Fréttablaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 32
10. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24 BAKÞANKAR Erlu Bjargar Gunnarsdóttur Oscar Bjarnason, grafískur hönnuður, byrjaði alveg óvart að teikna lógó fyrir vini og vanda- menn á merkisdögum fyrir fimm árum. „Þetta byrjaði þannig að félagi minn átti afmæli og ég teiknaði lógó fyrir hann í tilefni dagsins. Eftir það bættust alltaf fleiri og fleiri við og nú er þetta eiginlega komið út í vitleysu,“ segir Oscar og hlær. Hann setur upp sýninguna Merkisdagar í Nýlistasafninu á miðvikudag. Þar verða til sýnis 312 lógóteikningar eftir Oscar. „Ég teikn- aði aðallega fyrir fólk sem ég þekkti og reyndi að tengja lógóið við mann- eskjuna eða atburðinn. Ég teikna samt bara það fyrsta sem mér dettur í hug og tek helst ekki meira en tíu til fimm- tán mínútur í að teikna hvert merki,“ segir hann. Lógóin vöktu mikla lukku og var hann einnig beðinn um að teikna fyrir fólk sem hann þekkti ekki. Oscar segir þetta fínustu heilaleikfimi að þurfa að hugsa svona hratt. „Þetta á að vera spontant. Stundum koma bara vondar hugmyndir sem ég teikna samt, svo kannski hálf- tíma síðar fæ ég miklu betri hugmynd en þá teikna ég hana bara að ári,“ segir Oscar. Lógóin gaf hann í afmælis- gjafir, en með tímanum fór hann að teikna aðra merkis- daga. „Ef eitthvað var í gangi eins og bjórdagur, bóndadagur eða afmæli forsetans teiknaði ég lógó fyrir þann dag,“ segir hann. Sýningin verður opnuð í Nýlistasafninu miðvikudaginn 11. mars klukkan 19.30. adda@frettabladid.is Teiknaði lógó fyrir 312 merkisdaga vina og fj ölskyldu Oscar Bjarnason byrjaði fyrir tilviljun að teikna merki eða lógó fyrir fj ölskyldu og vini fyrir fi mm árum. Nú, 312 merkjum síðar, opnar hann sýningu í Nýlistasafninu þar sem sjá má afrakstur síðustu ára. SPONTANT Oscar átti ekki von á því að lógóin yrðu svona vinsæl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Save the Children á Íslandi FORSETINN Lógó sem Oscar gerði í tilefni af afmælisdegi forseta Íslands. ÓLÉTT Þetta lógó teiknaði Oscar þegar hann og konan hans áttu von á barni. BÓNDADAGUR Þetta var teiknað í tilefni bónda- dagsins. Eftir það bættust alltaf fleiri og fleiri við og nú er þetta eigin- lega komið út í vitleysu Breski söngvarinn Sam Smith ætlar að sniðganga Rússland algjörlega í næstu tónleikaferð sinni. Ástæðan er staða samkyn- og tvíkyn- hneigðra og transfólks í landinu. Smith, sem er samkyn- hneigður, sagði í við- tali við The Sun að þótt hann ætti aðdáendur í Rússlandi gæti hann ekki hugsað sér að fara þangað. „Maður hefði haldið að ástandið væri betra til dæmis í Bandaríkjunum, en það er ekki gott þar, bæði hvað varðar réttindi samkynhneigðra og líka rasisma. Þannig að ég get rétt ímyndað mér hvernig þetta er í öðrum löndum eins og Rússlandi,“ segir Smith. Ætlar ekki til Rússlands NEI TAKK Smith ætlar ekki að halda tónleika í Rússlandi. THE GRUMP KL. 5.30 - 8 - 10.40 CHAPPIE KL. 10.20 ANNIE KL. 5.30 VEIÐIMENNIRNIR KL. 5.30 BIRDMAN KL. 8 - 10.30 ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 - ÍSL TEXTI THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 - 8 CHAPPIE KL. 8 - 10.40 CHAPPIE LÚXUS KL. 5 - 8 -10.40 ANNIE KL. 5 HRÚTURINN HREINN KL. 3.30 FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20 KINGSMAN KL. 8 - 10.45 PADDINGTON KL. 5.45 - ÍSL TAL ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK Nicole Kidman Colin Firth Mark Strong FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA THE DUFF 5:50 CHAPPIE 8, 10:10 STILL ALICE 5:50, 8 VEIÐIMENNIRNIR 10:30 HRÚTURINN HREINN 5:50 10:10 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞEGAR við unglingsdóttir mín kúrðum saman yfir Ísland got talent fór hún að velta fyrir sér af hverju svo margir frá Græn- landi og Færeyjum kæmu til Íslands til að taka þátt í keppninni. Ég svaraði henni annars hugar að svona keppnir væru ekki haldnar í þessum löndum og þar sem Ísland væri eins konar stóri bróðir þeirra kæmi fólkið hingað. Þá sneri hún upp á sig, horfði á mig alvarlegum augum, reið og hneyksluð, og spurði: „Af hverju stóri bróðir? Af hverju ekki stóra systir?“ Jú, eða það, svaraði ég um hæl. Hún hummaði af dásamlegri réttlætis- kennd. Svona eins og sigurvegarar gera. Dóttir mín er komin með hælana þar sem ég hef tærn- ar. Tilhugsunin um að hún og hennar kynslóð taki við arfi frá minni kynslóð og komist lengra í átt að kynjajafnrétti, mögu- lega á leiðarenda, er ansi góð. ÞETTA var á sunnudaginn. Á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Á sama degi kom fram að konur og karlar fái ekki sömu laun fyrir sömu vinnu samkvæmt launa- könnun VR. Launamunurinn eru heil mán- aðarlaun á ári. Þetta skellti mér aldeilis niður á jörðina. Því mín kynslóð fékk líka flottan arf. Áður en ég fæddist gengu konur úr vinnu og af heimilum til að sýna fram á að vinnuframlag þeirra væri jafn mikil- vægt og verðmætt og vinnuframlag karla. Við erum að halda upp á fjörutíu ára afmæli þessa viðburðar þetta árið. Er ekki frekar vandræðalegt að bjóða 8,5% kynbundnum launamun í veisluna? UNGLINGNUM fannst þessi staðreynd jafn glötuð, óskiljanleg og óraunveruleg og tilhugsunin um líf án internets. Samkvæmt núverandi launaþróun verða kynin fyrst með jöfn laun þegar hún verður 35 ára. Það er fullkomlega glatað, algjörlega óskiljan- legt en því miður raunverulegt. HÚN mun þó eiga arfinn sinn. Sem þýðir að hún mun að minnsta kosti snúa upp á sig, horfa á yfirmann sinn alvarlegum augum, reið og hneyksluð, og spyrja „af hverju?“. Vonandi mun hún síðan humma, svona eins og sigurvegarar gera. Arfur dætra okkar 0 9 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :5 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 2 -4 D 8 C 1 4 1 2 -4 C 5 0 1 4 1 2 -4 B 1 4 1 4 1 2 -4 9 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 0 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.