Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.1992, Blaðsíða 4
Afkomendur Gísla J. Johnsen:
9 Það var mikið líf og fjör í Bárugötunni síðastliðinn fimmtudag. Þar stóð Sparisjóðurinn fyrir grillpartýi í tilefni 50
ára afmælis síns. Stjórn og starfsfólk Sparisjóðsins stóð sjálft vaktina við grillin og höfðu vart undan, enda grilluðu
þau vel á annað þúsund pylsa. Myndirnar sem hér fylgja skýra sig nokk sjálfar, grillararnir, fólkið og fjörið er mynd-
efnið og segir okkur að meira þurfa að gera af slíku á góðviðrisdögum, ef tilefni gefast til.
Grillveisla
í Bárugötu
1 góða veðrinu á fimmtudaginn
tóku stjórn og starfsfólk Sparisjóðs-
ins sig til og grilluðu pylsur handa
bæjarbúum í tilefni 50 ára afmælis
Sparisjóðsins.
Veislan hófst kl. 14:00 í Bárugöt-
unni og var saman komin fjöldi
manns sem fékk sér grillaðar pylsur
og öl með í boði Sparisjóðsins.
Verslunin Flott og Flippað var með
tískusýningu og gaf síðan að líta
varning sem kaupmenn og verslun-
arfólk í Eyjum stilltu upp eftir endi-
langri götunni og settu skemmtileg-
an svip á umhverfið. Einnig voru
þarna fulltrúar frá SS sem kynntu
grillmat og gáfu viðstöddum að
smakka á jafnóðum og grillað var.
Forsölu aðgöngumiða á Þjóðhátíð
var þjófstartað, og sagði Bjarni
Samúelsson að miðarnir hcfðu selst
mjög vel.
Aö sögn Þrastar Gunnarssonar
skrifstofustjóra Sparisjóðsins þá
tókst þetta mjög vel, frá þcirra sjón-
arhóli séð, þeir hefðu grillað vcl á
12. hundrað pylsur og voru þeir
mjög ánægðir með hvað margir
mættu, þótt ekki hefði verið auglýst
með miklum fyrirvara. Eins og
myndirnar bera með sér þá kunnu
Vestmannaeyingar vel að meta þetta
framlag Sparisjóðsins.
Teiknað af Ríkharði Jónssyni.
Ómögulegt cr að meta búninginn til
fjár, cn öll vinna á honum er hin
glæstasta og bcr meisturum sínum
fagurt vitni.
Allir eru þessir munir nú til sýnis í
Byggðarsafninu, munir sem minna á
glæstan feril eins mesta athafna-
manns Islandssögunnar, Gísla J.
Johnsen.
• Sif Sigfúsdóttir í skrautklæðum
langömmu sinnar. Sif, við sófann
sem Ríkharður Jónsson skar út.
Rúmlega 200 afkomendur Gísla J.
Johnsen voru með ættarmót hér um
helgina og við það tækifæri afhentu
þeir Byggðarsafninu ómetanlega
muni úr búi Gísla, til varöveislu.
• Hér stendur Sif við skrifborð
langafa síns, Gísla J. Johnsen.
Meðal þeirra er stór útskorinn sófi
sem Ríkharður Jónsson myndlistar-
maður skar út og útskorið skrifborð
og stóll. Þá er að finna teikningu
Guðjóns Samúelssonar af Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja, þar sem nú er Ráð-
hús bæjarins og skjal, til staðfesting-
ar því er Gísli var skipaður breskur
konsúll, undirritað af Chamberlain
forsætsiráðherra Breta. Á sjötíu ára
afmæli sínu var Gísli gerður að
heiðursborgara í Vestmannaeyjum
og fékk hann skjal því til staðfesting-
ar. Lét Gísli útbúa sérstakan ramma
utan um skjalið og í útskurðinum er
að finna öll þau hús sem hann bjó í
og lét byggja yfir sig á æfinni.
Síðast en ekki síst er glæsilegur
kven viðhafnarbúningur sem Ásdís
Gísladóttir Johnscn, eiginkona
Gísla átti. Um er að ræða kyrtil, fald
og möttul. Allt gullbryddað og mcð
gullbelti, gullkrækju og gullsprota.
Guðlaug Pröffn Ólofsdótf r
í sumarsveiflu
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir söng-
kona vakti mikla athygli þegar hún
varð 2. í Söngvakeppni framhalds-
skólanna í vetur. Þar söng Guðlaug
gamalt lag Gunnars Þórðarsonar,
Ég elska alla. Gunnar virðist hafa
orðið hrifinn af söng Guðlaugar því
hann fékk hana til að syngja eitt lag á
safnplötu sem nýlega er komin út.
Það er heilmikið að gerast hjá þér
þessa dagana Guölaug, geturðu sagt
frá því?
“Já, í fyrsta lagi cr Lýður Ægisson
að gefa út plötu þar sem ég syng tvö
lög ein, og eitt í dúctt með Þorsteini
Lýðssyni.
Síðan er komin út hjá Steinum
safnplata sem heitir Sumarsveifla. Á
plötunni eru gömul lög eins og
Seinna meir scm hljómsveitin Start
gerði frægt á sínum tíma, í bland við
nýja smelli. Meðal annars er þar eitt
lag cftir Geirmund Valtýsson sem ég
syng á móti pabba mínum, Ólafi
Þórarinssyni". Hvernig kom það til
að þú varst beðin um að syngja lag
eftir Geirmund?
„Það var þannig, að Gunnar Þórðar-
son, sem útsetti og stjórnaði upptök-
um á plötunni, sá mig syngja lag eft-
ir hann í Söngvakeppni Framhalds-
skólanna og í framhaldi af því benti
hann á mig til að syngja þetta lag“.
Það er nú alveg þokkalegt hrós, að
fá beiðni frá Gunnari Þórðarsyni um
að syngja inn á plötu, ertu að verða
stjarna?
“Nei, ég segi það ekki en auðvitað
er ég rosalega glöð yfir þessu. Svona
lagað eykur að sjálfsögðu á sjálfs-
traustið og er mikil upphefð fyrir
mig“.
Hvernig er svo lagið?
“Þetta er svona týpísk Geirmundar-
sveifla, ágætis lag sem höfðar
kannski frekar til mömmu og pabba
en minnar kynslóðar“.
Er eitthvað meira framundan hiá
þér?
“Núna er ég að spila með hljóm-
sveitinni Karma, frá Selfossi um
hverja helgi, og allt vitlaust að gera.
Svo er pabbi að hugsa um að gefa út
sólóplötu einhvern tíma á næstunni,
hugsanlega fyrir jólin. Ég á von á
því að fá að vera eitthvað með á
þeirri plötu, svo það er nóg fram-
undan".
Stefnir þú að því að verða alvöru
poppstjarna?
• Guðlaug Ólafsdóttir
“Ekkert frekar, því það er erfitt að
vera söngkona, bæði tfmafrekt og
bindandi. Maður verður alveg
útundan í félagslegu lífi því maður
er alltaf að spila um helgar og hefur
engan tíma fyrir neitt. Ég er bara
glöð yfir því sem er að gerast í dag
og ánægð með stöðuna eins og hún
er“.
Fœrðu Byggðarsaf ninu ómet-
anlega muni til varðveislu