Fréttablaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 10. mars 2015 | LÍFIÐ | 25 www.kopleik.is / Tix.is Næstu sýningar: Mið. 11. mars Sun. 15. mars Mið. 25.mars Eldri borgarar 50% afsláttur Átta hurða farsi Ómissandi E N N E M M / S ÍA / N M 4 18 5 0 Hrein íslensk náttúruafurð ms.is Dave Grohl, söngvari rokksveit- arinnar Foo Fighters, frestaði tónleikum í Perth í Ástralíu, sem áttu að vera 7. maí. Ástæð- una fyrir frestuninni segir hann vera að hann ætli að fljúga heim til Bandaríkjanna svo að hann geti farið með elstu dóttur sína, Violet, á ball, en það er víst skylda að taka föður sinn með á þann dansleik. Til þess að Grohl geti sinnt skyldum sínum sem faðir, verða tónleikarnir færðir til sunnudagsins 8. maí og verða þeir síðustu á tónleikaferð sveit- arinnar um Ástralíu. Frestaði tónleikum fyrir dóttur GÓÐUR PABBI Föðurhlutverkið er mikilvægt fyrir Dave Grohl. Poppdrottningin Madonna lét hafa eftir sér í viðtali að Kanye West væri hin nýja Madonna. „Kanye er hin nýja ég. Kanye er svarta útgáfan af mér,“ sagði hún í samtali við New York Daily News. Madonna fékk Kanye West til þess að vera með sér í þremur lögum á nýju plöt- unni sinni, Rebel Heart. Hún segir þau eiga það sameiginlegt að þau fari nálægt línunni og jafnvel yfir hana, og reyni á þol- rif fólks. „Við stöndum saman í þessu, að fara alltaf nær og ennþá nær línunni,“ segir hún að lokum. Kanye er svarta útgáfan af mér SÁLUFÉLAGAR Madonna segist eiga margt sameiginlegt með Kanye West. Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna síðastliðinn sunnudag, mætti leikkonan Emma Watson í klukkutíma langt viðtal í höf- uðstöðvum Facebook í London. Þar talaði Watson um við- brögðin við ræðu sinni sem hún hélt í september þegar hún kynnti átakið HeForShe. „Mér var hótað strax eftir ræðuna, ég held innan við klukkutíma eftir að ég kláraði hana. Það var komin vefsíða sem hótaði því að birta nektarmyndir af mér,“ sagði Watson. „Ég vissi að það var ekkert á bak við þetta, þar sem ég vissi að myndirnar væru ekki til.“ Hún segir að margir karl- menn hafi orðið reiðir vegna hótananna sem hún fékk og þar á meðal bróðir hennar. „Honum var ekki sama og ég held þetta hafi vakið menn til vitundar um það að konum er raunverulega hótað á alla vegu.“ Þegar hún var spurð út í fem- ínisma sagði Watson að margir væru hræddir við að kalla sig femínista. „Það eru margir sem tengja femínisma við hatur á karlmönnum, sem er alls ekki rétt.“ Hún benti einnig á að jafn- rétti í kvikmyndaheiminum væri mjög ábótavant og að konur væru bæði færri og fengju verr borgað en karlar fyrir sama starf. Var hótað innan við klukkutíma eft ir ræðu Emma Watson mætti í viðtal í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna og talaði meðal annars um hótanir. BARÁTTUKONA Emma Watson stofnaði HeForShe í fyrrahaust. 0 9 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :5 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 2 -5 C 5 C 1 4 1 2 -5 B 2 0 1 4 1 2 -5 9 E 4 1 4 1 2 -5 8 A 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 4 0 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.