Austurland - 13.11.2014, Síða 14
13. Nóvember 201414
Allar stúlkur í tíunda bekk
á Austurlandi fá Tækifærin
- Átta milljónum króna varið til stuðnings samfélagsverkefnum á Austurlandi
Í árlegri haustúthlutun Styrktar-sjóðs Alcoa Fjarðaáls sem fram fór í vikunni hlutu alls 26 sam-
félagsverkefni víða á Austurlandi
stuðning. Hæsta einstaka styrkinn
að þessu sinni, eina milljón króna,
hlaut Verkmenntaskóli Austurlands,
til að taka í notkun stafræna Fab-
Lab smiðju fyrir nemendur. Auk
þess ákvað framkvæmdastjórn Alcoa
Fjarðaáls að veita að þessu sinni sérs-
taka gjöf til allra stúlkna í tíunda bekk
í grunnskólunum á Austurlandi með
því að færa þeim bókina Tækifærin
sem fjallar um fimmtíu konur sem
fást við spennandi störf um allan heim
og eiga það sameiginlegt að hafa lokið
námi á sviði tækni- og raunvísinda.
Að mati Alcoa geyma Tækifærin
eftir mæðgurnar Ólöfu Rún Skúla-
dóttur og Hjördísi Hugrúnu Sigurðar-
dóttur skemmtilegar frásagnir og
spennandi reynslusögur sem eru gott
leiðarljós fyrir ungar stúlkur sem eiga
það fyrir höndum að ákveða hvert
þær vilja stefna í lífinu með tilliti til
menntunar og starfsvettvangs. Með
bókargjöfinni vill fyrirtækið leggja sitt
af mörkum til að auka hlutfall kvenna
á vinnustöðum sem gjarnan eru skip-
aðir körlum að miklum meirihluta.
Frá upphafi starfseminnar hefur
Fjarðaál haft það einarða markmið
að jafna sem mest hlutfall karla og
kvenna í starfsliði sínu og hefur ým-
islegt áunnist í þeim efnum. Konur
eru nú um 22% starfsmanna, en það
er hærra hlutfall en tíðkast almennt í
álverum, og það hæsta innan Alcoa.
Mikilvægt að jafna
hlutföllin
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir að gera
þurfi betur því mjög mikilvægt sé
að jafna sem mest hlutfall karla og
kvenna á vinnustöðum, ekki bara
í áliðnaðinum, heldur alls staðar.
„Vinnustaðir þar sem þessi hlutföll
eru hvað jöfnust eru bæði skemmti-
legri vinnustaðir og þar ríkir al-
mennt betri vinnuandi. Rannsóknir
sýna einnig að árangur og hagnaður
þessara fyrirtækja er meiri en hinna
einsleitu hvað þetta varðar og því ættu
öll fyrirtæki að leggja mikla áherslu
á jöfn kynjahlutföll,“ segir Dagmar.
Hún segir að bókagjöfin sé liður í
því markmiði fyrirtækisins að vekja
aukinn áhuga stúlkna á raungreinum
og þeim störfum sem karlar gegna
gjarnan en henta ekkert síður konum.
Það eigi m.a. við um þau margvíslegu
og fjölbreyttu störf sem unnin séu hjá
Fjarðaáli.
Stafræn Fab-Lab smiðja
Verkmenntaskóli Austurland er um
þessar mundir að taka í notkun staf-
ræna Fab-Lab smiðju, sem hefur það
hlutverk að gefa nemendum skólans
tækifæri til að þjálfa sköpunargáf-
una og hrinda hugmyndum sínum í
framkvæmd með því að hanna, móta
og framleiða hluti með aðstoð staf-
rænnar tækni. Framlagið úr Styrkt-
arsjóði Alcoa Fjarðaáls rennur til
frekari uppbyggingar smiðjunnar
sem vígð var síðastliðinn laugardag
á Vísindadeginum. Elvar Jónsson
skólameistari tók á móti styrknum
fyrir hönd Verkmenntaskólans.
Fréttatilkynning frá
Alcoa Fjarðaáli
6. nóvember 2014
MIKIÐ ÚRVAL DEKKJA Á BETRA VERÐI - DEKKJAHOLLIN.IS
iG50 V902AiG35
PF-3D PF-5
Vetrardekkin færðu á
dekkjahollin.is
1. Leitar eftir stærð
2. Setur dekkin í körfu
3. Velur flutningsmáta
4. Gengur frá greiðslu
Styrkir úr Styrktarsjóði fjarðaáls – haustið 2014.
Umsækjandi Verkefni
Æskulýðsfélagið Kýros á Vopnafirði Vinaviku í október sl.
Minjasafn Austurlands Kaup á hljóðbúnaði fyrir safnið
Foreldrafélag Grunnskólans á Eskifirði Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur í 7. - 10. bekk
Flugklúbbur Egilsstaða Skrifa flugsögu Austurlands
Kajakklúbburinn KAJ á Austurlandi Kaup á árum og björgunarvestum fyrir börn
Skógræktarfélag Breiðdæla Girða af skógræktarsvæðið í Breiðdal
Breiðdalssetur Auka samstarf setursins við skóla á Austurlandi
Félagsmiðstöðin Nýung á Fljótsdalshéraði Bæta hljóðkerfi fyrir félagsmiðstöðina
Ungmennafélagið Neisti, Djúpavogi Tækjakaup fyrir félagsmiðstöðina Zion
Íbúasamtök Eskifjarðar Kaup á setbekkjum
Leikfélagið Djúpið í Verkmsk. Austurl. Leiklistarnámskeið
Íþrótta- og tómstundarfulltrúi Fjarðabyggðar Unglingahátíðin Kuldaboli. Þema: heilbrigði og hreyfing
Jaðarsportfélagið 7-40 í Neskaupstað Aðstaða fyrir hóp hjólabrettaiðkenda
Tengslanet Austfirskra kvenna, TAK Námskeiðahald sem byggir á bókinni Stígum fram eða
Lean in eftir Sheryl Sandberg
Leikfélag Fljótsdalshéraðs Uppseting á leikritinu Þið munið hann Jörund
Snotra ehf Setja upp leikritið Sögur úr þorpinu á Egilsstöðum
Kammerkór Egilsstaðakirkju Setja upp jólaóratoríu Back
Skaftfell - myndlistarmiðstöð Austurlands Kaup á búnaði til myndlistasýninga
Hljómsveitin Dúkkulísur Gerð heimildarmyndar um Dúkkulísurnar
Eistnaflug Heimildarmynd um rokkhátíðina Eistnaflug
Hollvinasamtök utanspítalaþjónustu í Fjarðabyggð Kaup á hnoðtækinu Lucasi í sjúkrabíla Fjarðabyggðar
Rauði Krossinn, Héraði og Borgarfirði Jólasjóðurinn 2014
Rauði Krossinn í Fjarðabyggð og Breiðdalsvík Jólasjóðurinn 2014
Skólaskrifstofa Austurlands Innleiðing lestrarkennsluaðferðarinnar Byrjendalæsi á
Austurlandi
Mariatafræðslan Eineltisfræðslan á ferð um Austurlandi með námskeiðið:
Þolandi og gerandi frá sjónarhorni beggja
Verkmenntaskóli Austurlands Koma á fót Fab-Lab smiðju á Austurlandi
Fyrir hönd stúlkna í 10. bekk austfirskra grunnskóla mættu þessar stúlkur frá
Nesskóla í Neskaupstað til að taka við bókargjöfinni. með þeim á myndinni
eru magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, og Dagmar Ýr Stef-
ánsdóttur upplýsingafulltrúi fyrirtækisins.
við úthlutun úr Styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls komu saman flestir þeirra sem
hlutu framlag úr sjóðnum að þessu sinni ásamt magnúsi Þór Ásmundssyni,
forstjóra Alcoa Fjarðaáls, og Dagmar Ýri Stefánsdóttur upplýsingafulltrúa
fyrirtækisins.
Fréttatilkynning:
Áframhaldandi fisk-
vinnsla á Djúpavogi
Vísir hf. leggur nýjum búlandstindi til húsnæði án endurgjalds
Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf.
hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ós-
nesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500
þúsund krónur. Vísir mun afhenda
Búlandstindi fasteignir sínar á Djúpa-
vogi, sem metnar eru á 50 milljónir
króna, án endurgjalds, verði stöðug
vinnsla í húsunum næstu fimm ár.
Engin starfsemi hefur verið undir
nafni Búlandstinds síðustu ár en Ósnes
og Fiskeldi Austfjarða hf. hafa skuld-
bundið sig til þess að auka hlutafé Bú-
landstinds um samtals 140 milljónir
króna og hefja þar fiskvinnslu, auk
vinnslu og pökkunar á eldisfiski.
Ósnes kaupir tæki og búnað Vísis
á staðnum og leggur inn sem hlutafé
í Búlandstind og hlutafé Fiskeldis
Austfjarða verður í formi tækjabún-
aðar til vinnslu og pökkunar á eld-
isfiski.
Með þessum samningum og af-
hendingu fasteigna sinna án greiðslu
að uppfylltu skilyrði um vinnslu næstu
ár, vill Vísir gera sitt til að tryggja
áframhaldandi fiskvinnslu á Djúpa-
vogi eftir að fyrirtækið flytur starf-
semi sína þaðan til Grindavíkur um
næstu áramót. Gert er ráð fyrir um
30 störfum hjá Búlandstindi við al-
menna fiskvinnslu og slátrun, vinnslu
og pökkun á eldsifiski.