Fréttir - Eyjafréttir - 07.02.1989, Page 3
FRÉTTIR - þriðjudaginn 7. febrúar 1989
Sigurður Jónsson:
F ur ðuskrif
forseta
bæjarstjórnar
Ragnar Óskarsson, for-
seti bæjarstjórnar, hefur á
síðustu vikum skrifað fjöl-
margar greinar í blöðin.
Sami rauði þráðurinn geng-
ur í gegnum allar þessar
greinar. Sjálfstæðismenn
sýna ekki samstöðu. Sjálf-
stæðismenn eru ómálefna-
legir og stunda persónulegt
skítkast í málflutningi
sínum. Ragnar segir svo
með föðurlegum tón að allt
þetta sé mjög skaðlegt fyrir
bæjarfélagið. Ragnar virðist
trúa því að hamri hann nógu
oft á slíkum fullyrðingum
þá muni aðrir Eyjamenn
einnig trúa honum. Ég held
að sem betur fer vanmeti
Ragnar þarna Vestmanna-
eyinga. Lítum aðeins nánar
á gaspur Ragnars.
Hvað er samstaða?
Ragnar Óskarsson telur
það samstöðu í bæjarstjórn
ef allir fylgja honum að mál-
um og greiða atkvæði eins
og hann gerir. Ragnar er
nefnilega haldinn þeim ein-
kennilega sjúkdómi, að
hann einn hafi vald til að
ákveða hvað sé rétt og hvað
sé rangt. Honum virðist
fyrirmunað að skilja að tvær
hliðar geti verið á málum.
Það þarf á engan hátt að
vera neitt óeðlilegt við það
þótt menn hafi ekki sömu
skoðun á öllum málum inn-
an bæjarstjórnar. Slíkt getur
einmitt verið af hinu góða
og skaðar á engan hátt hags-
muni bæjarfélagsins nema
síður sé.
Lítum aðeins á gaspur
Ragnars um að Sjálfstæðis-
menn viðhafi ómálefnalega
umræðu og stundi persónu-
legt skítkast.
Svikin loforð
Er það málefnalegt eða
persónulegt skítkast að
rninna á:
• að vinstri menn hafa svik-
ið öll þau loforð sem þeir
gáfu um framkvæmdahraða
á uppbyggingu skólamann-
virkja.
• að þeir hafa á engan hátt
staðið við þau yfirboð sem
þeir viðhöfðu varðandi
gatnagerð og framkvæmdir
við gangstéttar.
• að vinstri menn hafa ekki
staðið við það að setja fjár-
magn úr bæjarsjóði til að
byggja starfsmannaíbúðir
við Sjúkrahúsið.
• að lítið hefur orðið úr
öllum stóru orðunum um að
byggja stórt og fullkomið
barnaheimili á kjörtímabil-
inu.
Á síðasta kjörtím-
abili var mikið veður
gert og stór skrif við-
höfð vegna ráðningar
í ræstingarstarf á veg-
um bæjarins. Ástæð-
an, dóttir efsta manns
á lista Sjálfstæðis-
flokksins var ráðin.
Skyldu engir nálengd-
ir vinstri meirihluta-
mönnum hafa verið
ráðnir í störf á vegum
bæjarins á þessu kjör-
tímabili?
Sjálfstæðismenn
hafa ekki stundað það
að velta slíkum málum
upp......
• að vinstri menn vöruðu
við að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn því þá myndu
dráttarvextir á orkureikn-
inga sjá dagsins ljós.
Vinstri menn tóku síðan
sjálfir ákvörðun um að taka
þá upp. Er eitthvað ómál-
efnalegt eða persónulegt
skítkast þótt minnt sé á
þessu sviknu loforð vinstri
manna.
Slæm staða
Ragnar ræðir mikið um
það sem hann kallar slæma
fjármálastjórn Sjálfstæðis-
manna.
Á síðasta kjörtímabili var
gagnrýnt að ekki væri gengið
frá skammtímalánum, sem
reyndar voru að uppistöðu
frá fyrri kjörtímabilum.
Enn hefur ekki verið
gengið frá þessum skamm-
tímalánum í bankanum og
nema þau nú 103 milljónum
og fara sífellt hækkandi við
hverja gengisbreytingu.
Á síðasta kjörtímabili var
staða hlaupareiknings
bæjarsjóðs reglulega birt í
blöðum og síðan ályktað um
slæma fjármálastjórn væri
að ræða hjá Sjálfstæðis-
mönnum.
Undir vinstri stjórn 1988
versnaði staðan á hlaupa-
reikningi um 25 milljónir
króna.
Nú emjar Ragnar og segir
að þetta sé allt ómark, það
vanti skýringar á þessu.
Á síðasta kjörtímabili
gáfu vinstri menn engar
skýringar. Þá var ekki greint
frá sífelldu gengissigi og
gengisfellingum sem hækk-
uðu lánin. Þá var ekki greint
frá því að staðan væri erfið,
I
1 Sigurður Jónsson.
vegna þess að verðbólgan
komst allt uppí 130%. Þá
taldi Ragnar og aðrir vinstri
menn að óþarfi væri á
skýringum. Þá voru bara
birtar tölur um hvað lánin
hækkuðu. En nú emjar
Ragnar og ber sig aumlega.
Tvískinnungur
Ragnars
R.Ó. forseti bæjarstjórn-
ar, ræðir um það í einni af
greinum sínum að á síðasta
kjörtímabili hafi bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisfl. gerst
starfsmenn bæjarins og
gegnt toppstöðum. Að áliti
Ragnars er slíkt ámælisvert.
Gott og vel. Menn mega
að sjálfsögðu hafa þá skoð-
un að óeðlilegt sé að bæjar-
fulltrúar gegni stöðum hjá
bænum. En eiga menn þá
ekki að vera samkvæmir
sjálfum sér. Ragnar líttu þér
nær. Aðalmaður vinstri
meirihlutans, Guðmundur
Þ.B. Ólafsson, er bæjarfull-
trúi og jafnframt formaður
bæjarráðs. Ennfremurgegn-
ir hann framkvæmdastjóra-
stöðu fyrir málaflokkinn
tómstunda og æskulýðsmál.
Einnig er hann íþróttafull-
trúi og yfirmaður vinnuskóla
og skólagarða.
Vart telst þetta með
ómerkilegri störfum á veg-
um bæjarins. Ragnar, for-
seti bæjarstjórnar, telur
þetta ekkert óeðlilegt þegar
um bæjarfulltrúa er að ræða
sem situr í sama meirihluta
og hann. Þetta er tvískinn-
ungur í málflutningi.
Um árabil gegndi Ragnar
sjálfur hálfri stöðu hjá Vest-
mannaeyjabæ með sinni
fullu stöðu hjá ríkinu, þrátt
fyrir afskipti sín af bæjar-
stjórnarmálum.
Á síðasta kjörtímabili var
mikið veður gert og stór
skrif viðhöfð vegna ráðning-
ar í ræstingarstarf á vegum
bæjarins. Ástæðan, dóttir
efsta manns á lista Sjálf-
stæðisflokksins var ráðin.
Skyldu engir nátengdir
vinstri meirihlutamönnum
hafa verið ráðnir í störf á
vegum bæjarins á þessu
kjörtímabili?
Sjálfstæðismenn hafa ekki
stundað það að velta slíkum
málum upp og gera að póli-
tísku umróti, eins og gert
var á síðasta kjörtímabili.
Ragnar, vinstri menn ættu
að líta sér nær, þegar þeir
gagnrýna aðra.
Sigurður Jónsson
Höfundur er bœjarfulltrúi
fyrir Sjálfstœðisflokkinn.
Lágt umferðarmerki
Stansmerkið á mótum Græðisbrautar og Flata mætti vera
aðeins hærra, því eins og sést á myndinni geta menn rekið
sig í það, ef menn gæta ekld að sér.
Brauð handa hungruðum heimi:
20 milljónir borist
í söfnun Hjálparstofnun
kirkjunnar „Brauð handa
hungruðum heimi“ hafa borist
tæplega 20 milljónir króna.
Hluta fjársins hefur þegar verið
ráðstafað til: matvælaflutninga
í suður Súdan, jarðskjálfta-
svæðanna i Armeníu og til flóð-
asvæðanna í Bangladesh.
1) Júda er stærsta borg suður
Súdans og þar búa um 100
þúsund manns auk 150 þúsund
flóttamanna, sem flúið hafa
heimili sín vegna borgara
stríðsins. Þetta fólk býr algjör-
lega einangrað og ríkir þar
hungursneyð. Mikill skortur er
á matvælum og öðrum hjálp-
argögnum. Vegir til borgarinn-
ar eru lokaðir og þess vegna er
flugleiðin eina leiðin til að
koma hjálpargögnum til þessa
fólks. Kirkjulegar hjálparstofn-
anir standa sameiginlega að
„Ioftbrú“ milli Nairobi í Kenýa
og Juba. Daglega eru flutt 50
tonn af matvælum og eru það
einu matvælin sem fáanleg eru
í borginni. Hjálparstofnun
kirkjunnar mun halda áfram að
taka þátt í þessu hjálparstarfi.
2) 5 tonn af niðursoðnum mat-
vælum og 3400 íslensk ullar-
teppi að verðmæti nærri 4 mill-
jónir króna voru send fyrir
jólin til jarðskjálftasvæða Arm-
eníu. Matvælin og ullarteppin
voru gefin af fyrirtækjum hér á
íslandi. sem hafa viðskipti við
Sovétríkin. Flugleiðir og skipa-
deild Sambandsins fluttu hjálp-
argögnin endurgjaldslaust.
3) í samvinnu við Alkirkjuráð
tekur Hjálparstofnun kirkjunn-
ar þátt í uppbyggingarstarfi í
Bangladesh eftir flóðin þar sl.
haust. Eitt af helstu verkefnum
er að hreinsa vatnsbrunna og
grafa fyrir nýjum.
Á næstu mánuðum mun
Hjálparstofnun kirkjunnar
byggja skóla fyrir 400 börn í
Andra Pradesh héraðinu á
Indlandi og einnig heimili fyrir
vangefin börn í Tamil Nadu
héraði á Indlandi. Áætlað er að
þessum byggingum verði lokið
á þessu ári.
/ Fréttatilkynningj
Eldri
bæjarbúar
Fjögur sæti eru laus vegna forfalla í 9
daga ferð að Ási í Hveragerði dagana
10.-19. febrúar n.k. Dvölin þar er ykkur að
kostnaðarlausu.
Nánariupplýsingarí S 11485 (Kristjana).