Akureyri - 27.02.2014, Blaðsíða 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
UM DAGINN OG VEGINN
SILJA BJÖRK
SKRIFAR
Spurningin um aðild að Evrópusambandinu
er stærri og mikilvægari en svo að einstakir
stjórnmálaflokkar eða ríkisstjórnir eigi að
ráða svarinu.
Alþingi ber að sýna þjóðinni þá virðingu að
leggja framhald aðildarviðræðna Íslands og
Evrópusambandsins í dóm allra Íslendinga.
Þess vegna er hafin undirskriftasöfnun á
vefnum Þjóð.is þar sem skorað er á Alþingi
að leita þjóðarviljans.
Alþingismenn starfa í umboði okkar. Látum
þá vita hvað við viljum og skrifum undir.
www.þjóð.is
STÓRA
LEYNDAR-
MÁLIÐ
Nýlega horfði ég á fyrirlestur
á netinu sem bar yfirskriftina
„Þunglyndi, leyndarmálið sem
við deilum“ eftir rithöfundinn
Andrew Solomon. Í fyrirlestrinum
fjallar Solomon um eigin reynslu
af sjúkdómnum þunglyndi á afar
hreinskilinn og fallegan máta.
Ein setning sat þó fastar í mér
en aðrar, en hún segir einfaldlega
„þunglyndi er leyndarmál í hverri
fjölskyldu“.
Og er það ekki satt? Er ekki til
geðsjúkur einstaklingur í hverri
einustu fjölskyldu?
Nýlega var ég spurð að því
hvað mér fyndist um það að notk-
un geðlyfja á Íslandi hafi farið
snarhækkandi síðustu árin. Ég
svaraði því þannig að mér fyndist
það allskostar ekki slæmt, heldur
merki um það að fleiri væru farnir
að leita sér hjálpar – fleiri og fleiri
væru að koma út úr þunglyndis-
skápnum.
Jón Gnarr borgarstjóri skrifar
á Facebook-síðu sína um sjálfs-
vígstilraunir sínar og baráttu
við þunglyndi. Þar líkir hann
fordómunum sem geðsjúklingar
mæta við fordóma gagnvart
samkynhneigðum. Og það er á
margan hátt réttlætanlegt, því
þunglyndissjúklingar lifa oft
árum saman án þess að koma
út úr svörtum skápi geðsjúkdó-
manna. Enginn vill vera „klepp-
ari“. Enginn vill láta koma fram
við sig eins og sækópata og þess
vegna felum við okkur. En hvað er
að því að fæðast svolítið öðruvísi?
Hvað er það öðruvísi að fæðast
með sex tær á vinstri fæti og að
fæðast þunglyndur?
Leyndarmálið stóra, sem
enginn í fjölskyldunni þorir að
tala um, er leyndarmál í öllu
samfélaginu. En hvað gerist ef
við hættum að hvísla um geð-
sjúkdóma og förum að tala hátt
og skýrt?
Sæl, ég heiti Silja og ég er
þunglynd. Nú þú... a
Tryggir
öruggan bakstur
R O YAL