Austurland - 06.09.2012, Qupperneq 12
6. SEPTEMBER 2012
Ritstjóri sendi línu á öll sveitarfélög um að senda upplýsingar um viðburði
í september. Einungis bárust svör
frá tveimur en hugmyndin er að
halda áfram með dálkinn og eru öll
sveitarfélög, fyrirtæki hvött til að
senda inn upplýsingar.
Tónlistamiðstöðvar Austurlands
í Eskifjarðarkirkju
(sjá www.tonleikahus.is):
Dægurlagadraumar
laugardaginn 8 september kl. 16.
Víkingur Heiðar
22. September kl. 15.
Tónleikar
Hljómsveitarnámskeiðsins
27. september kl. 20.
Gospelnámskeið Óskars
Einarssonar 28.-30. september.
Melarétt í Fljótsdal 22. september.
“Make it happen” alþjóðleg ráðstefna
25.-28. september.
HVAÐ ER Á DÖFINNI Í SEPTEMBER?
Skapandi samfélag á Austurlandi
áhugaverð ráðstefna 25.-28. september
Austurbrú stendur fyrir ráðstefnunni Make it happen – sem er haldin í tilefni af 10 ára
afmæli Menningarráðs og til að fagna 10
ára menningarsamstarfi við Vesterålen
í Noregi. Ráðstefnan er einnig
lokaviðburður Evrópuverkefnisins
Creative Communities sem er unnið
með samstarfsaðilum í Svíþjóð og
Danmörku.
CC verkefnið er styrkt af
Menntaáætlun Evrópusambandsins.
Ráðstefnan fer fram dagana 25.- 28.
september nk.
Ráðstefnan verður haldin á
Egilsstöðum, Seyðisfirði og Stöðvarfirði.
Umræða og upplifun á hverjum
stað verður tengd grasrótarstarfi og
menningu svæðisins. Ráðstefnan hefst
á þriðjudagskvöldi með formlegri
opnun í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Á miðvikudeginum er málþing á Hótel
Héraði um mikilvægi þess að styðja
við menningarstarf á jaðarsvæðum
auk þess sem niðurstöður verkefnisins
Creative Communities verða kynntar
í Sláturhúsinu. Eftir hádegið verður
farið til Seyðisfjarðar í móttöku að
Skálum, hljóðlistamiðstöð, en þaðan
verður farið í leiðangur og ýmis lista-,
menningar- og hönnunarverkefni
skoðuð. Erindi verða flutt í
Herðubreið og endað með kvöldverði.
Á fimmtudeginum fer ráðstefnan
til Stöðvarfjarðar þar sem erindi
verða flutt í Sköpunarmiðstöðinni
HERE með áherslu á að vinna
staðbundið í alþjóðlegum tengslum.
Pallborðsumræður verða í lok erinda.
Ráðstefnunni lýkur föstudaginn
28. september með vinnustofu sem
haldin verður í húsnæði Austurbrúar
á Egilsstöðum Vonarlandi. Þar
verður áhersla lögð á Destination
Design eða hönnun áfangastaða.
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem
vilja vinna að eflingu lítilla samfélaga,
vilja þróa atvinnumöguleika með
vinnslu úr staðbundnu hráefni, efla
menningarstarf og auka alþjóðlega
hugsun og yfirfærslu verkefna.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða:
Alexander von Vegesack (Þýskalandi),
stofnandi Vitra Design Museum, Max
Lamb (Bretland) hönnuður, Merilyn
Keskula (Eistlandi), stofnandi ÖÖ: Was
it a dream?, Daniel Bystöm (Svíþjóð) frá
Design Nation, Dóri Gíslason (Íslandi),
prófessor hjá KHIO í Oslo, Karin T.
Larsen og Lene Römer (Danmörku) frá
CRT Bornholm, Erik Bugge (Noregi)
menningarfulltrúi og Katla Steinsson
(Íslandi) frá Húsi Handanna
Nánari upplýsingar um MAKE by
Þorpið og skráning á ráðstefnuna er
að finna vefnum: www.make.is
Fylgist með á facebook:
www.facebook.com/makeiceland/.
Kraftaverk austfirskra kvenna!
Sumarsýningu Minjasafns Austurlands 2012 lauk 1. september sl. en hún vakti
mikla ánægju meðal gesta. Sýningin
var haldin til heiðurs hinum duglegu
og listrænu austfirskum konum og
handverki þeirra. Kunnátta og færni
kvenna við hannyrðir var nauðsynlegur
hluti af daglegu lífi allra hér áður fyrr.
Ávallt þurfti til dæmis að gæta þess að
skinnskór og sokkaplögg væru í góðu
ástandi. Margar konur sáu sjálfar um
að kemba, spinna og lita ullina sem
nýttist síðan í ýmsar flíkur eða útsaum.
Útsjónarsemi var mikil og sumt garn og
efni var endurnýtt oftar en einu sinni.
Ekki má gleyma við hvaða aðstæður
þessar konur unnu verkin sín t.d. oft
við litla birtu, lélega vinnuaðstöðu,
líkamlegar fatlanir og sjónleysi. Því
má segja að flest þessara verka hafi
sannarlega verið kraftaverk!
Í tengslum við sýninguna tóku 12
manns, hannyrðafólk á svæðinu, þátt
í upptökum á kynningarmyndbandi
þar sem sýnd eru ýmis vinnubrögð í
handavinnu í dag. Vakti sú kynning
mikla athygli og vegna margra
fyrirspurna hefur verið ákveðið í
samráði við HS Tókatækni að gefa
hana út á dvd diskum sem verða seldir
í safnbúð Minjasafnsins.
Tökum upp
nýjar
vörur í hver
ri viku
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.
12
Sokkapplögg á sýningu Mynjasafnsins