Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 24.04.1992, Page 2

Fréttir - Eyjafréttir - 24.04.1992, Page 2
Fostudaginn 24. apríl 1992 - FRÉTTIR Jóna Björg Cudmundsdóttír, Héradsskjalavördur skrifar: Hvað eru skjalasöfn? Fortídin er ff jársjóður f ramtídar. • Jóna Björg Guömundsdóttir. Ákveðið hefur verið að sunnudag- urinn 26. apríl verði kynningardagur skjalasafna um allt land. Þann dag verður Hérðasskjalasafn Vestmann- aeyja sem staðsett er í Safnahúsinu, opið milli kl. 14:00 - 18:00. Meginmarkmiðið með deginum er að vekja athygli á söfnun og varð- veislu einkaskjala, þ.e. skjalagagna einstaklinga, fyrirtækja og félaga. Jafnframt verður tekið við upplýs- ingum um einkaskjalasöfn úti í bæ. En hvað eru skjalasöfn? Segja m;i að orðið skjalasafn hafi í rauninni þrenns konar merkingu, þ.e. 1. Safn skjalagagna, sem hefur að geyma upplýsingar og hefur orðiö til við einhvers konar starfsemi á vegum einstaklings, fyrirtækis, félags, stofn- unar eða embætis. 2. Geymslustaður þar sem einhver varðveitir skjalagögn sín. 3. Stofnun sem varðveitir skjalagögn einstaklings, fyrirtækis, félags, stofn- unar eða embættis. Skjalagögn geta verið á ýmsa vegu. Þau eru ekki aðeins pappír, heldur getur verið um að ræða t.d. filmur, geisladiska, segulbönd eða ljósmyndir, og eftir því sem tækninni fíeygir fram fjölgar þeim tcgundum gagna sem þarf að varðveita. Söfnun og varðveisla einkaskjala hefur ótvírætt sögulegt gildi. T.d. skiptir miklu máli fyrir okkur hér í Vestmannacyjum að skjalagögn sjá- varfyrirtækjanna glatist ekki, því án þeirra væri saga sjávarútvegsins hér í bæ óskrifað blað. Sama má segja um félagasamtök. Mörg merk félög hafa verið starfrækt í Eyjum og væri mikill fengur í því cf skjalagögn þessara félaga kæmu í leitirnar þannig að hægt væri að gera sér grein fyrir þróununarsögu félags- starfsemi í Eyjum. Og síðast en ekki síst væri okkur bæjarbúum akkur í því að upplýsingar bærust varðandi gömul skjalagögn einstaklinga cr leynast vafalaust víða í kjöllurum eða á háaloftum í bænum. Það fer margt merkilegt forgörðum sem látið er liggja óhreyft árum saman í geymslum hjá fólki. Það skal áréttað að Héraðsskjala- safnið er ekki lokuð stofnun. Safnið er opið mánudaga og miðvikudaga milli kl. 14:00 og 17:00 og jafnframt er hægt að ná í skjalavörð í síma 11194. Skjalasafnið cr til lyrir fólkið, og sérstaklega skal bent á þá þjón- ustu skjalasafna að lána skjalagögn á milli safna. En að lokum, vcrið velkomin á Kynningardag skjalasafna sunnu- daginn 26. apríl. Jóna Björg Guömundsdóttir, Héraðsskjalavörður. Rqgnnr Óskarsson skrifar: Klúðuróklúðurofan Á fundi bæjarstjórnar hinn 9. apríl s.l. gerðist margt undarlegt. Meiri- hluti bæjarstjórnar staðfesti þar ýmis mál sem eru sannkölluð klúðursmál. Þannig er núverandi meirihluti í mörgu farinn að líkjast þeim meiri- hluta sem sat að völdum hér í bæ á árunum 1982 - 1986. Sá meirihluti var þekktur fyrir fjöldann allan af alls konar klúðursmálum eins og frægt er orðið. Núverandi meirihluti virðist vera á góðri leið með að feta í fótsporið. Ég ætla hér að gera grein fyrir einu þeirra klúðursmála sem nú hafa litið dagsins ljós. Hraunbúda- klúdrid. Á umræddum bæjarstjórnarfundi staðfesti meirihluti bæjarstjórnar ákaflega undarlegan samning, samn- ing sem ég fullyrði að sé alveg út í hött og geti skapað afar varhugavert fordæmi og veikt stöðu bæjarins gagnvart verktökum þegar fram líður. Eins og allir vita ákvað meirihluti bæjarstjórnar fyrir skemmstu að rjúfa hátíðarsamþykkt bæjarstjórnar um uppbyggingu Hraunbúða. Samn- ingur um framkvæmdir lá fyrir og verktakar voru að siálfsögðu tilbúnir að standa við hann. Þegar meirihlut- inn tók síðan sína ákvörðun um að rjúfa fyrrnefnda hátíðarsamþykkt blasti auðvitað við að einnig var búið að rjúfa samning við verktakana. Og nú voru góð ráð dýr. Meirihlutinn lagði þá höfuðið í bleyti og ræddi við ráðgjafa sína. Eftir miklar vangavelt- ur var síðan komist að þeirri niður- stöðu að rétt væri að veita verktaka Hraunbúða forgang að byggingu sorpeyðingarstöðvarinnar sem bæjarbúar eiga sem kunnugt er að greiða með sérstökum skatti. Meiri- hlutinn taldi sig hafa fundið meiri- háttar lausn og þar með gátu íorystu- mennirnir farið að snúa sér að öðrum og þarfari verkefnum, kvótaverslun eða einhvcrju þess háttar. Óskyld mdl. Með vinnubrögðum af þessu tagi hefur meirihlutinn gert þá meginvit- leysu að tengja saman tvö óskyld mál. Bygging sorpbrennslu er ekki á nokkurn hátt tengd framkvæmdum við Hraunbúðir. Ur því að meirihluti bæjarstjórnar kom sér í þau vand- ræði að rjúfa hátíðarsamþykktina um uppbyggingu Hraunbúða átti hann auðvitað að sjá fyrir endann á því dæmi gagnvart viðkomandi verktökum. En það var ekki gert. Fyrirhyggjuleysið var algert, ekki var horft fram í tímann, heldur tekin ákvöröun sem óhjákvæmilega hlaut að koma mönnum í bobba. Klúðrið varð ekki umflúið. Auðvitað hefði verið cðlilegast að bjóða út byggingu sorpbrennslu- stöðvarinnar. Þannig hefðu verktak- ar setið við sama borð og niðurstaðan hefði án efa gefið bænum hægstæð- astan samning. Nú blasir hins vegar við að meirihlutinn er búinn að hafna þeirri leið og hefur þar með stofnað til klúðurs af vafasamri gerð. Sagan er ekki öll. En þar með er ekki öll sagan sögð. Meirihluti bæjarstjórnar lét sig ( einnig hafa það á umræddum bæjar- stjórnarfundi að vísa frá tillögu um Slysavarnaskóla sjómanna. bóka- verðlaun vegna umferðarþrautar í grunnskólum. varúðarskiltin Veistu- kanntu, manstu voru afhent í 120 skip og báta. Þá létum við setja upp tvö viðvör- unarskilti vegna grjóthruns á Eiðinu. Einnig tókum við á móti fatnaði í Básum vegna fatasöfnunar fyrir Kúrda ásamt félögum úr Björgunar- félagi Vestmannaeyja. Eykyndill tekur þátt í starfi eldri borgara með því að halda skemmtikvöld á Hraun- búðum. Nú stendur yfir vorsöfnun S.v.d. Eykyndils. Það er ósk okkar að þeir sem til verður leitað, þ.e. félagskon- ur og fyrirtæki, taki vel á móti Eykyndilskonum, eins og þeir hafa áður gert. Vorsöfnun kemur í stað hlutaveltunnar, sem áður var árviss. Söfnunarfénu verður varið til kaupa á neyðarboðkerfi fyrir Vestmanna- eyjar. Aðilar verða slökkvilið, Björgunarfélag Vm., Lóðsinn, Al- mannavarnir og læknar Sjúkrahúss- ins. Við viljum þakka öllum sem veita slysavarnamálum lið og stutt hafa Eykyndil á einn eða annan hátt. Gleðilegt sumar. F.h. Eykyndils, Októvía Andersen. Stjórn Eykyndils skipa: Októvía Andersen, formaður, Ingibjörg Andersen, gjaldkeri, Halla Guð- mundsdóttir, ritari, Bára Guð- mundsdóttir, varaformaður, Bára Magnúsdóttir, varagjaldkeri, Guð- munda Hjörleifsdóttir vararitari og Esther Valdimarsdóttir, meðstjórn- andi. Eins og endranær hefur Eykyndill notið velvildar og stuðnings bæjar- búa og starfið hefur gengið mjög vel, en tæplega 300 konur eru félagar í deildinni. Fjáraflanir voru ineð hefðbundn- um hætti, en þær voru m.a. vorsöfn- un, kaffisölur, handavinnu - og kökubasar, blómasala, merkjasala, sala á minningarkortum ofl. Eykyndilskonur gáfu á s.l. starfs- ári tvö reykköfunartæki í Lóðsinn, talstöð í nýja slökkvibílinn, 800 þús- # Ragnar Óskarsson. að framvegis verði stærri verk á vegum bæjarins boðin út. Með þeirri frávísun er meirihlutinn í raun að segja að hann geti allt eins ákveðið að semja við verktaka í stað þess að láta fara fram útboð vegna stærri verka. Þetta tel ég vera mjög alvar- legt mál og að það geti ekki þjónað hagsmunum bæjarinsað hafa þennan háttinn á. Og ég hélt satt að segja að sjálfstæðismenn, sem tala gjarnan um að bjóða allt út, létu ekki hanka sig með þeim hætti sem umrætt mál ber vitni um. Með þessu sérstaka klúðursmáli hefur meirihluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Vestmannaeyja markað tímamót sem því miður eru ekki ánægjuleg. Með þessu sérstaka klúð- ursmáli hefur meirihlutinn enn og aftur sannað stefnuleysi og hring- landahátt sinn. Hann hefur sannað að sjálfstædismeirihluti í Vest- mannaeyjum er ófýsilegur kostur sem fyrr eða síðar kemur bæjarfélag- inu í vandræði. Reynslan frá árunum 1982 - 1986 var okkur Vestmannae- yingum erfið og ég er farinn að halda að sama sagan sé að cndurtaka sig, Því miður. Handknattleiksunnendur: Borgum með 1000 kalli Hirðum ekki afganginn. í kvöld verður leikur ÍBV og FH í úrslitakeppni 1. deildar karla í handknattleik. Leikur þessi er talandi dæmi um gott gengi liðs okkar í vetur. Þessum góða árangri fylgja aukin útgjöld. Góðir stuðningsmenn. Léttum handknattleiksráði róðurinn. Mottóið er: GREIÐUM MEÐ 1000-KALLI Á LEIKINN. HIRÐUM EKKI AFGANGINN. Áfram ÍBV. Stuðningsmaður Félagsmenn í Sjómannafélaginu Jötni Erum farnir að taka á móti pöntunum í orlofsíbúð félagsins í Reykjavík. Þeirfélagsmenn í Jötni sem vilja leigja íbúðina, vinsamlega hafi samband við skrifstofu. Stjórnin Sumarbústaður Þeir verkstjórar sem áhuga hafa á að leigja sumarbú- stað í Hvíld eða efri Brunná í Dalasýslu vinsamlega hafið samband við Friðþjóf Másson S 12086, fyrir 20. maí. Verkstjórafélagið ATVINNA SH verktakar óska að ráða tvo trésmiði, verkamann og járniðnaðarmann, tímabundið, við Herjólfsbryggju. Upplýsingar gefur Grímur í síma 91-53443 og 985-28232. # Nýkjörin stjórn Eykyndils. Standandi, frá vinstri; Esther Valdimarsdóttir, Bára Guðmundsdóttir, Bára Magnúsdóttir og Guðmunda Hjörleifsdóttir. Sitjandi, frá vinstri; Halla Guðmundsdóttir, Októvía Andersen formaður og Ingibjörg Andersen. Aðalfundur Eykyndils Aöalfundur S.v.d Eykyndils var und krónur til sex björgunarsveita á haldinn í Básum 25. febrúar 1992. Suðurlandi, 100 þúsund krónur til Fjölmennum á leik ÍBV og FH í kvöld kl. 20:00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.