Austurland - 06.09.2012, Blaðsíða 2

Austurland - 06.09.2012, Blaðsíða 2
2 6. SEPTEMBER 2012 Atvinnulífssýning á Egilsstöðum Talið er að um 3000 manns hafi sótt atvinnulífssýninguna „Okkar samfélag“ sem haldin var í Egilsstaðaskóla 18.-19. ágúst síðastliðinn. Alls tóku 80 fyrirtæki, einstaklingar og félagasamtök þátt í sýningunni. Markmið sýningarinnar var að gefa fyrirtækjum og einstaklingum tækifæri til að kynna þær vörur og þjónustu sem þau hafa upp á að bjóða, skapa tækifæri fyrir þátttakendur til að vinna saman og síðast en ekki síst að varpa ljósi á þá fjölbreytni sem einkennir atvinnulíf á svæðinu. Sveitarfélagið Fljótsdalshérað stóð að sýningunni. Að mati aðstandenda tókst sýningin afskaplega vel ekki síst vegna metnaðar sýnenda og þeirrar jákvæðni, velvilja og gleði sem þar ríkti. -SGK Doktorsnemi að störfum í Breiðdalssetri Birgir V. Óskarsson, doktorsnemi í jarðfræði, dvaldi í Breiðdalssetri og vann að rannsóknum í tengslum við doktorsverkefnið sitt: Tegund og uppbygging íslenskra hraunsyrpna frá síðtertíer (fyrir um 15 milljónum árum síðan): gostíðni, flæðiferli og umhverfisaðstæður. Markmið verkefnisins er að leggja ítarlegt og magnbundið mat á gerð og byggingu fjögurra hraunsyrpna sem mynduðust í flæðigosum á síðtertíer með aðferðum og tækni eðlisrænnar eldfjallafræði. Hraunsyrpurnar voru valdar til að endurspegla þrjár megingerðir íslenskra basalhrauna. Hólmasyrpan og Grjótásyrpan innihalda ólivín basalt og Grænavatnssyrpan samanstendur af dílabasalti. Hvert hraun er rannsakað með tilliti til útbreiðslu þess, ytri og innri byggingar sem og tengingar við önnur hraun. Jarðlagaskipan hverrar hraunsyrpu hefur verið kortlögð auk innri byggingar valinna hrauna. Einnig hafa sýni verið tekin kerfisbundið. Athuganir af þessu tagi geta gefið raunhæfa mynd af stærðargráðu gosanna, flæðiferli hraunanna og þeim umhverfisaðstæðum sem ríktu er þau mynduðust. Þær eru því mikilvægir þættir í myndunarsögu svæðanna. Breiðdalssetrið hefur veitt Birgi aðgang að kortum og frumgögnum breska jarðfræðingsins G.P.L. Walker sem starfaði við kortagerð á Austfjörðum í kringum 1960. -BVÓ Nýr formaður Tengslanets austfirskra kvenna (TAK) Hrönn Jakobsdóttir verður formaður stjórnar TAK næsta árið. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar mánudaginn 20. Ágúst sl. Aðrar stjórnarkonur eru Anna Björk Hjaltadóttir, Þorbjörg Gunnarsdóttir, Unnur Óskarsdóttir og Stefanía Kristinsdóttir. Á sama fundi var lagður grunnur að haustdagskrá TAK en fyrsti viðburðurinn var kvennaferð í Skálanes 31. ágúst til 1. september. Aðrir viðburðir eru m.a. félagsfundur, jóga á Hallormsstað í október, fyrirtækjaheimsókn á Reyðarfirði í nóvember, og menningarferð til Akureyrar í desember. Auk þess verður haldið áfram með verkefnið „konur í stjórnir“ og námskeið í framkomu og tjáningu haldið. Þar að auki verður skipulögð ein heilsubótaganga í hverjum mánuði undir yfirskriftinni „úr sófanum og á toppinn“ en markmiðið er fara á Snæfell í síðustu göngunni næsta sumar. Hrönn hvetur konur á Austurlandi til að skrá sig í TAK-ið og taka þátt í að móta félagið, verkefni þess og viðburði. Nánari upplýsingar um TAK má finna á heimasíðu félagsins www. tengslanet.is. -SGK Það er gaman að fá tækifæri til að byggja upp eins öflugan miðil og vikublaðið Austurland. Skilyrði þess að vel takist til er að lesendur og íbúar svæðisins taki virkan þátt í þróun blaðsins með því að koma skoðunum sínum og fréttum á framfæri. Ætlunin er leggja áherslu sérstöðu svæðisins, viðburði, pólitík og umræðuna hverju sinni en ritstjóri heitir því hér með að taka á hverju máli af sanngirni og hlutleysi. Nú kann einhver að gera athugsemdir við það að vikublaði, sem ber heitið Austurland, sé dreift frá Hornafirði til Vopnafjarðar. Hornfirðingar heyra eftir breytingar á kjördæmaskipan frá 1999 undir Suðurland þannig að pólitískt séð nær blaðið til tveggja landshluta þótt margir Hornfirðingar vilji gjarnan áfram kenna sig við Austurland. Sjálfri hefði mér fundist rökrétt að Austurland, sem landshluti og kjördæmi, lægi frá Húsavík að Hornafirði. Íbúarnir og svæðin eiga fjölmargt sameiginlegt svo sem fjarlægð frá höfuðstaðnum, umræðu um neikvæða byggðaþróun og erfiðar samgöngur, kynjahalla, stóriðju og síðast en ekki frumatvinnugreinarnar sjávarútveg og landbúnað. Í fyrsta tölublaði er við hæfi að varpa ljósi á fjölbreytni svæðisins og þær vonir og væntingar sem forsvarsmenn þess bera í brjósti samanber spurningar til oddvita. Í blaðinu er farið yfir stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu og áhyggjur aðila innan hennar af hækkandi skattbyrði. Jafnframt er þar að finna viðtal við Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra sem gerði víðreisn um Austur- og Suðurland í vikunni sem leið auk greinar eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Stefnt er að því að í blaðinu verði fastir pistlar um Austfirskar og Hornfirskar krásir sem og hönnuði, listamenn og handverksfólk á svæðinu. Einnig verður pláss fyrir aðsendar greinar en miðað er við að greinar séu að hámarki 250 orð. Að vikublaðinu Austurlandi starfar gott teymi, útgefandi er Fótspor með Ámunda Ámundason í fararbroddi en hann sér einnig um auglýsingasölu fyrir blaðið. Umbrotsmaður er Unnar Erlingsson og prófarkalesari Halldóra Tómasdóttir. Stefanía G. Kristinsdóttir, ritstjóri Öflugur miðill á Austurland Leiðari AUSTURLAND 1. TBL. 1. ÁRGANGUR 2012 ÚTGEFANDI: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Stefanía G. Kristinsdóttir, sími 891 6677, netfang: stefania@einurd.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 4.400 eintök. Dreifing: Íslandspóstur. FRÍBLAÐINU ER DREIFT Í 4.400 EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILI Á AUSTURLANDI OG HORNAFIRÐI AUK DREIFBÝLIS. BLAÐIÐ LIGGUR EINNIG FRAMMI Á HELSTU ÞÉTTBÝLISSTÖÐUM Á AUSTURLANDI. Stjórn TAK, frá vinstri; Þorbjörg Gunnarsdóttir, gjaldkeri, Anna Björk Hjaltadóttir, vefstjóri, Hrönn Jakobsdóttir, formaður og Unnur Sveinsdóttir meðstjórnandi.Birgir V. Óskarsson doktorsnemi í jarðfræði við rannsóknir á Austurlandi. Hjónin Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir í Vallanesi voru meðal þeirra sem tóku þátt í sýningunni.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.