyggð en hefði slík
beiðni komið fram hefði ekki verið neitt mál
að verða við hennni. Við hefðum bara látið gera
eftirmynd af rúðunni.“
Árið 2009 kemur aftur hópur Breta hingað
upp til Íslands og Akureyrar og vill koma á
frekari samskiptum. Þá var til skoðunar hvern-
ig rúður frá Coventry að því er talið var hefðu
farið frá sveitarsetri þar sem þær voru geyndar
til Lundúna og ein skýring var að þeim hefði
verið stolið. Bresk lög segja að sá sem kaupir
þýfi verði að skila því.
Doktor kveður upp úr
„Svo gerist það næst að fyrir síðustu jól hafa
þeir samband og þá er blaðamaður frá BBC,
sjónvarpsþáttagerðarmaður, kominn með sér-
fræðing í steindu gleri, doktor í gömlum grip-
um, sem hefur rannsakað málið og komist að
þeirri niðurstöðu að glugginn geti ekki verið
úr Coventry,“ segir séra Svavar.
Hann segir að vinnubrögð BBC hafi ver-
ið ögn dramatísk þegar breska ríkisútvarpið
upplýsti þetta fyrir honum í viðtali inni í Ak-
ureyrarkirkju nýverið. „Mér er tilkynnt þetta
inni í kirkjunni og spurður hvort ég hefði orðið
fyrir vonbrigðum. Ég sagði nei, að þetta kæmi
ekki á óvart en þá var ég líka spurður hvort
mér fyndist sem tengsl Akureyrarkirkju við
Coventry hefðu rofnað. Ég svaraði að svo væri
ekki. Og við hefðum aldrei kynnst þeim nema
vegna þess að rúðan var talin frá Coventry.“
Ein mesta loftárás sögunnar
Glerið sem var tekið úr dómkirkjunni í
Coventry, fyrir lortárásina 15. nóvember árið
1940, einhverja mestu loftárás sögunnar, var
samkvæmt nýjustu rannsóknum allt mið-
aldgler. Yngra gler var skilið eftir. Glugginn
í Akureyrarkirkju er óumdeilt mun yngri en
miðaldagler. Doktorinn sem er BBC til fullting-
is í páskaþættinum útlokar því að „Coventry
glugginn“ í Akureyrarkirkju sé frá Coventry.
„Þetta þýðir að eftirleiðis tölum við um enska
gluggann en ekki Coventry gluggann. Ekkert
rennir endilega stoðum undir að hann sé stol-
inn. En það var allt á fleygigerð á stríðsárunum,
það getur vel verið að glerið hafi verið selt til
að fjármagna eitthvað,“ segir séra Svavar.
Gögn verða uppfærð
„Við munum nú uppfæra okkar gögn, erum
með bæklinga sem þarf að breyta og gögn um
fermingarfræðslu þar sem glugginn hefur verið
tekinn sem umræðudæmi um stríð og frið. Það
er alltaf gott að fá réttar upplýsingar og mér er
létt að því leytinu en ég hafði aldrei vonda sam-
visku út af þessum glugga, mér fannst alltaf
borðleggjandi að öll saga á bak við hvernig
hann komst hingað norður hefði verið í góðri
trú,“ segir Svavar.
Gríðarlegur fjöldi erlendra ferðamanna
kemur á hverju sumri í Akureyrarkirkju enda
kirkjan í hópi fjölsóttustu ferðamannastaða á
Akureyri. Fyrir hefur komið að breskir ferða-
langar á leið upp kirkjutröppurnar hafa spurt
blaðamenn Akureyrar vikublaðs hvort þeir séu
ekki á réttri leið að Coventry glugganum. Slíkt
mun leggjast af. Svavar segir að á vissan hátt
verði saga gluggans þó enn magnaðri í kjölfar
nýjustu upplýsinga. „Núna er svolítil dulúð
yfir því hvaðan glugginn kemur nákvæmlega.
Það er að hefjast nýr kafli.“
TEXTI Björn Þorláksson
MYNDIR Völundur Jónsson
SÉRA SVAVAR ALFREÐ: Núna er svolítil dulúð yfir því hvaðan glugginn kemur nákvæmlega. Það er að hefjast
nýr kafli.
ÞRÍR AF STEINDU gluggunum í Akureyrarkirkju. Glugginn í miðjunni er ekki úr dómkirkjunni í Coventry.
Glerið er yngra en miðaldaglerið sem bjargað var úr dómkirkjunni áður en hún var sprengd í tætlur. Ekkert
bendir til stuldar – þótt spurningum sé enn ósvarað um uppruna og ferðalag glersins.
Það er alltaf gott að
fá réttar upplýsingar
og mér er létt að því
leytinu en ég hafði
aldrei vonda samvisku
út af þessum glugga
Séra Svavar Alfreð Jónsson